Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 112
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Davíð eða Bowie?
Útvarpskonan Margrét Marteins-
dóttir í morgunútvarpi Rásar 2
mismælti sig ansi hressilega í þætt-
inum í gær, þar sem hún ætlaði að
kynna inn lag með poppmeistar-
anum David Bowie. Eftir fróðlegt
spjall við Sævar Helga Bragason
um merkilega tilraun Geimferða-
stofnunar Evrópu til undirbúnings
mannaðra ferða til Mars hugðist
Margrét kynna inn lagið Life on
Mars með David Bowie,
en sagði þess í stað
Davíð Oddsson. Þeir
heita að vísu svo til
sama fornafni, en er
varla oft ruglað saman
á götu úti. Vakti þetta
enda mikla kátínu
í hljóðverinu
og hló enginn
hærra en Mar-
grét sjálf.
Hlegið að Jóni Gnarr
Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík
hélt ávarp í byrjun málþings
Rannsóknarstofu í kvenna- og
kynjafræðum sem hófst í gær. Jón
talaði um ýmislegt er varðar karla
og konur og minntist meðal annars
á það að nýlega hefði vinkonu hans
verið boðið að segja frá innihaldi
snyrtibuddu sinnar, en hún hefði
ekki viljað það. Jón benti á að hann
hefði verið þekktur maður í mörg
ár og líklega farið í þúsund viðtöl.
Aldrei hefði hann þó verið spurður
að því hvaða rakvélar hann notaði
eða raksápu, hvað þá rakspíra. Þetta
væri orðið tímabært því hann hefði
miklar og sterkar skoðanir á þeim
málum. Vakti þetta mikla kátínu
viðstaddra, ekki síst þeirra
Vigdísar Finnboga dóttur
fyrrverandi forseta
og Ástu Ragnheiðar
Jóhannesdóttur for-
seta Alþingis,
sem hlógu
dátt á
fremsta
bekk.
- þj, - þeb
1 Framboð Hönnu Birnu líkist
framboði Davíðs Oddssonar
2 Hnúfubakar hrella brimbretta-
konu - ótrúlegt myndband
3 Málin flækjast hjá meintri
barnsmóður Biebers
4 Hæstiréttur staðfesti dóm yfir
svæfingarlækni