SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Blaðsíða 6
6 17. apríl 2011
Lashanda Armstrong og Jean
Pierre kynntust í gagnfræðaskóla.
Þau bjuggu ekki saman en um-
gengust mikið enda áttu þau þrjú
börn saman. Heimildum ber ekki
saman um hvort þau hafi verið par
eður ei.
Nágranni þeirra, Steve Sheehan
að nafni, tjáði The New York Times
að þau hefðu gert flesta hluti sam-
an eins og hjón en leigusalinn,
John Boubaris, segir Armstrong í
tvígang hafa beðið sig að skipta
um lás á íbúðinni til að halda
Pierre í skefjum, síðast fyrir tveim-
ur mánuðum. „Hún kvaðst ekki
vilja neitt með hann hafa, eigi að
síður var hann hérna öllum stund-
um,“ segir Boubaris.
Þá ræðir blaðið við konu, Sharon
Ramirez, sem gengst við því að
hafa átt í sambandi við Pierre. Það
var meðan systir hans bjó í sömu
íbúð og Armstrong flutti í með
börnin fyrir um ári. „Hann sagði
mér að hann ætti börn en neitaði
að vera í sambandi við móður
þeirra,“ segir hún.
Lögregla í Newburgh hefur stað-
fest að hún hafi ekki í annan tíma
haft afskipti af Jean Pierre, hvorki
fyrir heimilisofbeldi né aðrar sakir.
Bjuggu ekki saman – og þó
Bangsi flýtur á Hudson-ánni til
minningar um litlu systkinin þrjú.
Reuters
H
jálp, hjálp. Mamma ók bílnum bara út
í vatnið,“ veinaði hinn tíu ára gamli
La’Shaun Armstrong þegar honum
tókst loksins að stöðva bíl á hraðbraut
við Hudson-ána í borginni Newburgh, norður af
New York, að kvöldi síðastliðins þriðjudags.
Konan sem nam staðar, Meave Ryan, bað
drenginn, sem var holdvotur, að hoppa upp í bíl-
inn. Því næst ók hún sem leið lá niður að staðnum,
þar sem drengurinn sagði að móðir sín hefði ekið
út í ána. Ekkert var að sjá, þannig að Ryan ók rak-
leiðis á næstu slökkviliðsstöð og gerði viðvart.
Ekki tók langan tíma að fá frásögn La’Shauns litla
staðfesta. Móðir hans, hin 25 ára gamla Lashanda
Armstrong, hafði ekið út í ána með börn sín fjögur
innanborðs. La’Shaun komst út úr bílnum af
sjálfsdáðum og synti í land í ísköldu vatninu en
móðir hans og þrjú yngri systkini, Landen (5 ára),
Lance (2 ára) og Lainaina Pierre (11 mánaða), voru
öll drukknuð þegar að var komið. Þau voru öll inni
í bílnum.
Bíllinn var ekki á miklu dýpi, skammt frá bakk-
anum en á móti kemur að vatnið á þessum slóðum
er afar gruggugt. Fyrir vikið dregur lögregla þá
ályktun að hefði drengurinn ekki sloppið út hefði
málið örugglega verið flokkað sem mannshvarf og
jafnvel ekki verið upplýst í bráð. Engin önnur vitni
en La’Shaun litli virðast hafa verið að atburðinum.
Deildi við barnsföður sinn
Meave Ryan tjáði The New York Times að dreng-
urinn hefði upplýst sig um að móðir sín hefði verið
í miklu uppnámi þetta kvöld. Hún hefði verið
staðráðin í að svipta sig og börn sín lífi. „Fyrst ég
dey, þá deyið þið með mér,“ á hún að hafa sagt.
Þegar út í vatnið var komið mun La’Shaun hafa
sagt Meave að móðir sín hefði fengið bakþanka.
„Guð minn góður, ég er að gera mistök, ég er að
gera mistök.“ Drengurinn sagði að hún hefði reynt
að setja bílinn í bakkgír en það hefði verið um
seinan. Þá braut La’Shaun sér leið út úr bílnum.
Meave hefur eftir drengnum að móðir hans hafi
verið í uppnámi eftir deilur við föður yngri
barnanna þriggja, Jean Pierre, en þau bjuggu ekki
saman. Deilan mun hafa staðið um framhjáhald.
Armstrong hringdi í föður sinn skömmu áður
en hún framdi voðaverkið og hótaði að vinna sér
mein. Hann var staddur hjá systur sinni og
hringdi hún í neyðarlínuna. Í framhaldinu var
lögregla send að heimili fjölskyldunnar. Hún greip
í tómt. Lögreglustjóri Newburgh, Michael Ferrara,
staðfestir þetta og bætir við að föðursystir Arms-
trong sem hringdi hafi óttast að hún ætti í harð-
vítugum heimiliserjum, jafnvel átökum. „Ég
heyrði ópin í börnunum í bakgrunninum,“ segir
föðursystirin, Angie Gilliam. Nágrannar staðfesta
við The New York Times að Armstrong og Pierre
hafi deilt heiftarlega áður en hún ók á brott með
börnin.
Gilliam fór ásamt hópi ættingja að staðnum, þar
sem Armstrong ók út í ána, í vikunni og lagði þar
blóm og leikföng til minningar um frænku sína og
börnin. Hún var í mikilli geðshræringu og var að
vonum ekki spennt fyrir að úttala sig við fjöl-
miðla, staðfesti þó að La’Shaun litli myndi dveljast
hjá henni. Þá mælti Gilliam stuttlega eftir frænku
sína: „Hún var góð móðir. Enginn veit hvað
frænka mín gekk í gegnum.“
Fyrst ég dey, þá
deyið þið líka!
Móðir drekkti sér og þremur
börnum sínum, eitt slapp
Angie Gilliam, föðursystir Armstrong, og fleiri ættingjar syrgja.
Reuters
Staðurinn, þar sem Armstrong ók út í Hudson-ána.
Reuters
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Fólk er að vonum harmi slegið
í Newburgh og hefur borgar-
stjórinn, Nicholas Valentine,
lýst því yfir að um sé að ræða
mesta harmleik sem um get-
ur þar um slóðir.
Borgin er tæpa eitt hundrað
km norður af New York-borg
og kemst sjaldan í heimsfrétt-
irnar. Þar búa um þrjátíu þús-
und manns að staðaldri.
Borgarbúar
harmi slegnir
Að greinast aftur
og aftur og aftur...
Að lifa með krabbameini
Örráðstefna mánudaginn 18. apríl 2011
kl. 16:30-18:00 í Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Sími 540 1900
www.krabb.is
krabb@krabb.is
16:30-16:35 Ráðstefnan sett.
Ragnheiður Haraldsdóttir
forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
16:35-16:45 Af hverju er krabbamein sjúkdómur en
ekki dauðadómur?
Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri
Krabbameinsskrár.
16:45-17:00 Að reikna með lífinu
Gunnhildur Óskarsdóttir lýsir sinni
reynslu.
17:00-17:10 Ótuktin
Valgeir Skagfjörð og Katla Margrét
Þorgeirsdóttir kynna Ótuktina, einleik
byggðan á bók Önnu Pálínu Árnadóttur
sem fer á svið í Iðnó í lok apríl.
17:10–17:50 Ekki bara að þrauka heldur lifa með
krabbameini.
Mary Schnack sem greinst hefur 7
sinnum með krabbamein segir frá því
hvernig hún hefur sigrað hverja orustuna
á fætur annarri.
17:50-18:00 Ráðgjöf, spurningar og svör.
Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkrunar-
fræðingur segir frá starfi Ráðgjafar-
þjónustu Krabbameinsfélagsins, stuðning-
shópum félagsins og svæðafélögum.
18:00-18:30 Kaffi og spjall.
Sókn í sextíu ár • 1951-2011
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis