SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Side 44
44 11. september 2011
Bradley Sands – RICO SLADE WILL FUCKING
KILL YOU bbbnn
Rico Slade er heljarmenni að burðum, ofursnjall
og öflugur. Hann berst við illmenni og gerir það
betur en aðrir, rífur af þeim handleggina og lem-
ur til bana með þeim, töffari dauðans, ósigrandi
og óstöðvandi. Þá gerist það að maðurinn á bak
við Rico Slade, Chip Johnston, sem lítur út alveg
eins og hann, sköllóttur, dauðþreyttur af sífelldu
þrælaríi og allt í rugli í einkalífinu, fær taugaáfall
og persónurnar renna saman í eina; hvenær er
það Rico Slade sem er að berjast við tæknivædd
illmenni og hvenær er það Chip Johnston sem er að ráðast á fólk í
símabúð og getur verið að elskhugi Chips sé líka stórhættulegur
fjandi Rico Slade? Þetta er býsna harkaleg saga af því þegar raun-
veruleikinn rekst á ímyndaðan heim hasarmynda og getur ekki farið
nema illa. Fáránlega ofbeldisfull og fyndin.
Jonathan Kellerman – Mystery bmnnn
Bókaröð Jonathan Kellerman um sálfræðinginn
Alex Delaware er orðin býsna löng, Mystery er
25. bókin þar sem Delaware er í aðalhlutverki. Í
einni bók er það svo lögregluforinginn Milo
Sturgis sem ræður ferðinni, en hann er annars
næstráðandi í hinum bókunum öllum. Þeir sem
lesið hafa flestar eða jafnvel allar hinar Delaw-
are-bækurnar verða ekki sviknir af þessari bók
og ættu að hætta að lesa þessa umsögn núna.
Málið er nefnilega það að Kellerman er einkar
óáhugaverður spennusagnahöfundur. Líkt og vill verða með form-
úlupersónur hafa þeir Delaware og Sturgis ekkert breyst í þau
fimmtán ár sem þeir hafa starfað saman, samskipti þeirra gervileg og
verða ótrúverðugri eftir því sem maður les fleiri reyfara þar sem þeir
koma við sögu. Ég áttaði mig á því þegar komið var inn í miðja bók
að ég er orðinn dauðleiður á Delaware.
Lee Child – Second Son bbnnn
Það segir sitt um vinsældir Lee Child víða um
heim að næsta bók hans siglir óðfluga upp vin-
sældalista mánuði áður en hún kemur út og eins
að á toppnum í rafbókabúð Amazon sé smásagan
sem hér er gerð að umtalsefni, Second Son. Sú
segir frá því er hetjan Jack Reacher er þrettán ára
og nýkominn til Okinava með foreldrum sínum,
en faðir hans er háttsettur í bandaríska hernum
og sífellt á ferðinni með fjölskylduna. Flutning-
arnir til Okinava eru fertugustu flutningar fjöl-
skyldunnar. Sagan gefur ekki svo mikið upp um hinn unga Reacher
og hvernig hann varð eins og hann er, en er skemmtileg sem slík,
ágætis upphitun fyrir væntanlega bók.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Erlendar bækur
Eymundsson
1. Clash of Kings - George
R.R. Martin
2. Game Of Thrones - George
R.R. Martin
3. Storm of Swords - George
R.R. Martin
4. Port Mortuary - Patricia
Cornwell
5. Family Ties - Danielle Steel
6. Helĺs Corner - David Bal-
dacci
7. The Cobra - Frederick For-
syth
8. The Stonecutter - Camilla
Läckberg
9. The Search - Nora Roberts
10. I Shall Wear Midnight -
Terry Pratchett
New York Times
1. The Help - Kathryn Stoc-
kett
2. Blind Faith - CJ Lyons
3. Second Son - Lee Child
4. Water for Elephants - Sara
Gruen
5. Flash and Bones - Kathy
Reichs
6. One Day - David Nicholls
7. The Abbey - Chris Culver
8. The Mill River Recluse -
Darcie Chan
9. Sarah’s Key - Tatiana de
Rosnay
10. A Game Of Thrones -
George R.R. Martin
Waterstone’s
1. Inheritance - Christopher
Paolini
2. One Day - David Nicholls
3. One Day - David Nicholls
4. Death Bringer - Derek
Landy
5. Snuff - Discworld Novel 39
- Terry Pratchett
6. Starter for Ten - David Nic-
holls
7. The Affair - Lee Child
8. Bloodlines - Richelle Mead
9. Death of Kings - Bernard
Cornwell
10. Last Breath - Rachel Caine
Bóksölulisti
Lesbókbækur
Eins og sjá má á bóksölulistanum
hér til hliðar þá er bandaríski rit-
höfundurinn George R.R. Martin
sannkallaður metsöluhöfundur
nú um stundir ef litið er til bóka á
ensku og við það má bæta að
sjónvarpsþættir sem byggðir eru
á verkum hans ganga nú í ís-
lensku sjónvarpi. Martin er þó
ekki bara vinsæll hér á landi,
heldur er hann nú með vinsælustu rithöfundum í
heimalandi sínu og bækur hans fljúga á topp met-
sölulista þar í landi, nú síðast A Dance with Dra-
gons, fimmta bókin í A Song of Ice and Fire-
röðinni, sem kom út í júlí og fór beint á toppinn
vestan hafs og austan. Upphaflega áttu bækurnar
að vera þrjár, eru nú fimm, eins og getið er, og að
minnsta kosti tvær koma til viðbótar. Fyrsta bókin
kom út 1996 og svo komið að fimmtán milljónir
eintaka hafa selst af bókunum.
Fyrsta bókin í sagnabálknum A Song of Ice
and Fire var einmitt Game of Thrones, sem kom
út 1996 og varð svo að umræddri sjónvarps-
þáttaröð sem frumsýnd var í vor ytra, en í haust
hér heima og menn eru þegar byrjaðir að taka upp
framhald vestan hafs.
Í sem skemmstu máli segir bálkurinn A Song
of Ice and Fire frá mannfólki sem býr í tilbúnum
miðaldaheimi, aðallega á heimsálfunni Westeros,
en einhverjir líka á álfunni Essos. Þótt aðal-
persónur séu mennskar er líka nokkuð um önnur
kvikindi í bókunum, þar á meðal óræðar ógn-
arverur frá norðurslóðum og eldspúandi dreka. Á
Westeros glíma ættir um völd og áhrif, en þurfa
líta að bregðast við hættu frá óvættum að norðan
og eins að takast á við landflótta konungsdóttur
sem hyggst snúa aftur til Westeros með óvígan her
til að heimta hásætið. Töfrar eru snar þátur í lífi
manna, en í sjónvarpsþáttunum er mjög dregið úr
þeim og úr orðið einskonar miðaldadrama á óræð-
um stað.
Það getur nærri að svo mikilli sögu, fimm
bækur með 4.223 síðum komnar og að minnsta
kosti tvær eftir, sé mikið um persónur; ef marka
má Wikipedia eru aðalpersónur, þ.e. persónur
sem rekja fleiri en einn kafla, komnar á þriðja tug
og reytingur á bara einn kafla hver. Það er líka sú
gagnrýni sem helst er beint að Martin, að hann sé
of gefinn fyrir að búa til persónur til að blása lífi í
söguna, en að sama skapi er það einmitt það sem
margir kunna helst að meta við bækurnar, að
heimurinn sem Martin býr til sé fullur af lifandi
persónum, en ekki af einni eða tveimur hetjum og
kippu af andlitslausum aukapersónum.
Þeir sem svo fá ekki nóg af persónugrúanum í
bókunum og ekki heldur í sjónvarpsþáttunum
geta unað við hasarblöð og tölvuleiki, aukinheldur
sem hægt er að kaupa af þeim styttur og myndir,
ýmsa muni og minjagripi, til að mynda vopn og
verjur í fullri stærð svo fátt eitt sé talið.
Sagan endalausa
Bandaríski rithöfundurinn George R.R. Martin er gefinn
fyrir langlokur sem sumir sýta en aðrir fagna. Hann nýtur
mikilla vinsælda hér á landi eins og sjá má á bóksölulistum.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
George R.R.
Martin
Sean Bean í hlutverki Eddards
Starks sem er ein helsta sögu-
persóna Game of Thrones, í það
minnsta framan af.