SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 40
40 11. september 2011
E
f þú hefur ekki prófað það á eigin skinni
hefur þú í það minnsta örugglega séð eina
eða tvær bíómyndir úr Hollywood-
smiðjunni þar sem aðalpersónan grætur
yfir óhamingju sinni og borðar beint upp úr ísdós-
inni með skeið. En þetta, gott fólk, er líka raun-
veruleikinn og stundum er það bara eins og stór
plástur á sálina að gúffa í sig. Það má líka bara alveg
stundum. Ég meina ég trúi því ekki að neinn komist
t.d. í gegnum erfiðan dag, ósofin/n og í ástarsorg
eingöngu á hveitigrasi og hrökkbrauði? Það er ynd-
islegt og hollt og gott flesta daga, bara ekki akkúrat
þennan. Þessu var ég öllu saman að velta fyrir mér
þar sem ég stóð á beit í eldhúsinu hjá móður minni
og graðgaði í mig upp úr syndsamlega stórum poka
af hnetusírópssalt-einhverju í litlum ferningum. Ó
þvílík sæla og ég sem var ekki einu sinni leið heldur
bara í fínasta skapi. Þetta undur sem hún hafði fjár-
fest í bætti olíu á eld … Svo fór ég að hugsa um hvað
skyldu nú vera margar kaloríur í þessu. Eftir að hafa
reiknað það út (ok, lét bróður minn reikna það út)
sá ég að vissara yrði að borða ekki mikið meira en
fimm ferninga á dag. Ja, nema maður myndi bara
borða þetta á erfiðum degi og klára þá hálfan poka.
Þá væru kaloríurnar svo margar að þær myndu
mæta dagsþörf minni. Pælið í því. Matvælafram-
leiðendur eru eiginlega að lokka fólk í gildru með
því að selja gotterí í svona stórum pakkningum. Því
að þegar gúffið byrjar er engin leið til baka og þess
vegna betra að hafa pakkninguna minni. En auðvit-
að getur maður alltaf keypt fleiri en eina …
Sæla í stórum skömmtum
Fjórar skálar af ís? Já takk, ég ætla að fá þær allar í þetta skiptið !!!
Á erfiðum dögum ætti maður
að leyfa sér að gúffa dálítið í
sig og gera líkamann syk-
urklístraðan að innan.
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
.
Litrík tíska
Þó að haustið sé
komið er algjör
óþarfi að troða
sumarfötunum
strax inn í skáp.
Njóttu þess að
ganga í litríkum föt-
um þó að veðrið sé
ekkert spes. Á slík-
um dögum er minnsta
málið að smella bara
gollu yfir græna sum-
arkjólinn.
Æsandi púkaskapur
Ekki gleyma kitlinu í
svefnherberginu. Kitl
æsir taugarnar en er
líka skemmtilegt. Enda
er mikilvægt að hlæja innilega.
Kitlum, stríðum og púkumst.
Hugleiðsla með tónlist
Notaðu tónlist til að tjá tilfinn-
ingar þínar, komdu þér þægilega
fyrir og settu djass eða klassíska
tónlist á. Einbeittu þér að
ákveðnum hljóðfærum og
stefnum og fylgdu eftir há-
punkti og lágpunkti verks-
ins.
1001 Leið til að slaka á,
Susannah Marriot, Salka.
Kistan
Lífsstíll
Síðustu vikur hef ég setið límd við skjáinn og horft á Love Bi-
tes. Ekki eru þetta bara skemmtilegir þættir heldur líka fræð-
andi. Það ku t.d. alls ekki vera góð hugmynd að baka fyrir
gaur sem þú ert bara búin að fara með á nokkur stefnumót.
Já, þú heyrðir rétt. Bananabrauð gæti hrætt hann svo mikið
að hann hleypur í burtu á harðaspretti. Ég er svo sem enginn
Dr. Love en það er eitthvað til í þessu, býst ég við. Nostur við
bakstur sendir augljóslega út skilaboð um staðfestu, langan-
ir til hreiðurgerðar og dugnaðar á heimilinu. Er nema von að
blessaður maðurinn verði skelfingu lostinn? Úff, bananabrauð
segir greinilega meira en milljón orð. Maður gæti allt eins
mætt bara í brúðarkjól á deit fimm samkvæmt þessu.
Ég er farin heim að henda hveitinu og lyftiduftinu ...
Áhættusamur bakstur
Fullkomið kombó
Það þarf ekkert endilega að vera bolludagur til að baka
vatnsdeigsbollur. Þær eru nefnilega alveg tilvaldar sem
gómsætur eftirréttur. Ekki skemmir heldur fyrir að þeim
er hægt að raða svo sjónrænt upp að matargestirnir
þínir fái vatn í munninn um leið og þeir sjá vatns-
deigsbolluturn á fallegum disk. Prófaðu þig áfram
með fyllingar. Vanillurjómi með jarðarberjum og
bláberjum er skotheldur en þú getur líka prófað
að sulla smá líkjör út í rjómann. Þess vegna að
nota ís, það er hægt ef maður hefur bara dálítið
hraðar hendur. Karamella bráðnar líka í munn-
inum, notaðu nóg af rjóma og súkkulaði inn í
bollurnar og toppaðu síðan allt saman með því
að hella volgri, heimagerðri karamellu yfir. Mundu
svo að vatnsdeigsturninn þarf ekki að vera fullkom-
inn og það er allt í lagi að sulla dálítið út fyrir. Það er
bara girnilegra ef eitthvað er.
Það er mjög gott að nota hnetusmjör í ýmsa
matargerð. Satay-sósa væri til að mynda ekki
söm án hnetusmjörs og það er líka hægt að
nota í bakstur. Svo er hnetusmjör líka gott
ofan á hafrakex eða ristað brauð með smá-
banana. Hnetusmjörið má meira að segja
nota í smoothie og blanda þá saman við ab-
mjólk eða skyr, banana og klaka.
Fínasta blanda á letilegum
helgarmorgni. Fyrir alla þá
sem unna hnetusmjöri
má benda á vefsíðu
hnetusmjörselsk-
enda, www.peanut-
butterlovers-
.com. Þar er til
að mynda að
finna upp-
skriftir að girni-
legum hnetu-
smjörs- og
súkku-
laðismákökum
og hnetusmjör-
sostaköku. Það er
ekki erfitt að fá
vatn í munninn yfir
slíku góðgæti.
Hnetusmjörs-elskendur