SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 2
2 11. september 2011
Við mælum með
Fimmtudagur 15. september
Rússneska goðsögnin Gennadíj
Rosdestvenskíj hefur sann-
arlega unnið hug og hjörtu ís-
lenskra tónleikagesta, og sama
má segja um eiginkonu hans,
Viktoriu Postnikovu. Þau koma
nú fram í fyrsta skipti með
Sinfóníuhljómsveit Íslands í
Hörpunni. Á efnisskrá eru verk
eftir Tsjajkovskíj og Rakhman-
inoff.
Morgunblaðið/Ómar
Rússneskri veislu
4-8 Vikuspeglar
Samkynhneigðir karlar fá aftur að gefa blóð í Bretlandi, Íshokkílið
ferst í flugslysi í Rússlandi og sparkelskur sonur Gaddafis.
24 Móðurhjartað slær ört
Bjarney Jóhannesdóttir á Akranesi á fjóra syni sem allir hafa verið at-
vinnumenn í knattspyrnu og leikið með a-landsliði Íslands.
28 Komið að þolmörkum
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir að sameiginlegt
átak stjórnvalda, skóla og samfélags þurfi til að efla háskólann.
34 Hinum hljóðláta farangri …
Rúmenski rithöfundurinn og nóbelsverðlaunahafinn Herta Müller hélt
opnunarræðu Bókmenntahátíðar í Reykjavík.
36 Heimurinn er
frumskógur
Nawal Al Saadawi er afkastamikill rithöf-
undur sem hefur barist fyrir mannréttindum
og kvenfrelsi.
40 Sæla í stórum
skömmtum
Á erfiðum dögum ætti maður að leyfa sér að gúffa dálítið í sig og gera
líkamann sykurklístraðan að innan.
Lesbók
42 Brot af því besta …
Kvikmyndaunnendur bíða ugglaust spenntir eftir þeirri kvikmynda-
veislu sem boðið verður upp á síðar í þessum mánuði.
44 Sagan endalausa
Bandaríski rithöfundurinn George R.R. Martin er gefinn fyrir langlokur
sem sumir sýta en aðrir fagna.
32
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók ljósmyndari Reuters.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
26
38
Augnablikið
É
g hef alltaf litið hjarðeðli mannskepn-
unnar hornauga. En í raun ætti maður
ekki að gera það. Heldur lofa það. Með
samtakamætti náði mannskepnan að
ráða við sér stærri dýr. Þannig náði hún yfirráðum
á jörðinni og hver hafði skjól af öðrum. En þegar
maður hefur séð hjarðeðlið virkjað til illra verka
verður maður meira á varðbergi gagnvart því.
Maður leggur á sig ómælda vinnu við að kynna
sér hvert málefni samtímans til að hafa eitthvað
sem er kallað ígrundaða skoðun á málefninu.
Fylgja ekki einhverjum skipunum eða þrýstingi
hópa í kringum sig. Stundum er andúð manns á
því að láta undan þrýstingi svo sterk að maður
hefur tilhneigingu til að styðja andstæða skoðun
aðeins vegna þrýstingsins. Þótt þá sé í raun verið
að láta þrýstinginn hafa áhrif á skoðanamyndun
sína, þótt það sé í öfuga átt.
En í einu hef ég alltaf látið hjarðeðlið ráða og það
er í eigin fatasmekk. Ég fór í sambúð nánast strax
við sextán ára aldur og lét kærustuna mína ráða
fatasmekk mínum. Hún tók við akkúrat þar sem
yfirráðum móður minnar lauk. Þannig hefur það
haldist alla tíð. Í sjálfu sér var þetta skynsemd-
arráðstöfun. Mér er sama hverju ég klæðist svo
framarlega sem það haldi á mér hita. Fyrst þær
hafa skoðun á því, er um að gera að taka þá skoðun
upp. Ný kærasta hefur kannski komið með nýjan
fatasmekk og þá hefur tekið við umbreytinga-
tímabil þar sem ég er að læra að gera mér upp nýja
skoðun á fötum.
Þannig hefur viðhorf mitt líka verið gagnvart
íþróttavörum, maður fylgdi vinum sínum í ein-
hverja búð og keypti íþróttavörur sínar þar og
spáði ekkert í hversvegna maður gerði það. Þannig
fór ég að versla í íþróttavöruversluninni Jóa út-
herja. Maður keypti allt sitt þar því að hjörð
íþróttafélaga manns gerði það. Svo lendi ég allt í
einu í því að í hugsunarleysi kaupi ég fótboltaskó á
mig sem eru númeri of litlir. Þegar ég prófaði þá á
vellinum áttaði ég mig á því að þetta myndi ekki
ganga. Þegar ég ætlaði að skipta þeim daginn eftir
og fá númeri stærra sagði afgreiðslumaðurinn að
það mætti ekki. Ég átti erfitt með að skilja af
hverju, það var ekki eins og ég væri að reyna að
skipta notuðum nærbuxum fyrir nýjar. Þetta eru
fótboltaskór, þeir eyðileggjast ekki við það að ég
hafi gengið í þeim í tíu mínútur á fótboltavelli. En
honum varð ekki haggað, ekki þótt ég byði honum
að hann tæki þá á hálfvirði til baka og ég myndi
borga helminginn í skóm sem væru númeri stærri.
Ég spurði hann þá ráða, hvar ég gæti selt skó sem
hefðu verið notaðir í tíu mínútur og hann sagðist
ekki vita það. Ég lofaði þá sjálfum mér að kaupa
nýju skóna annars staðar. Þegar ég fór í íþrótta-
búðina í Kringlunni daginn eftir brá mér heldur
betur í brún þegar ég sá til sölu samskonar takka-
skó og ég hafði keypt í Jóa útherja á meira en
helmingi lægra verði. Við það að fara í aðra verslun
var kominn sparnaður upp á heilar 10.000 krónur.
Ég fékk áfall þegar ég byrjaði að velta fyrir mér
hvað ég hefði hugsunarlaust eytt miklu fé í fok-
dýra hluti í Jóa útherja sem var hægt að kaupa fyrir
lítið fé í öðrum búðum. Ég hugsaði síðan af miklu
þakklæti til afgreiðslumannsins í Jóa útherja fyrir
að hafa bæði verið óliðlegur og dónalegur við mig,
því annars hefði ég aldrei farið í aðra búð til að
kaupa skó. Óliðlegheitin hafa líklega til langs tíma
litið sparað mér stórfé. Dónaskapur fólks er aug-
ljóslega hollur, hann fær mann til að hugsa.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Dásamlegi dónaskapur
Dónaskapur er oft-
ast flokkaður sem
löstur hjá fólki en
er kannski sam-
félaginu bráðnauð-
synlegur.
16. september
Söngfuglar er
ferðalag aftur
til fortíðar með
sögum, söng og
kaffitári með súkkulaði. Jana
María og Ívar Helgason ásamt
hljómsveit taka höndum saman
og fara yfir þekkt pör íslenskrar
dægurlagasögu á tónleikum í all-
an vetur í Salnum Kópavogi og í
Hofi á Akureyri. Tónleikarnir í
Salnum hefjast kl. 20.
17. sept.
Galdrakarlinn í Oz, einn vinsæl-
asti fjölskyldusöngleikur allra
tíma, frumsýndur í Borgarleik-
húsinu. Sígilt ævintýri um Dóró-
teu sem leggur
upp í langferð
til Gimsteina-
borgarinnar
handan regn-
bogans.
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið okkar
Fjölskyldan Bjarkarási 13