Morgunblaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
urnar úr sambandi við niðurföllin svo þau
myndu ekki stíflast.
„Menn halda ró sinni, taka einn dag í
inu,“ segir Eggert um stöðuna. „Það myndi
bjarga miklu ef við fengjum góða rigningu,“
bætir hann við.
„Þetta er saklaust hjá okkur, miðað við
það sem Eyfellingar hafa þurft að þola,“ seg-
ir Sigurður Sveinbjörnsson, bóndi á Krossi í
Landeyjum. Öskufall varð á mismunandi tím-
um í Landeyjunum í gærmorgun, sló fyrir
eins og bændur tóku til orða. Askan féll á
Krossi í hádeginu en skýið færðist síðan
austur og lá með ströndinni.
Hátt í fjögur þúsund hross eru í Land-
eyjum, að miklu leyti á útigangi og fleiri ef
talin eru með hross sem þar eru í hagagöngu
en mörg þeirra hafa verið flutt í burtu. Á
annað hundrað hross eru á Krossi og Sig-
urður sagðist þurfa að fara að gefa hross-
unum og þrengja að þeim, svo þau færu ekki
að krafsa í öskuna.
Kindurnar láta illa í öskunni
„Ég setti lambfé út úr girðingu í gær,
hélt að það yrði í lagi með þær úti í mýri. Ég
þyrfti að geta komið fleirum út,“ segir Sverr-
ir Kristjánsson í Seli í Landeyjum. Hann var
að þvo ösku úr vatnsílátum fyrir féð og gefa
hey úr ómenguðum rúllum. „Þær láta illa yfir
þessu og eru fljótar að koma hingað þótt það
sé komin græn nál.“
Öskufall varð í Seli um klukkan níu í
gærmorgun og stóð í hálftíma eða svo. Síðan
rak norðanáttin öskuna niður með ströndinni.
„Ég var að vona að við myndum sleppa
áfram því askan er mikill bölvaldur,“ segir
Sverrir. Hann rifjar upp að þetta svæði hafi
sloppið við ösku úr Heklu, Surtsey og
Heimaey. Í Heimaeyjargosinu hafi hann
raunar séð öskuskýið fara upp með Eyjafjöll-
unum.
Sverrir er ekki svartsýnn á heyskapinn.
„Menn þurfa að heyja, sama hvað gengur á.“
Sauðburðinum er að ljúka í Seli og Sverrir
hafði hug á að bera á um helgina. „Okkur
sárvantar vætu,“ segir hann.
Morgunblaðið/RAX
fjöllum, enn sem komið er. Kirkjan á Voðmúlastöðum ber sín merki eftir öskuna og þar þarf að taka til hendinni við hreinsun eins og víða á öskufallssvæðinu.
Opnað fyrir birtuna Hreinsunarstarfið á Kirkjulæk hófst á því að Guðmundur Eggertsson fór upp á þak hesthússins til að hleypa birtunni inn.