Morgunblaðið - 15.05.2010, Side 47
Menning 47FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Á morgun, sunnudag, flytja Kór og
Kammersveit Langholtskirkju tvö
tónverk á tónleikum í kirkjunni.
Annað er Berliner Messe eftir eist-
neska tónskáldið Arvo Pärt en hitt
verkið er kantatan Christ lag in To-
desbanden, eða Í dauðans böndum
Drottinn lá, eftir J.S. Bach.
Kór Langholtskirkju var stofn-
aður af Helga Þorlákssyni fyrir
rúmum sextíu árum, eða 23. mars
1953. Hann hét upphaflega Kirkju-
kór Langholtssafnaðar en fékk síð-
an núverandi heiti tuttugu árum
síðar. Kammersveitin er yngri.
verkin tvö eru eftir tvö mjög ólík
tónskáld sem yfir 200 ár skilja að
en samkvæmt Jóni Stefánssyni
stjórnanda Kórs Langholtskirkju
þá var þetta valið saman bæði af
praktískum ástæðum og til að gefa
miklar andstæður í tónlist.
Spurningunni hvort þessi verk
eigi eitthvað sameiginlegt svarar
Jón svo að þau hafi bæði gífurlega
djúpan og trúarlegan tón, þó hvort
með sínum hætti.
Kórinn hefur áður flutt verk
Bachs en þetta er ein af fyrstu
kantötum hans, líklegast samin í
kringum 1707 fyrir páskadag.
Kantatan er samsett af sjö þáttum
og á tónleikunum syngur kórinn
alla þættina en stundum eru ein-
söngvarar látnir syngja aríur og
dúetta.
Arvo Pärt er eitt umdeildasta og
frægasta tónskáld nútímans og
þekktur fyrir naumhyggjulegan stíl
sinn sem á sér enga hliðstæðu.
Hann endurspeglast í tækni sem
Pärt þróaði sjálfur og kallar „tint-
innabuli“ sem er latína og þýðir
„litlar bjöllur“. Oft hefur reynst
erfitt að skilgreina tónlist Pärt en
hún hefur meðal annars verið sögð
hafa yfir sér ójarðneskan blæ.
„Að sumu leyti hljómar tónlist
hans eins og hún sé mikið eldri en
Bach en hún er hins vegar líka
mjög nútímaleg, því má segja að
tónlist Part sé þannig frekar tíma-
laus og hún hljómar eiginlega bara
eins og hún hafi alltaf verið til,“
segir Jón og bætir við að tæknin
sem Pärt notar sé alveg sér á parti.
Notar yfirtóna
á ótrúlegan hátt
„Hann notar yfirtóna á alveg
ótrúlegan hátt, það getur enginn
hermt eftir honum og með þessari
tækni nær hann fram mjög sterk-
um trúarlegum áhrifum.“
Messan sem Kór og Kammer-
sveit Langholtskirkju mun flytja
var upphaflega samin árið 1993 en
Pärt endurskrifaði hana árið 2002.
„Upphaflega skrifaði hann messuna
fyrir orgel en svo endurskoðaði
hann hana og útsetti fyrir strengja-
sveit. Við erum að flytja verkið í
sinni nýju mynd í fyrsta skipti
hér,“ segir Jón. Konsertmeistari er
Ingrid Karlsdóttir og hefjast tón-
leikarnir kl. 20 í Langholtskirkju.
Djúpur og trúar-
legur tónn
Morgunblaðið/Kristinn
Trúartónar Jón Stefánsson stýrir æfingu Kórs og Kammersveitar Lang-
holtskirkju. Á morgun verða verk eftir Pärt og Bach flutt í kirkjunni.
Kór og Kammersveit Langholtskirkju
flytja verk eftir Arvo Pärt og J.S. Bach
Vatnsmýrarhátíð
verður sett í dag
kl. 14 við Nor-
ræna húsið en
það er Vigdís
Finnbogadóttir
sem setur hana.
Í tilkynningu
vegna hátíð-
arinnar segir að
hún sé helguð
vísindum og leik,
umhverfi og náttúru, börnum
landsins og barnamenningu. Sýn-
ingin Tilraunalandið stendur enn
yfir en hana hafa þúsundir barna
og foreldra sótt. Einnig geta gestir
skoðað stærsta manngerða sand-
kassa höfuðborgarinnar en hann er
í raun stærðarinnar sólúr. Boðið
verður upp á þrautir, tæki og tól á
víð og dreif á lóð Norræna húss-
ins.
Á hátíðinni munu margir lista-
menn koma fram, m.a. Blikandi
stjörnur, Lúðrasveitin Svanur og
trúðar úr leikritinu Bláa gullið. Þá
verður bragðtilraunasmiðja fyrir
börn við gróðurhús Norræna húss-
ins. Vatnsmýrarhátíðin fer fram
utandyra. Kynnir á hátíðinni er
Charlotte Böving.
Vatnsmýrar-
hátíð
sett í dag
Charlotte
Böving
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
Vel staðsett einbýlishús á einni
hæð með innbyggðum bílskúr.
Húsið stendur á stórri hornlóð
innst í botnlangagötu. Eignin
skiptist í forstofu, borðstofu, stofu,
fjögur herbergi, búr, eldhús,
þvottahús og tvö baðherbergi.
Garðurinn er gróin og fallegur með
stígum og skjólgóðri verönd.
V. 77,0 m. 5616
HÚSNÆÐI ÓSKAST
BLEIKJUKVÍSL - FALLEGT ÚTSÝNISHÚS
Stórt og mikið, samtals 420,9 fm einbýlishús með 3ja herbergja aukaíbúð sem er með sér-
inngangi. Tvöfaldur bílskúr. Húsið sem var byggt af núverandi eigendum hefur fengið gott
viðhald í gegnum tíðina. Einstakt útsýni yfir borgina og sundin blá. V. 85 m. 5676
GOÐALAND 10 - VEL STAÐSETT ENDARAÐHÚS
Mjög vel staðsett og mikið endurnýjað endaraðhús á tveimur hæðum, ásamt bílskúr. Beint
aðgengi er frá stofu út í sólríkan og afgirtan suðurgarð. Húsið stendur ofan götu með góðum
bílastæðum fyrir framan hús. V. 59,9 m. 5653
SÆVIÐARSUND - HEIL HÚSEIGN M. 4 ÍBÚÐUM
Gullsmári - 12. hæð Vönduð 2ja herbergja,
61,6 fm útsýnisíbúð á 12. hæð í nýlegu lyftu-
húsi fyrir 60 ára og eldri. Glæsilegt útsýni til
vesturs og norðurs. Nýlega máluð íbúð. Yfir-
byggðar vestursvalir. Parket. Samkomusalur
á 14. hæð. Innangengt í þjónustukjarna.
Laus strax. 5669
Ljósavík 10 - endaraðhús Vandað endarað-
hús á einni hæð samtals 184,1 fm að stærð.
Fallegar innréttingar. Parket og flísar. Fjögur
svefnherbergi. Stór afgirt timburverönd. Inn-
angengt í bílskúrinn sem er 31,1 fm. Húsið er
tilbúið til afhendingar strax. V. 44,0 m. 5680
OPIÐ HÚS MÁNUDAG FRÁ KL. 17-18.
Sandakur 2-24 í Garðabæ - ný verð Nýtt
verð á glæsilegum raðhúsum í Garðabæ.
Sérlega vel skipulögð og falleg raðhús á
skjólsælum stað á miðri Arnarneshæðinni.
Tvílyft húsin eru glæsileg ásýndum þar sem
þau eru ýmist klætt áli eða harðviði. Húsin
snúa á móti suð- suðvestri þannig að þau
njóta sólar allan daginn. Húsin eru seld tilbúin
til innréttingar - lóð fullfrágengin. V. 37,5 m.
8070
OPIÐ HÚS MÁNUDAG FRÁ KL 17-18
Seljaland - efsta hæð Falleg 98,3 fm íbúð á
2. hæð t.v. (efstu) í vel staðsettu fjölbýlishúsi í
Fossvoginum ásamt bílskúr. Íbúðin skiptist í
forstofuhol, eldhús með borðkrók, búr, stofu,
þrjú herbergi og baðherbergi. V. 27,0 m.
5672
2ja herbergja íbúðir óskast Fjársterkur kaupandi óskar eftir nokkrum 2ja herbergja
íbúðum í lyftuhúsum á Höfuðborgarsvæðinu. Íbúðirnar verða staðgreiddar ef um semst. All-
ar nánari uppl. veitir Magnús Geir Pálsson sölumaður á Eignamiðlun.
Skrifstofuhúsnæði óskast Traust fyrirtæki óskar eftir 2200-2500 fm skrifstofuhús-
næði í Reykjavík (Reykjavíkursvæðinu) til leigu eða kaups. Góð aðkoma og góð bílastæði
æskileg. Heil húseign kæmi vel til greina. Staðgreiðsla eða bankatrygging. Allar nánari uppl.
veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
Einbýlishús í Þingholtunum óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 300-400 fm
einbýli í Þingholtunum. Verð mætti vera á bilinu 80 - 150 milljónir. Allar nánari upplýsingar
veitir Sverrir Kristinsson.
Einbýlishús í Vesturborginni óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 250-350
fm einbýli í Vesturborginni. Verð mætti vera á bilinu 90-150 milljónir. Allar nánari upplýsingar
veitir Sverrir Kristinsson.
Sérhæð óskast Traustur kaupandi óskar eftir 140-170 fm sérhæð. Þessir staðir koma
til greina: Vesturbær, Hlíðar og nágrenni Miklatúns. Allar nánari uppllýsingar veita Sverrir
Kristinsson og Hilmar Þór Hafsteinsson.
Sumarbústaður við Þingvallavatn óskast Óskum eftir sumarbústað við Þing-
vallavatn (við vatnið). Bústaðurinn má kosta á bilinu 30-70 milljónir. Staðgreiðsla í boði. Allar
nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Um er að ræða húseign með 4 íbúðum og tveimur innfelldum bílskúrum ásamt hefðbundinni
sameign. Í húsinu eru tvær, 2ja herbergja íbúðir og tvær, 5 herbergja íbúðir. Húsið er í góðu
ástandi en íbúðirnar þarfnast einhverrar aðhlynningar. Eignin selst í einu lagi. Tilvalið fyrir lag-
henta. Nánari uppl. veita Magnús í síma 892-3686 eða Kjartan í síma 824-9093 V. 75,0 m.
5615
BYGGINGALÓÐ - STARHAGI - VESTURBÆR
Um er að ræða 720 fm lóð undir einbýlishús á einum eftirsóttasta stað í vesturbæ
Reykjavíkur. Einstakt sjávarútsýni er frá lóðinni til suðurs og vesturs. V. 21,5 m. 5612
GRUNDARLAND - HORNLÓÐ
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS