SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Blaðsíða 38

SunnudagsMogginn - 26.06.2011, Blaðsíða 38
38 26. júní 2011 Florence Welch hefur slegið í gegn með kraftmikilli rödd sinni, frábærri tónlist, skemmtilegum per- sónuleika og flottum fatastíl. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is T ónlistarkonan Florence Welch hefur vakið mikla athygli með hljómsveit sinni Florence + the Machine. Söngkonan sló í gegn með sveit sinni með plöt- unni Lungs árið 2009 með sérstakri og kraftmikilli rödd sinni og grípandi lögum. Platan er margverðlaunuð og lagið „Dog Days Are Over“ sló rækilega í gegn og ekki má gleyma tökulaginu „You’ve Got the Love“, sem hljómsveitin kynnti blessunarlega fyrir nýrri kynslóð. „Platan er um ástina og þjáninguna. Fólki finnst textarnir mínir brjálaðir en fyrir mér er þetta einlæg og innilega plata. Ég var ekki með það markmið að vera furðuleg. Ég vildi bara að tónlistin væri tjáningarrík,“ segir hún á vefsíðu sinni. Florence klæðir sig líka á sérstakan hátt. Hún er með flottan stíl, áberandi rautt hár, er gjarnan í síðum kjólum og lætur hugmyndaflugið ráða. Hún virðist á sama tíma vera úr fortíðinni og framtíðinni, sem er kannski einmitt það sem er svona nútímalegt við hana. Hún þekk- ist líka á fölu andliti sínu og hefur sagt að hún fari ekki út úr húsi nema með sólarvörn upp á SPF50. Florence er fædd Florence Leontine Mary Welch þann 28. ágúst 1986 og ólst upp í Camberwell í suðurhluta London. Hún er elst þriggja barna háskólaprófessorsins Eve- lyn Welch og auglýsingamannsins Nick Welch. Ein af fyrstu æskuminningum hennar tengdum tónlist er að standa uppi á kassanum sem pabbi hennar geymdi vínylplöt- urnar sínar í og dansa við tónlist Rolling Stones með honum. Hún byrjaði á því að syngja lög Ninu Simone og Dusty Springfield heima. Hún segir að hún hafi alltaf tengt við tilfinningaríka tónlist og hún hlustar á allt frá Rihönnu og Beyoncé yfir í Bob Dylan og Bruce Springsteen. Florence vakti fyrst athygli íklædd alls kyns fötum úr búðum sem selja notuð föt en núna er líklegra að föt hennar séu frá þekktum hönnuðum. Frida Giannini, aðalhönnuður Gucci, hefur sagt að Florence sé innblástur hennar að fatalínu haustsins. Nýverið var tilkynnt að Florence yrði andlit Gucci næsta vetur. „Þegar ég hannaði fatalínuna var ég að hugsa um sterka en jafnframt dularfulla konu. Florence er þannig kona. Ég hitti hana í Los Angeles á Grammy-verðlaunahátíðinni og heillaðist alveg. Hún er með sterkan per- sónluleika og heillandi framkomu á sviði. Hún er líka með sjálfsöryggið sem Gucci-konan býr yfir,“ sagði hún. Florence er sem stendur á tón- leikaferðalagi um Bandaríkin, sem hófst með því að hún kom fram á Bonnaroo-tónlistarhátíðinni. Ennfremur er hún að leggja loka- hönd á nýja plötu sem kemur út síðar á árinu. Florence var í hátískukjól frá Valentino á síðustu Óskarsverðlaunahátíð. Florence hundadaga- drottning F imm meiddust og fóru á slysadeild eftir átök lögreglu og mót- mælenda úr hópi atvinnubílstjóra á Suðurlandsvegi við Rauðavatn á síðasta degi vetrar 2008. Dagana þar á undan höfðu bílstjórar látið vel finna fyrir sér og og höfðu lokað fyrir umferð, meðal annars á Reykjanesbraut. Þetta gerðu þeir til að mót- mæla hækkandi eldsneytisverði sem þrengdi mjög starfsskilyrði þeirra. Þó bílstjórarnir hefðu talsvert til síns máls þóttu aðgerðirnar ekki boðlegar og því greip lögregla inn í atburðarásina þegar tugum trukka hafði verið lagt á Suðurlandsvegi. Allt gerðist þetta raunar í beinni sjónvarpsútsendingu, hvar bæði var sýnt af vettvangi auk þess sem þyrla með kvikmyndatökumenn sveimaði yfir. Varðstaða óeirðalögreglu stóð frá morgni til klukkan að ganga þrjú umræddan dag og var piparúði notaður til að dreifa mannfjölda þegar þrengt var að lögreglu við handtökur. Hámarki náði spennan á vett- vangi þegar óeirðalögreglumenn gerðu leiftursókn gegn mótmæl- endum sem neitað höfðu að hlýða fyrirmælum um að yfirgefa svæðið.Átök bílstjóra og lögreglu við Rauðavatn síðasta vetrardag 2008 voru lokapunktur langvarandi ólgu. Morgunblaðið/Júlíus Myndasafnið 24.04. 2008 Bylting bílstjóranna Frægð og furður Skannaðu kóðann til að horfa á Florence + the Machine flytja lag- ið Dog Days Are Over.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.