SunnudagsMogginn - 10.10.2010, Blaðsíða 31
10. október 2010 31
Bíður eftir Obama
Hvað með erlenda stjórnmálamenn, brennurðu í skinn-
inu að teikna einhvern af þeim?
„Já, Barack Obama Bandaríkjaforseta. Ég bíð spenntur
eftir að hann detti inn.“
Hefur enginn hringt brjálaður í þig út af teikningu?
„Nei, ekki ennþá. Menn hafa samt kvartað. Þannig sak-
aði Svavar Gestsson Davíð Oddsson um að leggja teikn-
urum blaðsins til efnið í viðtali í útvarpsþættinum Á
Sprengisandi í sumar. Mér þótti þetta frekar fyndið, þar
sem ég sat og teiknaði um leið og ég hlustaði á þáttinn.“
Er Davíð þá ekkert að leggja þér línurnar?
„Nei, ég hef bara einu sinni hitt hann á ævinni. Það var
til að taka í höndina á honum eftir að ég var ráðinn í vor.
Ég hef oft verið spurður að því hvort ég velji viðfangs-
efnið sjálfur eða hvort ég fái fyrirmæli frá ritstjórn blaðs-
ins. Þegar ég upplýsi fólk um að ég hafi algjörlega frjálsar
hendur í efnisvali áttar það sig á því hvað þetta er mikil
vinna. Maður les öll blöð og horfir á alla fréttatíma, auk
þess að vera stöðugt á netinu. Annars væri þetta ekki
hægt. Svo á maður indæla ættingja sem benda manni oft á
mikilvægustu málin.“
Það hlýtur líka að felast aukin pressa í því að skop-
myndateiknarar blaðanna eru óvenju margir um þessar
mundir?
„Að sjálfsögðu. Maður vill náttúrlega ekki vera sein-
astur með fréttirnar. Meðan ég var með þrjár myndir á
viku þýddi ekkert annað en teikna þær daginn fyrir birt-
ingu. Ég gat í raun ekki byrjað fyrr en ég var búinn að sjá
myndina hans Helga Sig, sem teiknaði á móti mér í blaðið.
Stundum kom fyrir að ég þurfti að slaufa góðri hugmynd
vegna þess að hann var búinn að útfæra hana. Eða þá ein-
hver í öðru blaði.
Ég lít svo á að ég hafi aðeins meira svigrúm núna, þegar
ég er bara einu sinni í viku. Sunnudagsmogginn er vikurit
og þess vegna er óhætt að horfa til atburða allrar vikunnar
á undan.“
Leikur að orðspori
Áttu einhver önnur áhugamál?
„Ég hef mikinn áhuga á öllum listum, lærði á píanó og
hef einkum áhuga á leiklist. Ég byrjaði í Leikfélagi Vest-
mannaeyja sem peyi og hef einnig leikið í Verzló. Fé-
lagslífið í skólanum er frábært og ég sit í ritnefnd skóla-
blaðsins, sem er mjög metnaðarfull útgáfa.“
Talandi um list, nær sú skilgreining utan um skop-
myndateikningar í dagblöðum?
„List á að vera verk sem skaðar eða særir ekki aðra.
Fyrir þær sakir lít ég ekki á skopmyndateikningar sem
list, þar er nefnilega verið að leika sér með orðspor og útlit
fólks. Ég lít heldur ekki á veggjakrot sem list vegna þess
að þar eru unnin spjöll á eigum annarra. Í mínum huga er
teikningin sem form klárlega list en skopmyndin á þess-
um forsendum meiri blaðamennska. Hafandi sagt það
kemst fólk nú til dags upp með ótrúlegustu hluti í nafni
listarinnar.“
’
Ég er ennþá að átta
mig á því, fólk liggur
misvel við penna.
Jón Ásgeir hefur komið
nokkrum sinnum, það er
gaman að teikna hann, og
svo auðvitað Steingrímur
J. Hann er mest allra í
sviðsljósinu, blessaður.