Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 86
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR58 58
menning@frettabladid.is
Myndlistarneminn Halla
Þórlaug Óskarsdóttir gefur
eigin texta aukið líf með
hressilegum myndskreyt-
ingum. Hún hefur nú gefið
út sína fyrstu bók.
Agnar Smári: Tilþrif í tón-
listarskólanum er fyrsta bók
myndlistar nemans Höllu Þór-
laugar Óskarsdóttur sem kom út
á dögunum. Myndskreytingarnar
og textinn eru eftir hana sjálfa en
bókin er gefin út af Bókaforlag-
inu Sölku. Myndirnar vekja strax
athygli lesandans enda eru þær
aðalatriðið að sögn Höllu.
„Myndirnar eiga að mínu mati
ekki eingöngu að endurtaka sögu-
þráðinn heldur að bæta við hann.
Það finnst mér vera hlutverk
myndskreytinga í barnabókum.
Ég reyni auk þess að glæða þær
húmor sem ég vona að bæði börn
og fullorðnir geti haft gaman af.“
Halla byrjaði að vinna í bók-
inni þegar hún sat námskeið í
Myndlistar skólanum fyrir þrem-
ur árum. „Það sem ég lagði fyrst
upp með var að gera bók sem ég
gæti myndskreytt með tónlistar-
kennurum sem líktust hljóð færum
sínum en þeir eru allnokkrir í bók-
inni. Það tengist sögu þræðinum
hins vegar lítið sem ekkert og
er bara hugsað til skemmtunar,“
segir Halla. Hún segir bókina
fjalla um Agnar Smára sem er
óvenju lágvaxinn sjö ára strákur.
„Uppáhaldsiðja hans er að semja
tónlist og það fer ekki framhjá
neinum. Hann notar hins vegar
til þess mjög frumstæðar aðferðir
og sagan segir frá deginum örlaga-
ríka þegar mamma hans ákveður
að senda hann í tónlistarskóla
til að læra alvöru tónlist. Í skól-
anum leynist ýmislegt á bak við
luktar dyr og Agnar Smári lendir,
ásamt besta vini sínum, í miklum
hremmingum. Hann á í basli með
að ráða við hljóðfærin og heim-
sóknin í tónlistarskólann verður
hálfgerð martröð. Undir lok bókar-
innar nær hann þó óvæntri stjórn
á aðstæðum,“ upplýsir Halla og
getur þess að bókin sé ætluð börn-
um á aldrinum fjögurra til níu ára
og foreldrum þeirra.
Halla lýkur myndlistarnámi við
Listaháskóla Íslands í vor og þó
að það hafi ekki verið ætlun henn-
ar í fyrstu segir hún vel koma til
greina að skrifa og myndskreyta
fleiri bækur. „Eftir að hafa farið
í gegnum þetta mikla ferli og séð
afraksturinn gæti ég vel hugsað
mér það en hef þó ekki gert það
upp við mig hvort ég geri fleiri
bækur um Agnar Smára eða eitt-
hvað annað. Ég get að minnsta
kosti vel hugsað mér að blanda
skrifum og myndlist frekar saman
enda liggur hugurinn bæði í skap-
andi skrif í Háskólanum og frek-
ara myndlistarnám erlendis. - ve
Myndirnar viðbót við söguþráðinn
HÚMORINN SKÍN Í GEGN Halla leggur áherslu á að myndirnar bæti einhverju við
söguþráðinn.
SENDUR Í TÓNLISTARSKÓLA Frumstæðar
aðferðir Agnars Smara við að búa til
tónlist verða til þess að mamma hans
sendir hann í tónlistarskóla.
VEKJA KÁTÍNU Kennararnir í tónlistar-
skólanum líkjast allir hljóðfærum sínum
en það var kveikjan að bókinni.
HUGSANLEGA FRAMHALD Halla getur
vel hugsað sér að gera fleiri bækur þar
sem hún sameinar textagerð og mynd-
skreytingar.
HÁVAÐABELGUR Vegfarendur fara ekki
varhluta af tónlistaráhuga Agnars Smára.
ÞÓRA EINARSDÓTTIR · FINNUR BJARNASON · GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON · SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · AUÐUR GUNNARSDÓTTIR · SIGRÍÐUR ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR
SNORRI WIUM · VALGERÐUR GUÐNADÓTTIR · KOLBEINN JÓN KETILSSON · VIÐAR GUNNARSSON
KÓR OG HLJÓMSVEIT ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
LÝSING: PÁLL RAGNARSSON · BRÚÐUGERÐ: BERND OGRODNIK
BÚNINGAR: FILIPPÍA I. ELÍSDÓTTIR · LEIKMYND: AXEL HALLKELL JÓHANNESSON
LEIKSTJÓRI: ÁGÚSTA SKÚLADÓTTIR · HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON
Laugardaginn 5. nóvember kl. 20 – uppselt Sunnudaginn 20. nóvember kl. 16 – uppselt
Laugardaginn 12. nóvember kl. 20 – uppselt Föstudaginn 25. nóvember kl. 20 – uppselt
Sunnudaginn 13. nóvember kl. 20 – uppselt Laugardaginn 26. nóvember kl. 21
– ALLRA SÍÐASTA AUKASÝNINGLaugardaginn 19. nóvember kl. 20 – uppselt
WAMozart
F
A
B
R
I K
A
N
AUKASÝNING laugardaginn 26. nóvember kl. 21
Þau voru ljós á leiðum okkar
Tónlistardagskrá við kertaljós
í minningu ástvina
sunnudaginn 6. nóvember 2011 í Fossvogskirkju
Kl. 14.00 Bjarni Atlason, Guðlaugur Atlason og Atli Guðlaugsson
syngja við undirleik Arnhildar Valgarðsdóttur
Hugvekja, Elín Ebba Gunnarsdóttir frá Nýrri dögun
Kl. 14.30 Kirstín Erna Blöndal söngur
Örn Arnarson gítar
Hugvekja, sr. Birgir Ásgeirsson
Kl. 15.00 Matthías Birgir Nardeau óbóleikari og
Krisztina Kalló Szklenár organisti
Hugvekja, sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
Kl. 15.30 Gospeltónar undir stjórn Óskars Einarssonar
Aðgangur er ókeypis og fólki frjálst að koma og fara að vild.
Friðarkerti Hjálparstarfs kirkjunnar eru til sölu við Fossvogskirkju.
Kópavogskirkjugarður, Hólavallagarður og Gufuneskirkjugarður eru opnir að venju.
Reykjavíkurprófastsdæmi og
Kirkjugarðar prófastsdæmanna
SVEFNHJÓLIÐ ENDURFLUTT Verðlaunaútvarpsverkið, Svefnhjólið, eftir hljómsveitina múm og Bjarna Jónsson leik-
skáld, byggt á sögu verðlaunahöfundarins Gyrðis Elíassonar, verður endurflutt í Útvarpsleikhúsinu á Rás 1 á sunnudag klukkan
14. Ungur maður flytur með lúna ferðatösku og ritvél inn í gamalt sumarhús í litlu þorpi. Fljótlega fara undarlegir atburðir að
gerast. Verkið var fyrst flutt 2004 og hlaut Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin.