SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Blaðsíða 11

SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Blaðsíða 11
26. júní 2011 11 www.gtyrfingsson.is - S. 568 1410 / 482 1210 - gt@gtbus.is Grænir og góðir síðan 1969 Yfir 800 þriggja punkta öryggisbelti! Sérpantaðu rútur með þriggja punkta öryggisbeltum Sérpantaðu 4x4 fjallarútur Sérpantaðu lúxusrútur • • • Nýjar lúxusrútur Leðja er og verður snar þáttur í Glastonbury- tónlistarhátíðinni sem haldin er ár hvert í Somer- set á Englandi. Hátíðin hófst á fimmtudaginn og lýkur nú á sunnudag og ef marka má meðfylgj- andi myndir er leðjan í prýðilegu formi að þessu sinni. Af listamönnum sem troða upp á hátíðinni um helgina má nefna Cold Play, Beyoncé, Paul Sim- on, Queens of the Stone Age, Kaiser Chiefs og Ro- byn, þannig að flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Leiðist mönnum þófið má svo alltaf lauga sig í leðjunni. Að lauga sig í leðjunni Trúður þessi trúði varla sínum eigin augum þegar hann komst í tæri við leðjuna og fór að vonum mikinn. Þessi geðþekka stúlka gleymdi sér alveg yfir tónlistinni á föstudaginn. Reuters Fátt er skemmtilegra en að taka fjölskylduna með á hátíðina.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.