Morgunblaðið - 15.05.2010, Side 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Ekki tillaga stjórnar
Vegna fréttar um aðalfund Lög-
mannafélags Íslands í fimmtudags-
blaðinu vill Lárentsínus Kristjáns-
son, fráfarandi formaður, taka fram
að stjórnin hafi ekki gert tillögu um
að Heimir Örn Herbertsson yrði
næsti formaður. Stjórnin hafi ekki
haft neina aðkomu að framboðinu og
framboð þeirra Brynjars Níelssonar
og Heimis Arnar hafi verið alveg
sjálfstæð.
Tala misritaðist
Í útdrætti fréttar um skatttekjur
ríkissjóðs í blaðinu í gær birtist röng
tala. Tekjurnar voru 111 milljarðar
en ekki 101 eins og stóð. Þá vill fjár-
málaráðuneytið taka fram að fréttin
hafi birst á vef ráðuneytisins kl.
21,19 á miðvikudagskvöld en ekki á
miðnætti eins og stóð í fréttinni.
LEIÐRÉTT
Fjölmörg samtök í sjávarútvegi, landbúnaði,
lax- og silungsveiði segja það koma algjörlega á
óvart að ríkisstjórnin hyggist ljúka fyrirhuguð-
um stjórnkerfisbreytingum með framlagningu
lagafrumvarps án nokkurs samráðs við hags-
munaaðila. „Með því væri gengið á bak þeirra
loforða sem okkur hafa verið gefin,“ segir í til-
kynningu. Frumvarpið var afgreitt úr ríkis-
stjórn í gærmorgun.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
sagði eftir fund ríkisstjórnarinnar að málið væri
nú í höndum forystumanna stjórnarflokkanna.
Hann gerði ráð fyrir að frumvarpið gengi von
bráðar til þingflokkanna. Steingrímur sagði
skipta miklu máli að vanda til verka og vinna
málið faglega, m.a. með samráði við samtök og
hagsmunaaðila aðra sem yrðu fyrir áhrifum af
breytingunum.
Í tilkynningu frá Bændasamtökum Íslands,
Samtökum atvinnulífsins, Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, Samtökum fiskvinnslu-
stöðva, Sjómannasambandi Íslands, Farmanna-
og fiskimannasambandi Íslands auk fleiri sam-
taka, kemur fram að seint í september hafi verið
haldinn fundur í forsætisráðuneytinu um þessi
mál. Þá hafi þungum áhyggjum verið lýst af
boðuðum breytingum á verkefnum sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneytisins. „Á fundin-
um var því lýst af hálfu fulltrúa forsætisráðu-
neytisins að umrædd vinna væri skammt á veg
komin og því heitið að stofnaður yrði starfshóp-
ur um verkefnið þegar þar að kæmi, með aðild
hagsmunaaðila.“
Samtökin furða sig því á að frumvarp sé tilbú-
ið og leggja eigi það fyrir fram á næstu dögum.
Hvatt er til þess að horfið verði frá breyting-
unum og óskir ítrekaðar um að „málið verði
unnið faglega með aðkomu þeirra sem það varð-
ar.“
Steingrímur segir að stefnt sé að því að koma
málinu í samráðsvinnufarveg og miklu máli
skipti að allir sem hafi skoðanir á málinu geti
komið þeim á framfæri. Hann tekur einnig fram
að mikilvægt sé að ríkið hagræði og stjórnarráð-
ið leggi sitt af mörkum – hlífi sér ekki umfram
aðrar stofnanir – með endurskipulagningu.
Hann tekur fram að ólíklegt sé að málið verði
klárað frá Alþingi fyrir þinglok.
Morgunblaðið/Kristinn
Upplýsingafundur ríkisstjórnarinnar.
„Gengið á bak þeirra loforða
sem okkur hafa verið gefin“
Samtök í sjávarútvegi og landbúnaði lýsa yfir þungum áhyggjum
Stofna átti starfshóp
» 28. september 2009 var haldinn fund-
ur í forsætisráðuneytingu vegna hug-
mynda um breytingar á verkefnum sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
» Fjölmörg samtök hvöttu þá til þess að
horfði yrði frá þeim.
» Þá var því heitið að stofnaður yrði
starfshópur um verkefnið þegar þar að
kæmi, með aðild hagsmunaaðila.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Sumaryfirhafnir og
vattjakkar
Stærðir 36-52
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið kl. 10-16
Eddufelli 2, sími 557 1730
Opið kl. 10-14
www.rita.is
Svartar
sparibuxur
3 síddir
Mjódd, sími 557 5900
Vordagar í Fröken Júlíu
Kjólar, skokkar og bolir
Frá Jensen 15% afsláttur á vordögum
Verið
velkom
nar
Gallajakkar og gallapils
Laugavegi 84 • sími 551 0756
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarstjóri Reykjavíkur, úthlut-
aði styrkjum til níu verkefna úr
Forvarna- og framfarasjóði
Reykjavíkurborgar við formlega
athöfn í Höfða í gær. Heildar-
upphæð styrkjanna nemur 6,1
milljón. Við sama tækifæri voru
10 milljónir veittar úr sjóðnum til
atvinnuátaks fyrir ungt námsfólk
í sumar.
Stefnt er að því að skapa 100
störf fyrir fjárhæðina að því er
segir í tilkynningu.
Stefnt að því að
skapa 100 störf
„Þetta var fínn fundur,“ segir Skúli
Helgason, formaður iðnaðarnefnd-
ar Alþingis, en nefndin kom saman
til fundar í gær. Spurður hvort
rammaáætlun um vernd og nýtingu
náttúrusvæða hefði komið til um-
ræðu á fundinum segir Skúli að
mest hafi verið rætt um stöðu verk-
efna hjá orkufyrirtækjunum og
Orkustofnun. Rammaáætlunin hafi
ekki verið sérstaklega á dagskrá en
að henni hafi verið vikið í máli ein-
stakra fundarmanna „þegar við lít-
um lengra fram í tímann“.
Útlit er fyrir að afgreiðsla
rammaáætluninarinnar frá verk-
efnisstjórn tefjist. Er málið enn í
umfjöllun í þingflokki VG en vara-
formaður iðnaðarnefndar, Lilja
Rafney Magnúsdóttir, þingmaður
VG, svaraði ekki skilaboðum í gær.
„Fínn fundur“
í iðnaðarnefnd
Fyrrverandi bókari hjá húsnæðis-
samvinnufélaginu Búseta hefur í
Héraðsdómi Reykjavíkur verið
dæmdur til að greiða félaginu 28
milljónir króna í bætur vegna fjár-
dráttar. Þá staðfesti rétturinn úr-
skurð um að kyrrsetja eignir manns-
ins, bæði fasteign og bíl, fyrir 20
milljónir króna.
Maðurinn starfaði í 16 ár hjá Bú-
seta, bæði sem bókari og gjaldkeri
félagsins til ársloka 2003 en eftir það
sem aðalbókari. Hann sagði starfi
sínu lausu og hugðist hætta störfum
í september 2008. En samkomulag
varð með aðilum um að hann héldi
áfram störfum eftir það í hlutastarfi
til að setja nýjan starfsmann inn í
starfið.
Skömmu síðar vöknuðu grun-
semdir um að ekki væri allt með
felldu og maðurinn hætti að mæta til
vinnu í apríl 2009. Í kjós kom að
maðurinn hafði dregið sér mikið fé
frá Búseta og falsað yfirlit banka-
reiknings og rangfært bókhaldið til
að fela fjárdráttinn.
Maðurinn viðurkenndi síðan fyrir
framkvæmdastjóra Búseta að hafa
dregið sér tæpar 30 milljónir króna
með skipulögðum hætti. Var málið
kært til lögreglu. Í kærunni kom
m.a. fram að maðurinn hefði upplýst
að ástæða fjárdráttarins væri sú að
frá árinu 2001 hefði hann tapað mikl-
um fjármunum, sem hann hefði fjár-
magnað með lánum á bandaríska
fjármálamarkaðnum, en hann hefði
átt í viðskiptum í gegnum E-Trade
vefviðmót.
Ætlaði maðurinn að endurgreiða
Búseta þá fjármuni sem hann dró
sér en hann tapaði síðan fé í banka-
hruninu haustið 2008.
Bókari dró sér
fé hjá Búseta
Notaði þýfi til að braska erlendis