SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Qupperneq 34

SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Qupperneq 34
34 24. janúar 2010 Í fyrstu var hann hvass í fasi eins og eggjagrjót ís- lensku fjallanna en eins og vorþeyrinn mildar fjöll- in spratt hlýtt hjartalag hans fram og tók yfir, réð ferðinni eins og góður knapi stýrir villtum fola. Það fór ekki á milli mála að Ragnar Björnsson hesta- maður á Hornafirði hafði mjög næmt samband við hesta sína, þessi raunverulegu tengsl manns og hests sem ein- vörðungu verða til með gagnkvæmu trausti og virðingu. Við spjölluðum saman um lífið og tilveruna, smáatriðin, það smellna og yfirnáttúrlega og auðvitað voru hrossin ekki langt undan. „Skyndilega sat ég á hinni ótemjunni.“ „Ég var að ríða inn við Dilknesland,“ sagði Ragnar, „skammt frá bænum, en var svo óheppinn að þeir voru þar á skotæfingu nokkrir strákar. Ég vissi ekkert af þessu, klukkan farin að dangla í hádegistíma á laugardegi og allt í góðu, þegar skyndilega kveður við búm, búm, búm og aftur búm, búm, búm. Ég var á ótemju, Asa, sem þoldi illa hávaða eða breytingar. Til reiðar hafði ég full- taminn hest, Brján. Það skipti engum togum við búmmin að ótemjan sem ég reið trylltist og þeytti mér óralangt upp í loftið. Ég sá ekki fram á annað en að ég myndi hrapa niður í grjóturðina undir og láta lífið. En það er kostur að vera fljótur að hugsa. Ég áttaði mig nokkurn veginn á hringferðinni í loftinu og ákvað að koma niður á hinn hestinn; Brján. Við hnykkinn hafði ég sleppt taumnum á Asa en tauminn á Brjáni fann ég í lófa mín- um. Þyngdarlögmálið bjargaði mér, því einhvers staðar varð ég að koma niður og skyndilega sat ég, eins og ekk- ert hefði í skorist, á Brjáni og hélt reiðtúrnum áfram án þess að stansa. Byssumennirnir stóðu gjörsamlega lam- aðir. Ég var nýfluttur úr Breiðdalnum og maður var svona að finna sig í nýjum takti. Ég ákvað að bregða mér suður á Mýrar og tók að sjálfsögðu riffil með mér. Rétt við veginn sá ég tvær álftir úti á tjörn og ákvað að reyna að ná þeim. Það var svartaþoka og ég taldi að enginn yrði var við það svona rétt við veginn í þessari indælis þoku. Jú, jú, þetta lukkaðist, álftin dó kvalalítið, ég skaut hana í gegnum hálsinn. En akkúrat þegar ég var að vaða út í tjörnina til að ná í álftina og koma henni í Willysinn kemur maður hvellríðandi út úr þokunni á mósóttum hesti og var ekki með neinar vöflur: „Nú hefur þú unnið ódæði mikið,“ sagði hann, „og þér skal verða hegnt fyr- ir.“ „Satt segir þú, frændi,“ svara ég, „víst hef ég til saka unnið og rétt mun vera að ég láti nafns míns getið.“ Sá á hestinum sagði það óþarft því það þekktu mig allir og enginn að góðu. Skildi nú leiðir, ég fór heim á jeppanum en bóndinn á hesti sínum og tileinkaði sér veiðina mína. Nokkrum vikum seinna fékk ég bréf frá hreppstjóranum þar sem hann tjáði mér að títtnefndur bóndi hefði borið á mig þennan verknað, en samt látið fylgja að hann vildi ekki sækja mig til saka sökum þess að ég hefði gengist svo drengilega við víginu. Með fylgdi þó aðvörun hreppstjór- ans um að fremja ekki slíkan verknað aftur í hans um- dæmi.“ Það er margt skrýtið í kýrhausnum. Skjalfestingar má leita í Skjalasafni Austur-Skaftafellssýslu. „Fá þessir menn ekki að fara inn, bróðir minn?“ „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á vísum og heilu dagana fer ég með vísur fyrir sjálfan mig. Mér finnst verst hvað það hefur dregið stórlega úr vísnaáhuga landsmanna. Víða leynast að vísu stórkostlega góðir hagyrðingar, en þeir eru yfirleitt alltof hlédrægir í sinni list. Það er oft skemmtilegt að velta upp gömlum vísum: Vondra ró ei varast má varúð þó menn beiti. Mörg er Gróa málug á mannorðs þjófa Leiti, stóð í Óðni sem gefinn var út á fyrri hluta aldarinnar með mörgum góðum vísum: Árni kallinn úti í Vík ætlaði að taka heima. Fylgir honum flekkótt tík og fimmtíu kettir breima. Eða þessi vísa Bólu-Hjálmars: Hér er fjós og hér er ljósið inni mjólka drósir munu þar með lokdósir gulrauðar. Til baka var honum svarað af griðkonu: Óðsnillingur allt það glingur þekkir sinn á fingur fáséðan færir hann hringinn gulrauðan. Þá er þessi ekki dónaleg: Hæðir, lautir, engi, ár, auðnan, hlíðin, fossinn, klæðir skrauti sumar svás, sólarblíði kossinn. Sumar eru snilld eins og þessi hringhenda: Dóma grundar, aldrei ann illu pretta táli. Sóma stundar hvergi hann hallar réttu máli.“ Við vikum talinu aftur að Hornafirði: „Ég er búinn að búa hér í liðlega 30 ár, en þar af var ég í 15 ár með félagsheimilið Sindrabæ. Það gekk í rykkjum, maður var ýmist úti eða inni í orðsins fyllstu merkingu. Eftir nokkur ár var ég settur út í kuldann og þá komu þrír framkvæmdastjórar á þremur árum. Þá tók ég við aftur og var í 7 ár en þá töldu allir að úr því að ég gæti þetta þá gætu fleiri það. Ég hafði minn hátt á þessu, drakk með gestunum, spil- aði póker við síldarstrákana, slóst við Ólsara ef þurfti. En ég hætti í góðu, það var gott á milli mín og krakkanna en þegar ég var ráðinn aftur var það vegna þess að Hús- nefndinni fannst að það þyrfti sveigjanlegri mann. En svo hætti maður í alvöru. Þetta var talsvert tuð, aldrei undir 350 bíósýningar á ári og eitt árið fóru þær upp í 409. Ég var þó ráðinn upp á 4 sýningar á viku og dansleiki eftir hendinni, oftast þó á laugardögum og sunnudögum. Það var líf í tuskunum þegar Karlakór Suðurnesja var með söngskemmtun klukkan 5 á laugardegi, leikfélagið með frumsýningu um kvöldið og svo dansleikur á eftir. 40 manna kór vildi þá fá inni í húsinu til að skemmta sér á ballinu og þeir áttu að vera komnir fyrir kl. 11. Klukkan var nú langt gengið í miðnætti, kórfélagarnir ókomnir og gífurleg aðsókn á ballið og við lokuðum húsinu. Klukkan liðlega 12 kom hluti kórfélaganna með Egil á Seljavöllum í broddi fylkingar og Árni bróðir minn fyrir síðari hópnum. Þeir gerðu boð eftir mér og spurðu hvort þeir ættu ekki pöntuð borð. Mergurinn málsins var sá, sagði ég, að þið áttuð að vera komnir klukkan 11 og það stóðst ekki, svo málið er búið og gert. Þeir buðu mér að koma út og slást upp á þetta. Ég var í stuði til að gantast og taldi betra ef slíkt kæmi til að slást inni, því þar gæti ég lagt þá í hitanum, það var hlýlegra fyrir þá. En Árni bróðir minn var ekki af baki dottinn og kallar nú aftur: „Fá þessir menn ekki að fara inn, bróðir minn?“ Mig verkjaði í brjóstið af kærleik við svona ávarp. Þú sækir ekki svona á mig, bróðir minn, húsið er fullt og málið er útrætt, sagði ég. Nokkrum árum seinna var ég í Reykjavík með Agli og hann rifjaði upp þetta atvik, sagðist ekki gleyma því hvað ég hefði verið harðskeyttur að standa í þessum skemmt- analífsrekstri gegnum þykkt og þunnt án þess að hagg- ast.“ Það er alltaf gott í slíku að standa við orð sín. „Hálfhring á undan þaut hundraðkallinn.“ „Eitt sinn kom maður til okkar Áslaugar. Hann var að rukka mig um 100 kr. Þetta var á sunnudegi rétt eftir matinn. Maður var auðvitað í hvíldarstöðu eftir erfiði vikunnar. Maðurinn var að sinna sínu starfi og rukka og ég fann einn hundraðkall til þess að greiða honum. En það var bálviðri og veðurofsi að norðan og einhvern veg- inn fór það svo að þegar ég rétti rukkaranum hundr- aðkallinn og hann mér reikninginn á móti, að þá gleymdi hann að taka við seðlinum þegar ég sleppti honum og það var ekki að sökum að spyrja að hundraðkallinn feyktist í háaloft og enginn vissi hvað af honum varð. „Nú fór illa,“ sagði rukkarinn og kippti reikningnum til baka. Ég tjáði honum að ég ætti ekki annan þannig heima og þetta yrði að bíða. Ég lagðist svo fyrir niðurbrotinn maður yfir þessu tjóni. Konan sagði mér að vera ekki með væl og víl yfir þessu og hvatti mig til að láta hvergi bugast. Þegar ég var búinn að liggja og hugsa málið bað ég konuna um skæri og pappír, klippti út peningaseðilsstærð, teiknaði báðum megin á hann eins og vera bar, litaði og skrifaði undir og „Mig verkjaði í brjóstið af kærleik“ Ragnar Björnsson hestamaður á Hornafirði féll frá fyrir mörgum árum. Ragnar var húmoristi og sagnamaður af Guðs náð og hest- arnir sál hans og sigrar. Andlát Ragnars bar brátt að en skömmu áður hafði greinarhöfundur tekið við hann viðtal fyrir Morgun- blaðið. Viðtalið var hins vegar söguleg staðreynd og stenst vonandi tímans tönn eins og minningin um mætan mann. Árni Johnsen

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.