SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Side 18
18 11. september 2011
Þ
egar fólk rifjar upp hvar það var þegar það frétti
af hryðjuverkaárásunum 11. september 2001
kalla flestir fram minningar um hver það var
sem hringdi og sagði þeim að kveikja á sjón-
varpinu, hvar þeir voru að horfa á atburðinn og með
hverjum. Það voru ekki margir Íslendingar sem voru
staddir í miðjum harmleiknum og hvað þá sem aðstoð-
uðu við björgunarstörf fyrstu dagana á eftir. Gunnlaugur
Erlendsson lögfræðingur gerði það aftur á móti og settist
niður með okkur og rifjaði upp erfiða lífsreynslu sína.
„Þegar ég fékk hringingu og var beðinn að kveikja á sjón-
varpinu var norðurturninn alelda og ég vissi í raun ekkert
hvað hafði gerst. Ég bjó þarna rétt hjá og hljóp upp á þak
á heimili mínu og sá turninn í ljósum logum. Þegar ég var
rétt kominn upp þá fór önnur flugvélin í hinn turninn. Ég
sá sprenginguna þó að ég hafi ekki séð flugvélina sjálfa
fljúga inn í turninn. Ég horfði á þetta ásamt nágrönnum
mínum sem ég þekkti ekki neitt og við horfðum á fólk
sem var að stökkva úr byggingunni. Það kaus frekar að
hrapa og deyja þannig en að verða eldinum að bráð.“
Það stóð ekki á Gunnlaugi að hjálpa til og skráði hann
sig strax á lista yfir sjálfboðaliða. Hann var síðan einn af
fáum útvöldum sjálfboðaliðum sem voru valdir í björg-
unarstörf inn á Ground Zero þar sem 90% þeirra sem
voru þar við störf voru slökkviliðsmenn og lögreglumenn
New York-borgar. „Ég á ekki enn í dag næg orð til að lýsa
almennilega þeirri hrikalegu sýn sem blasti við mér þegar
ég gekk inn á Ground Zero. Á þeim tímapunkti upplifði
maður hversu mikil eyðilegging þetta var. Þetta var al-
gjör hryllingur, það voru líkamspartar á víð og dreif,
steypuvirki og stólpar út um allt og á þeim stóðum við og
vorum að reyna að bera líkpoka. Helsta von björg-
unarsveitarmanna var að finna eftirlifendur á svæðunum
í kringum turnana, sérstaklega þar sem slökkviliðsmenn
höfðu haft bækistöðvar og þar sem fólk taldi sig hafa ver-
ið í skjóli rétt áður en turnarnir hrundu. Það hafði fundist
fólk á lífi fyrsta daginn en ekkert eftir það. Maður fann
fyrir því að slökkviliðsmennirnir voru sérstaklega að leita
eftir sínum vinum og félögum. Við vorum með hunda og
hljóðmæla og fleiri hjálpartæki og í hvert skipti sem við
töldum okkur heyra eitthvað var allri vinnu hætt til að
hlusta betur og við byrjuðum að grafa á þeim stað sem við
töldum að hljóðið hefði komið frá. Magnið af rusli var svo
mikið og hindranirnar alls staðar svo óyfirstíganlegar.
Við þurftum að standa í löngum röðum og flytja þannig á
milli það sem þurfti að nota inni á svæðinu eins og til
dæmis vélsagir og fleiri verkfæri og svo þegar við vorum
að flytja hluti frá svæðinu komu líkpokarnir til baka með
öllum líkamspörtunum.“
Nályktin grefur sig í minnið
Viðburðarásin sjálf er þó ekki það sem hefur grafið sig
helst inn í minni Gunnlaugs heldur er það lyktin. „Ég get
enn fundið hana ef ég loka augunum. Það var lykt af
brunnum líkamsleifum í bland við lykt af rotnandi lík-
um. Fólk gerði sér alveg grein fyrir því hvaðan þessi lykt
var.“
Gunnlaugur var með grímu á sér við björgunarstörfin
en margir kusu að sleppa grímunum þar sem erfitt
reyndist að anda í gegnum þær í hitanum. Upp hafa því
komið fjölmörg tilfelli af langvinnum lungnasjúkdómum
hjá þessum einstaklingum sem er beint hægt að rekja til
áhrifa frá eiturgufum á björgunarsvæðinu. Gunnlaugur
hefur blessunarlega verið laus við öll slík einkenni en
segir að í mesta hitanum hafi verið nauðsynlegt að taka af
sér grímuna stöku sinnum.
Lífsreynsla sem þessi markar vissulega djúp spor í sálu
þess er reynir en Gunnlaugur segir það forréttindi að hafa
fengið tækifæri á að vinna við björgunarstörfin á Ground
Zero. „Maður fann að maður vildi gera allt sem maður
gæti til að hjálpa til og svo fann maður til með slökkvi-
liðsmönnunum sem voru að leita að sínu samstarfsfólki
og félögum. Við vissum ávallt að við værum í kapphlaupi
við tímann, og langt fram á nótt héldum við áfram að
„Þetta
var algjör
hryllingur“
Gunnlaugur Erlendsson við björgunarstörf á Ground Zero eftir 11. september.
Það er ekki skrítið að verkefnið hafi þótt óyfirstíganlegt í fyrstu þegar innsýn fæst í aðstæður við björgunaraðgerðirnar á Ground Zero.
Gunnlaugur Erlendsson var
meðal björgunarsveitarmanna
á „Ground Zero“ eftir 11. sept-
ember. Hann hefur átt erfitt
með að horfast í augu við
reynslu sína sem hefur haft
djúpstæð áhrif á hann.
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is
Páll Ásgeir Davíðsson lögfræðingur var í meistaranámi hjá
Columbia-háskóla þegar árásirnar voru gerðar á Tvíbura-
turnana World Trade Center á Manhattan. Columbia-
háskólinn er einnig á Manhattan-eyjunni en norðarlega á
meðan World Trade Center var sunnarlega. „Í fyrstu árás-
inni á turnana var ég heima hjá mér, nývaknaður og var á
leiðinni í skólann,“ segir Páll Ásgeir. „Ég var hvorki með
kveikt á útvarpi né sjónvarpi og varð fyrst ekki var við neitt
nema það að gemsinn minn virkaði ekki. Ég bjó í Harlem og
ætlaði með neðanjarðarlestinni í skólann en þá var búið að
loka henni. Það var tómt vesen að koma sér í skólann og
ég skildi ekki af hverju. Árið á undan hafði ég verið að vinna
við ömurlegar aðstæður í Kosovo og ég man að ég hugsaði
með mér; hvaða þriðja heims ríki er þetta, það virkar ekki
neitt hérna, þetta er eins og í Kosovo? Ég komst loksins í
skólann og fann reyndar strax að það var einhver und-
arlegur andi í byggingunni. Mér leið mjög
illa með það að vera að koma of seint.
Inngangurinn inn í kennslustofuna er ein-
mitt þar sem kennarinn stendur og er að
þylja yfir nemendum, þannig að maður
þarf eiginlega að ganga framhjá honum.
Ég ryðst inn með afsökunarorð á vörum
en þá er enginn kennari þar. Allir sitja í
salnum og horfa á risaskjá sem er á
veggnum þar sem er verið að sýna beint
frá Tvíburaturnunum. Þar sem ég stend
þarna og horfi á þetta, nýkominn inn kemur akkúrat flugvél
númer tvö og flýgur á hinn turninn. Það var lamandi þögn í
salnum þegar það gerðist. Menn vissu ekkert hvað var að
gerast.
Þetta var svo skrítin tilfinning að við værum þarna rétt
hjá þessum atburðum en samt með þennan skjá á veggn-
um og í einhverri öruggri fjarlægð.
Ég reyndi að finna símalínu sem virkaði og náði því og lét
vita heim að ég væri í lagi en svo vorum við nemendurnir
eitthvað að spjalla um þetta, en það voru allir svo undrandi
og vissu ekkert hvað væri í gangi.
Á leiðinni heim var mjög sérstök stemning í strætisvagn-
inum, því allt í einu var enginn einn á leiðinni heim eins og
oftast. Því allt í einu vorum við orðin skotmörk og því orðin
að einhverri heild. Business-fólk, námsmenn eða hver sem
var í strætisvagninum var ekki einn. Maður tók eftir öllum í
kringum sig og það fundu allir fyrir mikilli samkennd. Ein-
hver fremst í vagninum reyndi að fá fólk til að sameinast í
bæn en það gekk illa.
Ein stór kona aftast í strætisvagninum kallaði hátt til
hans og allra í strætóinum: „Ég veit ekki hvað þið ætlið að
Að sjá manneskjurnar hoppa útúr turnunum
Páll Ásgeir
Davíðsson