SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Qupperneq 4
4 11. september 2011
„Ég fagna hverju litlu skrefi og vona að þau verði
fleiri,“ segir Árni Grétar Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samtakanna 78, um vatnaskilin í
Bretlandi en sem kunnugt er mega samkynhneigðir
karlar ekki gefa blóð á Íslandi. „Bretland er eitt af
fyrstu löndunum til að milda þetta bann og vonandi
hefur það keðjuverkandi áhrif. Ein helstu rök blóð-
bankans hér heima hafa til dæmis verið að um al-
þjóðlegar reglur sé að ræða.“
Að áliti Árna Grétars hefðu Bretar þó mátt stíga
skrefið til fulls, tólf mánaða ákvæðið sé með öllu
óþarft. „Auðvitað er eðlilegt að blóðbankar vilji
halda uppi ströngu eftirliti en að líta á homma sem
sérstakan áhættuhóp er eldgömul og úrelt vitleysa.
Það er sjálfsagt að strangari reglur gildi um blóð-
gjafa sem stunda áhættuhegðun í kynlífi en kyn-
hneigð kemur því máli ekkert við.“
Ungur maður lagði fyrr á þessu ári fram stjórn-
sýslukæru vegna þess að honum var meinað að gefa
blóð og bíður Árni Grétar spenntur eftir niðurstöðu
dómstóla. „Draumastaðan er samt að blóðbankinn
breyti þessum úreltu reglum áður en til þess kemur.“
Vonandi hefur þetta
keðjuverkandi áhrif
Árni Grétar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samtak-
anna 78, segir tímabært að breyta úreltum reglum.
F
rá og með 7. nóvember næstkomandi
mega samkynhneigðir karlmenn gefa
blóð í Bretlandi – að því tilskildu að þeir
hafi ekki haft mök við annan karlmann
næstu tólf mánuði á undan. Gildir þá einu hvort
smokkurinn var notaður eður ei. Viðbrögð við
tíðindunum eru blendin, mannréttindasamtök
fagna stefnubreytingu stjórnvalda en harma að
ekki sé gengið lengra. Fráleitt sé að krefjast þess
að samkynhneigðir karlmenn þurfi að neita sér
um kynlíf í heilt ár til þess að geta gefið blóð.
Samkynhneigðum karlmönnum var stranglega
bannað að gefa blóð í Bretlandi fyrir lífstíð með
lögum sem sett voru á níunda áratug síðustu ald-
ar í kjölfar þess að HIV-faraldurinn breiddist út
eins og eldur í sinu.
Harmar tólf mánaða bannið
Mannréttindafrömuðurinn Peter Tatchell, sem
barist hefur fyrir lagabreytingunni í tvo áratugi,
fagnaði tíðindunum í vikunni en lagði þunga
áherslu á, að ekki væri búið að girða fyrir alla
mismunun. „Þessi nýja stefna er til mikilla bóta.
Gamla löggjöfin var afar óréttlát. Ég harma hins
vegar tólf mánaða bannið, þetta er alltof langur
tími,“ segir Tatchell í samtali við breska dag-
blaðið The Guardian. Hann vill að banninu sé al-
farið lyft af samkynhneigðum karlmönnum að
því gefnu að þeir noti ávallt verjur þegar þeir
njóta ásta.
„Fæstir sam- og tvíkynhneigðir menn eru með
HIV og munu aldrei verða með HIV. Stundi þeir
alltaf öruggt kynlíf með smokk, eigi bara einn
ástmann og mælist HIV-neikvæðir er ekkert því
til fyrirstöðu að þeir gefi blóð. Það ber að leyfa
þeim að bjarga mannslífum með blóðgjöf,“ segir
Tatchell.
Sérstök nefnd um blóðöryggi á vegum breskra
stjórnvalda fór nýlega yfir löggjöfina og komst að
téðri niðurstöðu og nú hafa heilbrigðisráðherrar
Englands, Skotlands og Wales fallist á hana.
Nefndin ráðfærði sig við ýmsa sérfræðinga og sá í
hendi sér að ekki væri lengur grundvöllur fyrir
því að banna körlum sem notið hafa annarra
karla að gefa blóð. Meðal þátta sem hafðir voru til
hliðsjónar við ákvörðunina var ný og áreiðanlegri
tækni við blóðskimun og líkurnar á því að smit
geti borist milli manna við blóðgjöf.
Samkynhneigðir karlar eru ekki eini þjóð-
félagshópurinn sem lúta þarf tólf mánaða bann-
inu en samkvæmt núgildandi lögum á þetta líka
við um konur sem sængað hafa hjá karlmanni
sem haft hefur mök við annan karlmann, fólk
sem leitað hefur á náðir vændiskvenna og fólk
sem haft hefur samfarir við sprautufíkla.
Blóðgjöf er líflína
Anne Milton, heilbrigðisráðherra Breta, lagði í
vikunni áherslu á, að fólk færi af kostgæfni eftir
lögum og reglum varðandi blóðgjöf, það væri
bæði blóðgjöfum og blóðþegum fyrir bestu.
„Blóðgjöf er líflína,“ sagði hún. „Án hennar
mundu mörg okkar ekki hafa ástvini sína sér við
hlið í dag. Eðli málsins samkvæmt þarf hins vegar
að gæta fyllsta öryggis.“
Þetta par má senn gefa blóð í Bretlandi. Bara engin rekkjubrögð fyrst.
Reuters
Kynsveltir
blóðgjafar
Samkynhneigðir karlmenn í
Bretlandi mega gefa blóð á ný
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Blóðgjöf hefur bjargað ófáum mannslífum.
Samkynhneigðir karlar eru
ekki eina fólkið sem ekki hef-
ur mátt gefa blóð í Bretlandi.
Fólki sem smitast hefur af
sárasótt, HTLV, lifrarbólgu B
og C verður áfram bannað að
gefa þar blóð. Eins vænd-
iskonum og fólki sem ein-
hverju sinni hefur sprautað
sig með fíkniefnum. Nei takk, væna, ekki blóð úr þér!
Reuters
Vilja ekki
vændiskonur
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið mitt
Ragna Árnadóttir,
lögfræðingur