SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Blaðsíða 13
10. október 2010 13
Þ
egar Adam Ant söng um Sjarmprinsinn í byrj-
un níunda áratugarins er ekki ósennilegt að
hann hafi verið að vísa til sjálfs sín. Kvenfólk
um víða veröld nötraði undan kynþokka
þessa söngvara og leikara, sem átti fjölmörg lög á vin-
sældalistum vestan hafs og austan 1979 til 1983, flest
með nýbylgjusveitinni Adam and the Ants, og var m.a.
kosinn kynþokkafyllsti maður Bandaríkjanna af áhorf-
endum MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Þá lék hann í á
þriðja tug kvikmynda og sjónvarpsþátta. Lög eins og
Goody two shoes, Prince Charming og Stand & Deliver
eru enn í fersku minni þeirra sem áttu sitt blómaskeið á
þessum tíma.
Velgengni Stuart Leslie Goddard eins og Adam Ant
var upphaflega nefndur, tók að dala á fyrri hluta níunda
áratugarins, en þá hafði hann leyst upp bandið og hafið
sinn eigin tónlistarferil. Eftir útgáfu á misheppnaðri
þriðju sólóplötu sinni árið 1985 ákvað hann að hætta í
tónlist og einbeita sér að leikferli sínum og fékk hann
hlutverk í nokkrum kvikmyndum auk þess að koma
fram í bandarískum sjónvarpsþáttum. Hann lék einnig
á sviði en flutti svo til Hollywood og tók þátt í nokkrum
uppfærslum á söngleikjum og sviðssýningum.
Árið 1989 gerði hann tilraun til að snúa sér aftur að
tónlistinni og út kom ný plata sem hlaut blendnar við-
tökur. Fjórum árum síðar þegar auglýst útgáfa plöt-
unnar Persuasion stóð fyrir dyrum tók útgáfufyrirtækið
MCA einhliða ákvörðun um að hætta við hana á þeirri
forsendu að fyrri platan hefði ekki náð gullsölu. Síðasta
plata Adam Ant, Wonderful, kom svo út árið 1995 og
naut titillagið nokkurra vinsælda auk þess sem hljóm-
leikaferð í kjölfarið þótti vel heppnuð.
Fangelsi og geðsýki
Eftir það tók líf og ferill Adams skarpa dýfu niður á við.
Til stóð að hann yrði með í hljómleikaferð árið 2002 til-
einkaðri tónlist níunda áratugarins en hann varð frá að
hverfa eftir nokkuð dramatíska atburði sem leiddu til
þess að hann var lagður inn á geðsjúkrahús. Adam hafði
farið inn á krá í Camden-hverfi í London í leit að óvild-
armanni sínum en var vísað þaðan út eftir árangurs-
lausa leit. Nokkrum klukkutímum síðar rakst Ant á
ónýtan alternator úti á götu og henti honum inn um
glugga á kránni með þeim afleiðingum að maður inn-
andyra skarst vegna rúðubrotanna. Öryggisverðir sem
eltu hann uppi urðu svo frá að hverfa þegar Ant dró úr
pússi sínu gamla byssu úr seinni heimsstyrjöld sem fað-
ir hans hafði átt. Stuttu síðar höfðu lögreglumenn
hendur í hári hans.
Eftir rannsókn og réttarhöld í málinu var hann
dæmdur til að greiða sekt og til vistunar á rétt-
argeðdeild, en dómurinn var skilorðsbundinn.
Árið 2003 var hann handtekinn á ný eftir erjur sem
enduðu með því að hann reyndi að brjóta hurðina á
verönd nágranna síns með skóflu. Í framhaldinu lagðist
hann í fósturstellingu á steinsteyptu gólfi í kjallara
kaffihúss með buxurnar niður um sig og reyndi að
sofna. Aftur var hann dæmdur fyrir óspektir og dvaldi í
framhaldinu í fangelsi fyrir geðsjúka glæpamenn. Síðar
var hann fluttur á geðsjúkrahús þar sem hann dvaldi í
sex mánuði. Sama ár var þættinum The Madness of
Prince Charming sjónvarpað í Bretlandi. Þátturinn
fjallaði um feril Adams og baráttu hans við geð-
hvarfasýkina, sem hann hafði þá verið greindur með.
Þremur árum síðar gaf hann út sjálfsævisögu sína,
Stand & Deliver sem var endurútgefin árið eftir vegna
vinsælda hennar. Í tengslum við endurútgáfuna tróð
Adam upp og las úr bók sinni og flutti nokkur af lögum
sínum. Það var í fyrsta sinn í 11 ár sem hann spilaði fyrir
áhorfendur.
Skammvinn endurkoma
Það var hins vegar ekki fyrr en í mars í ár sem Adam
Ant átti endurkomu í tónlistinni þegar hann kom fram
og spilaði í bókabúð í London eitt föstudagssíðdegi. Í
framhaldinu tróð hann upp á nokkrum tónleikum og
fréttir bárust af því að hann væri kominn í stúdíó á ný.
Þessi skyndilega atorka í tónlistinni entist þó ekki
lengi. Um miðjan maí var Adam Ant lagður á ný inn á
geðsjúkrahús þar sem hann dvaldi þar til um miðjan
júní. Í yfirlýsingu sagðist hann þó hafa í hyggju að halda
tónleikahaldi áfram síðar á árinu. Hvort það gengur eft-
ir verður að koma í ljós. Þó tróð hann upp á einum tón-
leikum seinni part júnímánaðar en eftir það hafa fréttir
borist af því að hann sé að æfa með hljómsveit. Þá hefur
verið auglýst að hann muni koma fram á minningar-
tónleikum um fyrrum gítarleikara The Ants í nóvember
næstkomandi.
ben@mbl.is
Hvað varð um...
Adam Ant
Nýleg mynd af Adam Ant. Adam and the Ants voru aldeilis glæsilegir á velli þegar allt lék í lyndi milli þeirra.
Deadline for application:
31/10/2010
Entry on duty:
As soon as possible
Fixed-term three year contract.
If considered desirable and in the
Authority’s interest, an additional
three year contract may be offered.
www.eftasurv.int
Role description:
The successful candidate will be
assigned responsibility for general
surveillance work and case handling
relating to the implementation and
application in the EEA EFTA States
(Iceland, Liechtenstein, and Norway)
of EEA law relating to Financial
Services. Tasks include examination
of complaints, legal conformity
assessments, and drafting of deci-
sions, opinions and reports.
Depending on workload and other
requirements, the responsibilities
may be changed to cover other, gen-
eral or specific, issues relating to
EEA law.
Essential:
● University degree in law, eco-
nomics, finance or other relevant
field, preferably with a postgradu-
ate degree in European law
● Specialised knowledge of EEA/EU
law in the relevant field
● Extensive relevant working experi-
ence in private and/or public sec-
tor (minimum 6 years)
● Excellent command of written and
spoken English
● Computer literacy
● Ability to work both independently
and in a team in an international
environment
Performance indicators:
● Subject matter knowledge, analyt-
ical skills and problem solving,
quality and result orientation,
compliance with internal rules,
processes and instructions, auton-
omy, motivation to work, personal
efficiency and initiative.
Desirable:
● Knowledge of and familiarity with
the functioning of the European
Economic Area, and the EFTA
States
● Professional experience involving
the institutions of the EU and the
EEA
● Good understanding of Norwegian,
Icelandic, or German (EFTA lan-
guages)
THE AUTHORITY
The EFTA Surveillance Authority monitors compliance with European
Economic Area rules in Iceland, Liechtenstein and Norway, enabling them to
participate in the European internal market
European Economic Area
The European Economic Area (EEA) consists of the 27 Member States of the
European Union (EU) and three European Free Trade Association (EFTA)
States: Iceland, Liechtenstein and Norway.
The purpose of the EEA Agreement is to guarantee, in all 30 EEA States, the
free movement of goods, people, services and capital – “the four freedoms”.
All new relevant Community legislation is introduced through the EEA
Agreement, ensuring a uniform application of laws relating to the internal
market.
A two-pillar system of supervision has been devised: EU Member States are
supervised by the European Commission; while the participating EFTA States
are supervised by the EFTA Surveillance Authority.
Role of the EFTA Surveillance Authority
The EFTA Surveillance Authority ensures that the participating EFTA States
Iceland, Liechtenstein and Norway, respect their obligations under the EEA
Agreement. The Authority seeks to protect the rights of individuals and market
participants who find their rights violated by rules or practices of the EFTA States
or companies within those states. Such rules or practices may, for example, be
discriminatory, impose unnecessary burdens on commercial activity, or
constitute unlawful state aid. The Authority may in such cases initiate
proceedings against the relevant EFTA State at the EFTA Court, seeking a change
in the relevant rules or practices. In monitoring and enforcing the Agreement, the
Authority has powers that correspond to those of the European Commission and
there is close contact and co-operation between the Commission and the
Authority. The two institutions oversee the application of the same laws in
different parts of the EEA. The Authority is based in Brussels and operates
independently of the EFTA States. It is made up of 61 officials, within which 15
nationalities are represented. The Authority is led by a College which consists of
three members, each appointed by the three participating EFTA States.
Internal Market Affairs Officer - Financial Services JOB REFERENCE 06/10
Conditions:
The position as Officer is placed at grade A4 of the salary scale, starting at € 81.591,72 per year. A higher step can be considered on the basis of
the candidate’s qualifications and experience. Depending on, inter alia, family status allowances and benefits apply. Favorable tax conditions apply.
Overview of conditions at: http://www.eftasurv.int/about-the-authority/vacancies/recruitment-policy.
Questions regarding the position may be posed to Ms Tuula Nieminen, Deputy Director of the Internal Market Affairs Directorate, to +32 (0)2 286 18 67.
Questions regarding general information and the recruitment process may be posed to Mrs Janecke Aarnæs, Officer, Administration, to +32 (0)2 286 18 25.