SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 43
11. september 2011 43
sem hafa náð langt í kvikmyndageir-
anum. Tekur Jón Agnars fram að það sé
ekkert launungarmál að það halli að
ósekju á konur í kvikmyndabransanum,
eins og víðast hvar annars staðar, alveg
sama hversu vel þær standi sig.
„Ef við getum lagt pínulítið lóð á vog-
arskálarnar þannig að þær jafnist aðeins
upp þá er okkur það jafn ljúft og það er
skylt að sýna þá viðleitni,“ segir Jón
Agnar. Bendir hann á þá ánægjulegu
staðreynd að fjöldi kvenleikstjóra á RIFF
2011 sé óvenjumikill. „Það var hins vegar
ekki meðvituð ákvörðun að velja fleiri
myndir eftir kvenleikstjóra, enda þarf
alltaf að velja myndir einvörðungu út frá
gæðum þeirra. Dagskrárstjórinn okkar,
Giorgio Gosetti, hefur haft á orði að
greinilegt sé að þetta sé góður árgangur
af bíómyndum sem leikstýrt er af kon-
um,“ segir Jón Agnar og tekur fram að
vonandi sé það eitthvað sem sé komið til
að vera. Þess má geta að í ár voru alls um
900 myndir sendar á hátíðina í von um
að þær yrðu sýndar og er það nýtt met.
Í fyrra voru sýndar um 140 myndir á
RIFF en í ár eru myndirnar ríflega 100.
Spurður hvort það sé til marks um
breyttar áherslur svarar Jón Agnar því
neitandi. „Við leggjum sem fyrr áherslu á
vandaða og óháða alþjóðlega kvik-
myndagerð. Við höfum alltaf að leið-
arljósi að við reynum að hampa ungum,
efnilegum og upprennandi kvikmynda-
gerðarmönnum og til marks um það ein-
skorðum við keppnisflokkinn okkar við
fyrstu og aðra mynd leikstjóra. Þannig að
áherslurnar og sjónarmiðin við dag-
skrárgerð hátíðarinnar breyttust ekki
milli ára. En í fyrra vorum við með fleiri
titla en nokkru sinni og komumst að því
að meira er ekki endilega betra. Ekki af
því að meðalgæði myndanna hafi fallið í
öllum þessum fjölda, heldur kom fólk að
máli við okkur og sagðist ekki hafa náð
að sjá allt sem það vildi sjá. Það var ein-
faldlega of oft sem valkreppa gerði vart
við sig og bíóáhugafólk var að missa af
myndum af því að það gat ekki verið á
tveimur stöðum í einu. Við vildum því
raða dagskránni þannig upp að fólk þyrfti
ekki mikið að vera að velja og hafna. Með
það fyrir augum drógum við eilítið saman
milli ára sem um leið gerir reksturinn
þeim mun auðveldari.“
Heimildamyndir vinsælastar
Aðspurður segir Jón Agnar heim-
ildamyndir alltaf hafa verið best sóttu
myndirnar á RIFF, en í ár er helmingur
mynda hátíðarinnar heimildamyndir.
„Sökum þessa höfum við fjölgað flokk-
unum þegar kemur að heimildamyndum
og eru þeir núna orðnir alls fimm, hver
með sitt þema,“ segir Jón Agnar. Í flokki
náttúrumynda má sjá Force of Nature:
The David Suzuki Movie eftir Sturlu
Gunnarsson, í flokki mannréttinda-
mynda eru m.a. Aung San Suu Kyi: Lady
of No Fear eftir Ane Gyrithe Bonne og
Bobby Fischer Against the World eftir
Liz Garbus, í flokki tónlistarmynda má
sjá LennoNYC eftir Michael Epstein, í
flokki menningarmynda má sjá The
Black Power Mixtape 1967-1975 eftir
Göran Hugo Olsson og í flokki mat-
armynda má sjá El Bulli: Cooking in pro-
gress eftir Gereon Wetzel.
’
Við leggjum sem fyrr
áherslu á vandaða og
óháða alþjóðlega
kvikmyndagerð. Við höfum
alltaf að leiðarljósi að við
reynum að hampa ungum,
efnilegum og upprennandi
kvikmyndagerðarmönnum
og til marks um það ein-
skorðum við keppnisflokk-
inn okkar við fyrstu og aðra
mynd leikstjóra.“
Faust eftir Aleksandr Sokurov er ekki hefðbundin aðlögun á harmleik Goethes, heldur túlkun á því sem má lesa milli línanna. Þetta er fjórða
myndin í seríu Sokurovs um valdspillingu, en hinar voru um Hitler, Lenín og Hirohito keisara. Myndin var að hluta tekin upp hér á landi.
Hesturinn í Tórínó nefnist svanasöngur Béla Tarr. Þar eru rakin afdrif hestsins sem heimspekingurinn Friedrich Nietzsche bað griða þegar
hann sá gamlan mann berja á hestinum í upphafi árs 1889. Atburðurinn markaði upphafið á tíu ára þögn Nietzsches sem varði til æviloka.
Myndin 18 dagar, sem sýnd er í flokknum Arabískt vor, er safn tíu stuttra heimildarmynda
sem fjalla um byltinguna í Egyptalandi í upphafi þessa árs sem leiddi til afsagnar Mubaraks.