Morgunblaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Umræður um skýrslu Össurar Skarp-
héðinssonar utanríkisráðherra stóðu
yfir í sex tíma á Alþingi í gær. Hæst
bar skoðanaskipti þingmanna og ráð-
herra um stöðu umsóknar Íslendinga
um aðild að Evrópusambandinu,
ESB, sem og um Icesave-viðræðurn-
ar, varnar- og öryggismál og málefni
norðurslóða. Fram kom í ræðu Öss-
urar að hann hygðist leggja fram til-
lögu á Alþingi og koma á fót þver-
pólitískum starfshópi til að
endurskoða stefnu Íslands í varnar-
og öryggismálum.
Þá sagði Össur að Ísland hefði
mikil tækifæri á norðurslóðum við að-
komu á t.d. vinnslu olíuauðlinda.
Össur sagðist m.a. í umræðunum
um ESB-aðild fagna því ef sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, Jón
Bjarnason, og fleiri myndu „sjá ljós-
ið“ í Evrópumálum. Menn væru of
fljótir í allri umræðu um þann mála-
flokk að draga ályktanir af ein-
hverju sem ekki væri fast í hendi.
Þjóðin yrði að fá tækifæri til að
kveða upp úrskurð um þann samn-
ing sem næðist. Það væri
hans hlutverk sem utan-
ríkisráðherra að ná sem
hagstæðustum samningi
fyrir Ísland. Ef sá samn-
ingur yrði felldur í þjóðar-
atkvæðagreiðslu yrði það
„stórt spark“ í hans „breiða
afturenda,“ eins og Össur
tók sjálfur til orða. Sagði hann samn-
inganefnd og aðalsamningamann Ís-
lands í viðræðunum við ESB njóta
fulls trausts stjórnvalda. Viðræðu-
ferlið yrði opið og gegnsætt og þannig
yrðu allar fundargerðir samninga-
nefndar og samningahópa gerðar op-
inberar og fundir yrðu haldnir um allt
land.
Þyrfti að læra af mistökum
Er Össur fylgdi skýrslunni úr
hlaði sagði hann mikinn og góðan ár-
angur hafa náðst í utanríkismálum við
erfiðar aðstæður undanfarið ár. Sagð-
ist hann vera stoltur af sínu fólki í ut-
anríkisþjónustunni í erfiðum málum á
borð við Icesave-deiluna og viðræður
við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn vegna
efnahagsáætlunar Íslands. Hann
væri einnig stoltur af íslensku björg-
unarsveitinni sem fór með skömmum
fyrirvara á skjálftasvæðin á Haíti.
Sagði Össur að utanríkisþjónust-
an ætti að vera skjöldur fyrir Ísland.
Hún hefði hins vegar gert sín mistök,
líkt og fram hefði komið í rannsókn-
arskýrslu Alþingis, og læra þyrfti af
þeim mistökum. Stjórnsýslan þyrfti
að gæta sín á því í framtíðinni að utan-
ríkisþjónustan væri hluti af öllum að-
gerðum sem gripið væri til. Það væri
nú eitt helsta hlutverk utanríkisþjón-
ustunnar að byggja upp traust Ís-
lands í samstarfi við erlend ríki, þann-
ig að landið endurheimti orðstír sinn.
ESB í sviðsljósinu
Heitar og langar umræður um ESB-aðild á Alþingi í gær
Össur vonaðist til að Jón Bjarnason og fleiri „sæju ljósið“
Morgunblaðið/Ómar
Utanríkismál Hlutverk utanríkisráðherra er að ná eins hagstæðum samningi við Evrópusambandið og hægt er,
sagði Össur Skarphéðinsson meðal annars í umræðum á Alþingi í gær um skýrslu hans um utanríkismál.
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
„Það verður að segjast eins og er að
samdráttur í verslun í apríl er
nokkur ráðgáta,“ segir Emil B.
Karlsson, forstöðumaður Rann-
sóknaseturs verslunarinnar, en
óvenjumikill samdráttur varð í veltu
dagvöruverslunar og áfengisversl-
unar í apríl síðastliðnum miðað við
sama mánuð í fyrra. Ástæðuna má
að hluta til rekja til þess að páska-
verslun fór fram í mars á þessu ári
en í apríl í fyrra. Páskarnir skýra
samt ekki alfarið þennan mikla
mun. Þegar horft er til samanburð-
ar á fyrri árum þegar páskar voru
annað árið í mars og það næsta í
apríl kom ekki fram þessi mikli
munur á veltu milli ára.
Óvæntur samdráttur
„Samdrátturinn í apríl er nokk-
uð óvæntur ef miðað er við þró-
unina fyrstu þrjá mánuði ársins,“
segir Emil. Hann vill ekki tengja
þetta eldgosinu, „það væri alltof
langsótt“.
Hann segir minni verslun geta
verið tilfallandi, stundum komi
neytendur verulega á óvart. „Oft er
lægð í neyslu í apríl en samdrátt-
urinn er meiri nú en oft áður á
þessum árstíma. Allt benti til að
þetta myndi ekki gerast, væntinga-
vísitalan var á uppleið, kaupmátt-
arrýrnun minni og greiðslukort-
anotkun hafði ekki minnkað. Þess
vegna erum við svolítið hissa á
þessu.“
Ekki minna selt af áfengi
í apríl frá árinu 2002
Enn meiri samdráttur var í
sölu áfengis en í dagvöru í apríl.
Þannig var velta áfengisverslunar
31,0% minni á föstu verðlagi í apríl
síðastliðnum en í sama mánuði í
fyrra og hefur ekki verið minni í
neinum aprílmánuði síðan árið 2002.
En meira kemur til. Velta sér-
vöruverslana í apríl dróst einnig
saman miðað við apríl í fyrra – fata-
verslun um 13,8% og skóverslun um
11,0% á föstu verðlagi. Skýringar
geta bæði verið að neytendur bíði
lengur fram á vor með að kaupa föt
og skó fyrir sumarið eða að beðið sé
eftir lækkuðu verði í hefðbundnum
útsölumánuðum.
Sömu sögu er að segja um hús-
gagnaverslun og raftækjaverslun,
þar sem velta var mun minni í ný-
liðnum apríl en í apríl í fyrra. Hús-
gagnaverslun hefur minnkað um
61,4% að raunvirði á síðustu tveim-
ur árum og raftækjaverslun um
48,6% á sama tíma.
Samdrátturinn er líklega
ekki varanlegur
Sá samdráttur sem kemur
fram í veltu verslunar í apríl er
nokkuð óvæntur ef miðað er við
þróunina fyrstu þrjá mánuði ársins.
Á tímabilinu janúar til mars sl. virt-
ist sem nokkurt jafnvægi væri kom-
ið á einkaneyslu. Þetta kom fram í
veltu verslana, minni samdrætti í
greiðslukortanotkun, minnkandi
kaupmáttarrýrnun og væntingavísi-
tölu Capacent Gallup sem birt var í
apríl og fór upp fyrir 50 stig í fyrsta
skipti síðan október 2008. Allt eins
má því ætla að samdráttur í verslun
í apríl verði ekki varanlegur.
Minni verslun í
aprílmánuði
nokkur ráðgáta
Væntingar, kaupmáttur og kortavelta
bentu til að verslunin væri að glæðast
Áfengisneysla minnkar
» Sala í áfengislítrum var
28,7% minni í nýliðnum apr-
ílmánuði en í apríl í fyrra.
» Dregið hefur umtalsvert
úr sölu áfengis það sem af er
þessu ári frá síðasta ári hvort
sem viðmiðið er velta eða
áfengislítrar.
» Ástæðan er vafalaust
hækkanir á verði áfengis.
Samdráttur í verslun
í apríl
-31%
-13,8%
-11% -12,1% -13,3%
Á
fe
ng
i
Fö
t
S
kó
r
H
ús
gö
gn
R
af
tæ
ki
Gunnar I Birgisson, bæjarfulltrúi
og fyrrverandi bæjarstjóri í Kópa-
vogi, segir að tillaga Ólafs Þórs
Gunnarssonar, bæjarfulltrúa VG,
um stjórnsýsluúttekt sé fyrir neð-
an allar hellur því um sé að ræða
alvarlegar ásakanir á hendur sitj-
andi bæjarfulltrúum og ekki síst
starfsmönnum bæjarins.
Á fundi bæjarráðs 29. apríl sl.
lagði Ólafur Þór til að kosin yrði
fimm manna nefnd óháðra sér-
fræðinga með það að aðalverkefni
að kanna stjórnsýslu bæjarins og
aðkomu stjórnmálamanna að fjár-
hagslegum ákvörðunum á und-
anförnum árum og skyldi hún
skila af sér ekki síðar en 31. ágúst
nk. Kannað skyldi hvort einstakir
aðilar eins og verktakar, bankar
og fyrirtækjasamsteypur hefðu
nokkurn tímann fengið óeðlilega
fyrirgreiðslu, hvort fjársterkir að-
ilar hefðu beint eða óbeint haft
áhrif á pólitískar og stjórnsýslu-
legar ákvarðanir, hvort fjársterkir
aðilar hefðu hagnast á tengslum
við bæinn og einstaka embætt-
ismenn eða bæjarfulltrúa og hvort
einstakir embættismenn, bæj-
arfulltrúar eða frambjóðendur til
bæjarstjórnar hefðu hagnýtt sér
persónulega eða í þágu síns flokks
tengsl við fjársterka aðila sem
hefðu átt í viðskiptum við bæinn.
„Þetta er ósmekkleg tillaga,“
segir Gunnar. Fyrir utan ósvífnina
kosti svona rannsókn tugi milljóna
króna auk þess sem allóljóst sé
með fyrirhugað umboð nefnd-
arinnar. Öll stjórnsýsla bæjarins
sé gegnsæ og með þessari tillögu
sé sérstaklega vegið að starfs-
mönnum bæjarins. „Þeir eiga
þetta ekki skilið,“ segir Gunnar.
steinthor@mbl.is
Vegið að bæjarfulltrúum og
starfsmönnum Kópavogs
Gunnar I Birgisson segir tillögu VG ósmekklega
Gunnar I Birgisson
segir tillöguna
ósvífna og að auki
sé óljóst með um-
boð nefndarinnar.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði í
umræðunum á Alþingi í gær að
aðildarumsókn að ESB væri
keyrð áfram á misskilningi
og breiða samstöðu
stjórnvalda skorti veru-
lega. Rifjaði Bjarni upp
að í umræðum á Al-
þingi hefðu sjálf-
stæðismenn lagt
áherslu á að rangt
væri að fara af stað í aðildar-
umsókn ef ekki væri breið sam-
staða allra flokka, og ekki væri
lengur breið samstaða meðal þjóð-
arinnar. Þá hefði molnað úr sam-
stöðunni innan ríkisstjórnarinnar.
Sagði Bjarni erlenda þingmenn
hafa furðað sig á því á fundum
með utanríkismálanefnd að ekki
væri einbeittur vilji Alþingis til
staðar fyrir aðildarumsókn að Evr-
ópusambandinu.
Skortur á breiðri samstöðu
FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Bjarni
Benediktsson
gerir grillmat að hreinu lostæti!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
38
23
8