SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Page 15

SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Page 15
11. september 2011 15 G uð minn góður! Þetta er hryðjuverkaárás!“ Ég var að heyra að önnur flugvél hefði stungið sér inn í World Trade Center í New York. Hálftíma síðar átti ég eftir að komast að því að enn ein vélin hefði rekist á Pentagon. „Þú þarft að fara í byrgið núna!“ æpti leyniþjón- ustumaðurinn á mig. „Það eru vélar að fljúga á bygg- ingar út um alla Washington-borg. Hvíta húsið hlýtur að vera næst.“ Ég var hér um bil hrifin á loft og ýtt í átt að neyð- armiðstöð forsetaembættisins, ég nam staðar til að hringja í Bush forseta. „Þú getur ekki komið aftur hingað,“ sagði ég. „Ég er að koma,“ svaraði hann. „Vertu kyrr þar sem þú ert,“ sagði ég og hækkaði röddina með þeim hætti sem ég hafði aldrei áður gert við forseta Bandaríkjanna og myndi aldrei gera aftur. „Ráðist hefur verið á okkur, ég meina Bandaríkin.“ Fyrir okkur embættismennina var eins og tíminn hefði stöðvast þennan dag. Fyrir okkur og fjölskyldur fórnarlambanna hafa allir dagar síðan verið 12. sept- ember. Hugmyndir okkar um öryggi og hvað þarf til að verja landið hafði breyst fyrir lífstíð. Bandaríkin, mesta her- og efnahagsveldi í heimi, hafði orðið fyrir voðalegri árás. Og hún hafði verið framkvæmd af landlausum hópi öfgamanna sem gerði út frá svæði sem var á þeim tíma brostið ríki, Afganistan. Mánuðina eftir árásina veltum við dýpstu rót orsak- anna aftur og aftur fyrir okkur. Hverjir gátu verið haldnir svo djúpstæðu hatri að þeir fengust til að fljúga flugvél inn í byggingar á þessum bjarta sept- emberdegi? Tíu árum síðar liggur fyrir að 11. september gerði það að verkum að nauðsynlegt er að efla lýðræðið á heimsvísu og styðja dyggilega við bakið á pólitískum stofnunum. Árið 2002 kom hópur arabískra fræðimanna saman á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og sendi frá sér þró- unarskýrslu, þar sem bent var á þrjú atriði – virðingu fyrir frelsi mannsins, valdleysi kvenna og aðgang að þekkingu – sem standa framförum milljóna manna fyrir þrifum. Þessi atriði gera meiri miska: Þau valda vonleysinu sem aftur skapar tómarúmið sem öfgar og hatur streyma inn í. Þetta er tengingin milli þess sem átti sér stað 11. september og þarfarinnar fyrir lýðræðislegar umbætur í Mið-Austurlöndum. Í sextíu ár sóttust Bandaríkin eftir stöðugleika á kostnað lýðræðis með því að styðja ógnarstjórnir. Við hefðum átt að vita betur. Hafi fólk engar leiðir til að láta stjórnvöld sæta ábyrgð með friðsamlegum breytingum mun það grípa til ofbeldis. Það er engin tilviljun að best skipulögðu pólitísku öflin í Mið-Austurlöndum í dag eru öfga- hópar. Einræðisherrarnir bönnuðu stjórnmál á al- menningstorgum og fyrir vikið hörfuðu „stjórnmálin“ inn í róttækar moskur og madrössur. Nú þurfa sönn pólitísk öfl – sem munu verja kven- réttindi og hafa umburðarlyndi gagnvart trú og þjóð- erni – tíma til að skipuleggja sig og fylla í tómið. Ein- ræði verður einfaldlega ekki liðið. Eins erfitt og ferðalagið í átt að lýðræði gæti orðið er það eina leiðin sem færir okkur raunverulegan stöðugleika. Víg Osamas bin Ladens einungis fáeinum mánuðum áður en áratugur er liðinn frá árásunum 11. september og sprengingin sem arabíska vorið hefur haft í för með sér á umliðnum mánuðum draga saman lærdóm- inn af þessum hörmulega degi. Ofstæki mun láta und- an um leið og almenningur finnur lögmætar leiðir til að hafa áhrif á sína eigin framtíð. Ég hef enga trú á því að ofstækið verði ofan á þegar opnar rökræður verða leyfðar á torgum. Pólitískar stofnanir munu líta dagsins ljós – veik- burða í fyrstu en á endanum verða þær nauðsynlegar til að skilgreina sambandið milli ríkisvaldsins og rétt- inda einstaklingsins. Í Bagdad og Kabúl er almenningur að reyna að nota hinar nýju lýðræðislegu stofnanir til að tryggja frjáls- um konum og körlum betra líf. Leiðin er löng en menn eru í það minnsta á réttri braut með stjórn- arskrám sem skilgreina sambandið milli þeirra sem stjórna og þeirra sem fallast á að vera stjórnað. Fólkið sem upplifir nú leiftur af frelsi í Egyptalandi, Líbíu, Sýrlandi, Túnis og þvert yfir Mið-Austurlönd er rétt að byrja að byggja upp stofnanir sem munu tryggja því frelsi. Sumstaðar eru einræðisherrar að reyna að fresta falli sínu. Hægt er að tefja frelsið en ekki hafna því. Eftir 11. september höfum við gert okkur grein fyrir því að ekkert ríki getur verið öruggt í einangrun og að hjálpa brostnum ríkjum að gróa sára sinna er ekki lengur bara spurning um örlæti – nú er það nauðsyn. Fyrir vikið hafa Bandaríkin fylgt utanríkisstefnu sem er jafn praktísk og hún er samúðarfull og um- myndandi: Við hvetjum til efnahagslegrar og fé- lagslegrar þróunar, við beitum okkur fyrir því að hin- um auðsærðu verði færð aukin völd og veitum þeim skjól og berjumst fyrir siðmenntuðum og á endanum friðsamlegri heimi. Þessi hugsjón gengur þvert á stjórnmálaflokka og er í raun hornsteinn bandarísks samfélags og þeirra, sem við Bandaríkjamenn erum fulltrúar fyrir. Á næstu dögum verður fólks sem týndi lífi 11. sept- ember minnst af fjölskyldum, vinum, samborgurum og samúðarfullu fólki um heim allan. Enginn verður vakinn aftur til lífsins – eftir standa syrgjandi for- eldrar og börn, eiginmenn og -konur, bræður og systur, sem verða aldrei að fullu heil á ný. En mögulega er einhver huggun í því fólgin fyrir þetta fólk – okkur öll – að hörmungarnar sem dundu yfir þennan dag höfðu djúpstæða merkingu. Vegna þolgæða Bandaríkjanna er 11. september hvorki dag- setning sem minnir okkur á ósigur eða vanmátt né meinta hnignun stórveldis. Það er dagsetning sem hvetur okkur, í sorg og sigri, til að lýsa því yfir að frelsið muni verða ofan á. Mörg okkar njóta þeirrar guðsblessunar að vera frjáls. Það er hlutverk okkar og skylda að unna okkur ekki hvíldar fyrr en það á við um heim allan. Condoleezza Rice var utanríkisráðherra Bandaríkjanna frá 2005 til 2008. Hún var öryggisráðgjafi forsetans frá 2001 til 2005. Hún er prófessor í stjórnmálahagfræði við Stanford-háskóla í Kaliforníu; yfirmaður á sviði stefnumótunar við Hoover-stofnunina þar; og prófessor í stjórnmálafræði við háskólann. Ný bók hennar, No Higher Honor, kemur út 1. nóvember næstkomandi. 11. september 2001 var Rice á skrifstofu sinni í vest- urhluta Hvíta hússins þegar aðstoðarmaður hennar upp- lýsti hana um árásirnar á World Trade Center. Lýðræðið mun sigra Í sextíu ár sóttust Bandaríkin eftir stöðugleika á kostnað lýðræðis með því að styðja ógnarstjórnir. Við hefðum átt að vita betur. Condoleezza Rice Condoleezza Rice ásamt George W. Bush þáverandi for- seta Bandaríkj- anna. Rice var ör- yggisráðgjafi Bush þegar árásirnar voru gerðar. Örvænting og skelfing greip að vonum um sig í nágrenni World Trade Center 11. september fyrir tíu árum. Hér hjálpar slökkviliðsmaður vegfarendum í burtu. Reuters © The New York Times 2011.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.