Morgunblaðið - 15.05.2010, Síða 23
Fréttir 23VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
FRÉTTASKÝRING
Ívar Páll Jónsson
ivarpall@mbl.is
Spænska blaðið El Pais sagði í gær
frá því að Frakklandsforseti, Nicol-
as Sarkozy, hefði hótað að draga
landið úr evrusamstarfinu, ef Þjóð-
verjar neituðu að taka þátt í björg-
unarpakka Evrópusambandsins. El
Pais hefur þetta eftir nánum sam-
verkamönnum spænska forsætis-
ráðherrans, José Luis Rodríguez
Zapatero.
Leiðtogar Evrópusambandsins
settu um síðustu helgi saman gríð-
arstóran björgunarpakka fyrir hinar
skuldugri þjóðir evrusvæðisins.
Áhyggjur af opinberum fjármálum,
hallarekstri og skuldasöfnun þeirra
ríkja hafa skekið fjármálamarkaði
að undanförnu. Að því er fram kem-
ur í frétt spænska blaðsins „barði
Sarkozy í borðið og hótaði að hætta í
evrunni“, þannig að Angela Merkel
þurfti að gefa eftir og samþykkja að-
gerðina.
Skammvinn sæla
Markaðir tóku tímabundið við
sér við tíðindin af björgunarsjóð-
inum, sem nemur 750 milljónum
evra. Í gær náði evran hins vegar
lægsta gildi sínu gagnvart Banda-
ríkjadollar í eitt og hálft ár, eða
1,2465 dollurum. Ef þessi þróun
heldur áfram er stutt í að næsta
áfanga í sigi evrunnar verði náð,
1,2328 dollurum, en evran féll niður í
það gengi þegar fjármálakreppan
var í algleymingi í október 2008,
þegar fjárfestar flýðu yfir í dollar í
stórum stíl.
Austurríska fyrirtækið Austri-
an Mint, sem framleiðir gullpeninga,
sagði í fyrradag að það hefði selt
meira gull á síðustu tveimur vikum
en á öllum fyrsta fjórðungi ársins.
Talsmaður fyrirtækisins sagði að
söluna mætti alla rekja til aukinnar
eftirspurnar frá Evrópu, en leiða má
líkur að því að minnkandi tiltrú á
pappírsgjaldmiðlum – þá sér í lagi
evru – hafi valdið því að fjárfestar
hafi leitað frekar í góðmálma.
„Eftirspurnin er einungis frá
Evrópu, við höfum ekki fengið nein-
ar pantanir frá Bandaríkjunum og
Asíu á síðustu viku,“ segir talsmað-
urinn. „Það eru skýr merki þess að
um sé að ræða óðagotskaup, vegna
áhyggna af Grikkjum og evrunni,“
bætti hann við.
Volcker efast um evruna
Paul Volcker, fyrrverandi seðla-
bankastjóri Bandaríkjanna, sagði í
fyrradag að skuldavandi Evr-
ópuríkja kynni að grafa undan evr-
unni. Volcker, sem er einn af efna-
hagsráðgjöfum Bandaríkjaforseta,
sagði við nemendur við London
School of Economics að það væri erf-
itt fyrirkomulag að hafa sameig-
inlega mynt en aðskilin stjórnvöld.
„Ég var upphaflega á þeirri skoðun
að evran væri góð hugmynd,“ sagði
hann.
Þá sagði Volcker að stjórnvöld
vestanhafs stæðu frammi fyrir sama
vandamáli og stjórnvöld víða um
heim, miklum fjárlagahalla. Fjár-
lagahallinn í Bandaríkjunum nemur
1.200 milljörðum dollara og skuldir
hins opinbera eru 13.000 milljarðar
dollara. „Við erum í sömu klemmu
og svo margar aðrar ríkisstjórnir.
Hallinn er allt of mikill,“ sagði hann.
Þó væri staða bandarísks efnahags-
lífs eilítið betri en hann hefði búist
við.
Frakkar hótuðu að yfirgefa evru
Barið í borðið Sarkozy hótaði að Frakkar drægju sig úr evrusamstarfinu,
tækju Þjóðverjar ekki þátt í björgunarpakkanum fyrir skuldsett evruríki.
Fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna efast um framtíð evrusvæðisins Meira seldist af gulli
í Evrópu síðustu tvær vikur en allan fyrsta fjórðung samanlagt Evran hélt áfram að lækka í gær
Íslandsbanki Fjármögnun hefur lækkað vexti á óverð-
tryggðum samningum um 0,75 prósentustig frá og með
12. maí síðastliðnum. Í tilkynningu segir að lækkunin
komi í kjölfar lækkunar á stýrivöxtum Seðlabankans í
síðustu viku.
Þetta hefur í för með sér að vextir á óverðtryggðum
bílasamningum og bílalánum verða á bilinu 11,05% til
11,35%. Þeir viðskiptavinir Íslandsbanka Fjármögnunar
sem kjósa að fá höfuðstólslækkun á bílasamningum eða
eignaleigusamningum sínum fá 2,6% afslátt af vöxtum
fyrstu 12 mánuðina.
Lækka vexti um 0,75 prósentur
750
milljarðar evra eru í björgunarsjóði
Evrópusambandsins vegna
skuldsettra evruríkja
18 mánuðir
eru síðan gengi evrunnar gagnvart
Bandaríkjadollar var jafnlágt
110
milljarðar eru í neyðarláni evruríkja
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til
grískra stjórnvalda
115%
er hlutfall opinberra skulda af vergri
landsframleiðslu Grikklands
‹ EVRUVANDI ›
»
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
! "
# $! "
% &'(!
)* +
) ( &!!
, -
. + )
- &* /
+
+ .0
+ 1 &!!*
(!!!
2
+ - - 1 & &!! 3!!