Morgunblaðið - 15.05.2010, Síða 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Fyrsta skóflustungan var nýlega
tekin að nýju hvíldarheimili Styrkt-
arfélags krabbameinssjúkra barna
að Ketilsstöðum. Rósa Guðbjarts-
dóttir, formaður SKB, og Gróa Ás-
geirsdóttir tóku fyrstu skóflustung-
una og var að því loknu strax hafist
handa við að grafa grunn hússins.
Húsið nefnist Hetjulundur og er
það afrakstur landssöfnunar sem
Gróa og stöllur hennar í „Á allra
vörum“, þær Elísabet Sveinsdóttir
og Guðný Pálsdóttir, stóðu fyrir
með miklum myndarbrag á síðasta
ári.
Í lokahnykk söfnuninnar sem var
í beinni útsendingu á Skjá einum
söfnuðust um 45 milljónir sem
verða nýttar í byggingu hússins.
Húsið verður reist í sumarhúsa-
landi við Ketilsstaði í Holta- og
Landsveit en lóðin var gefin félag-
inu af Guðmundi Jóhannssyni þeg-
ar söfnunin fór fram á Skjá einum
og verður húsið vonandi tekið í
notkun á haustmánuðum.
Fyrsta skóflustungan að nýju dvalar-
heimili fyrir krabbameinssjúk börn
Skóflustunga Þær Rósa og Gróa
hefja verkið í Hetjulundi.
Umhverfis- og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar hefur hlotið al-
þjóðlega vottun fyrir umhverfis-
stjórnunarkerfið sitt, fyrst íslenskra
stofnana. Innan við 20 fyrirtæki hafa
fengið þessa vottun. Kerfið er al-
þjóðlegur staðall sem lýsir því
hvernig koma megi á virkri um-
hverfisstjórnun í öllum rekstri.
Starfsmenn á reiðhjólum, engar
ruslafötur undir skrifborðum, sjö-
stiga flokkunarkerfi í eldhúsum og
prentað báðum megin á pappír er
meðal þess sem metið var við vott-
unina. Sviðsstjórinn nefnir líka sem
dæmi að bílstjórar Sorphirðunnar,
sem aki um á metanbílum, hafi farið
á vistakstursnámskeið og að starfs-
menn garðyrkjunnar jarðgeri nú
garðúrgang sem fellur til í borg-
arlandinu.
Morgunblaðið/Golli
Hjólað Starfsmenn borgarinnar eru
duglegir að hjóla til vinnu.
Umhverfis- og
samgöngusvið fær
umhverfisvottun
Knattspyrnudeild Breiðabliks hlaut í fyrradag jafn-
réttisviðurkenningu Kópavogsbæjar. Í umsögn jafn-
réttisnefndar bæjarins kemur fram að Breiðablik
hafi frá upphafi verið í fararbroddi í fótbolta kvenna
og það sé eina félagið sem hafi verið með á Íslands-
móti kvenna í fótbolta frá upphafi.
Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn í
Salnum í Kópavogi. Einar Kristján Jónsson, formað-
ur Knattspyrnudeildar Breiðabliks, tók á móti við-
urkenningunni úr hendi Unu Maríu Óskarsdóttur,
formanns jafnréttisnefndar Kópavogs, og Gunnsteins Sigurðssonar, bæj-
arstjóra Kópavogs. Una María sagði við athöfnina að Breiðablik hefði allt-
af litið svo á að stúlkur ættu að eiga kost á að leika fótbolta og hefði til
skamms tíma átt besta kvennafótboltalið landsins.
Breiðablik fær jafnréttisverðlaun
Breiðablik hlýtur jafn-
réttisviðurkenningu
Í dag laugardag kl. 13-17 stendur
Rotaractklúbburinn Geysir fyrir
nytjamarkaði sem verður haldinn
nú í annað sinn í tengslum við
Kópavogsdaga. Nytjamarkaðurinn
nefnist Molaportið og verður hald-
inn í ungmennahúsi Kópavogs,
Molanum. Þar verður til sölu gegn
vægu gjaldi allt frá fötum, skóm,
bókum, húsgögnum til leyndra
gersema. Þá verður boðið upp á
tónlistaratriði, vöfflur, kakó og
gos.
Í ár rennur allur ágóðinn
óskertur í Polio Plus-sjóðinn til
styrktar baráttunni gegn löm-
unarveiki en nokkrir meðlimir
hópsins ætla að ferðast til Ind-
lands til að aðstoða við þá baráttu.
Nytjamarkaður
Hjúkrunarráð Sjúkrahússins á
Akureyri (FSA) lýsir áhyggjum
sínum vegna lengingar á skertri
starfsemi FSA í sumar og óttast
að skert starfsemi sjúkrahússins
sé varhugaverð og ógni gæðum
þjónustunnar og öryggi sjúklinga.
Með auknum kröfum um meiri
sparnað verða fáir ráðnir í
sumarafleysingar og þar á meðal
innan hjúkrunar. Valstarfsemi
FSA skerðist á þessum tíma og
verður fyrst og fremst um bráð-
astarfsemi að ræða og fólk sem
bíður aðgerða þarf því að bíða
enn lengur.
Ógnar gæðum
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Stykkishólmur
Með vorkomunni lifnar yfir samfélaginu í
Hólminum. Ferðafólk er farið að koma og
þjónustuaðilar tilbúnir að taka á móti því. Það
má búast við mörgum ferðamanni sem leggur
leið sína í Hólminn í sumar, enda er hér margt
í boði fyrir þá.
Eldfjallasafn Haraldar Sigurðssonar
hefur opnað annað árið. Haraldur hefur fylgst
mjög vel með eldgosinu í Eyjafjallajökli og
nýjar myndir frá gosinu prýða safnið ásamt
gossýnishornum. Það er mjög fróðlegt að
koma í heimsókn í safnið og fræðast um sögu
eldgosa hérlendis og líka erlendis. Þar er
byggt á áratuga reynslu Haraldar Sigurðs-
sonar.
Það er fleira sem minnir á vorið. Breiða-
fjörður var hér áður talinn vera góð matar-
kista og enn er sótt þangað björg í bú. Nú er
farið út í eyjar til eggjatöku. Í mörgum eyjum
er gott varp og einkum svartbaksegg eru tínd.
Egg eru víða á boðstólum þessa dagana á
heimilum bæjarbúa.
Stykkishólmur er ein mesta lönd-
unarhöfn grásleppuhrogna. Veiði er hafin utar
í Breiðafirðinum. Það veiðist vel og hráefn-
isverð í hæstu hæðum. Grásleppuveiði byrjar
ekki fyrr en 20. maí í innanverðum Breiðafirði,
er það vegna samkomulags við æðarbændur.
Strandveiðar stunda nokkrir bátar frá
Hólminum. Ekki þarf að fara langt því mikið
er af þorski rétt fyrir utan hafnarmynnið. Þeir
sem fá að njóta og fá ókeypis kvóta eru ánægð-
ir með þessar veiðar en það sama á ekki við þá
sem þurfa að borga brúsann.
Mikill skortur er á leiguhúsnæði í Hólm-
inum. Það kemur í veg fyrir að fólk sem hingað
vill flytja geti það. Fasteignabankinn ehf. hef-
ur sótt um tvær lóðir við Neskinn þar sem ætl-
unin er að byggja tvö raðhús sem fara á leigu-
markaðinn. Vonandi verður af þeim
framkvæmdum.
Árangur Snæfells í körfubolta hefur vak-
ið mikla athygli. Bæði karla- og kvennalið fé-
lagsins hafa verið stolt bæjarbúa. Á uppske-
ruhátíð félagsins kom m.a. fram að í vetur hafa
verið eknir 25.000 km á keppnisleiki í öllum
aldursflokkum. Það hafa stuðningsmenn og
foreldrar gert í sjálfboðastarfi.
Nú er vor um Breiðafjörð
Morgunblaðið/ Gunnlaugur Auðunn Árnason
Körfuboltaáhugi. Þessir ungu drengir voru
duglegir að æfa körfubolta í vetur.
STUTT
Lífeyrissjóður starfsmanna
Reykjavíkurborgar
Starfsemi á árinu 2009
Breytingar á hreinni eign til greið 31.12. 2009 2008
Samtals Samtals
Iðgjöld 1 605 1 480
Lífeyrir -2 288 -2 064
Fjárfestingartekjur 5 961 7 674
Fjárfestingargjöld -32 -22
Rekstrarkostnaður -53 -46
Hækkun á hreinni eign á árinu 5 193 7 022
Hrein eign frá fyrra ári 47 301 40 279
Hrein eign til greiðslu lífeyris 52 494 47 301
Efnahagsreikningur 2009 2008
Fasteign, rekstrafjármunir og aðrar eignir
Verðbréf með breytilegum tekjum 1 625 1 522
Verðbréf með föstum tekjum 49 361 43 826
Veðlán 1 268 1 397
Bankainnistæður
Kröfur 36 53
Aðrar eignir 258 568
Skuldir -55 -66
Hrein eign til greiðslu lífeyris 52 494 47 301
Kennitölur 2009 2008
Nafn ávöxtun 12.5% 19.0%
Hrein raunávöxtun 3.6% 2.3%
Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal 4.3% 4.2%
Fjöldi sjóðfélaga 845 919
Fjöldi lífeyrisþega 2 613 2 553
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0.1% 0.1%
Eignir í íslenskum krónum í % 100.0% 99.6%
Eignir í erlendum gjaldmiðlum í % 0.0% 0.4%
Eign umfram heildar skuldbindingar í % -22.7% -28.2%
Eign umfram áfallnar skuldbindingar í % -17.3% -22.8%
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður
haldinn þriðjudaginn 18. maí nk., kl. 11:00 í fundarsal BSRB
á 1. hæð að Grettisgötu 89, 101 Reykjavík.
Í stjórn lífeyrissjóðsins eru
Alfreð Þorsteinsson, formaður,Björk Vilhelmsdóttir,
Benedikt Geirsson, Garðar Hilmarsson og Sjöfn Ingólfsdóttir
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jón G. Kristjánsson
Aðsetur sjóðsins er hjá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga
Sigtúni 42, 108 Reykjavík Sími 570 0400 www.lss.is
Allar fjárhæðir í milljónum króna
Ársfundur 2010
Birt með fyrirvara um prentvillur.