Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 87

Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 87
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2011 59 Bækur ★★★ Einvígið Arnaldur Indriðason Vaka-Helgafell Margir hafa beðið spenntir eftir fimmtándu sakamálasögu Arn- aldar Indriðasonar í þeirri von að örlög Erlendar Sveinssonar upplýstust. Þeir verða þó að bíða enn um sinn því í Einvíginu víkur sögunni aftur í tímann, til ársins 1972, og söguhetjan er Marion Briem, lærifaðir/-móðir Erlendar á upphafsárum hans í lögreglunni. Marion er skemmtilega óræð persóna, ekki einu sinni á hreinu hvers kyns hún er, og eins og Erlendur er hún hálfgerður ein- fari sem tjáir sig lítt um eigin hagi. Í sögunni er rifjuð upp æska hennar ófögur; afneitað af föður, móðir ferst af slysförum og barnið með berkla. Þessi upprifjun, þótt áhrifamikil sé, hjálpar þó lítið við að varpa ljósi á persónuna og í lok sögunnar er hún nánast jafn óráðin gáta og í upphafi. Sögusviðið er Reykjavík á sumri heimsmeistaraeinvígisins í skák. Boris og Bobby koma við sögu í mýflugumyndum og plott- ið hverfist í kringum einvígið og allan þann óvíga hóp af Rússum og Bandaríkjamönnum sem kemur til landsins í tengslum við það. Arnaldur kann þá list að vefa glæpasögu og það er ekki fyrr en í allra síðustu köflunum sem les- andann fer að renna grun í það um hvað málið snýst og hverjir standa á bak við morðið á sautján ára dreng á fimmsýningu á Undir urðarmána í Hafnarbíói. Sagan er því spennandi og heldur les- anda við efnið, þótt útúrdúrarnir um æsku Marion leiði hugann frá spennunni á köflum. Arnaldi hefur oft tekist betur upp við persónulýsingar auka- persóna, þær eru hér hálfgerðir skuggar og vekja hvorki samúð né samlíðan. Albert, starfsfélagi Marion, er nokkurs konar fyrir- rennari Sigurðar Óla, en algjör andstæða hans, hippalegur náungi, skeggjaður í mussu og ekkert að láta ljós sitt skína í tíma og ótíma. Staðsetning sögunnar í tíma er snilldarlega unnin. Með örlitlum brögðum eins og vísunum í körfu- kjúkling og Alexander á Naust- inu, Sylvia’s Mother í útvarpinu og fyrstu plötu Megasar í Bók- sölu stúdenta kippir höfundur lesandanum þráðbeint inn í and- rúmsloft ársins 1972 án þess að leggjast í lýsingar á tíðaranda og tískustraumum. Kalda stríðið er enn í fullum gangi og lýsingarnar á paranoju Rússanna og Kan- anna hvorra gagnvart öðrum eru bráðskarpar og skemmtilegar. Sem stílisti hefur Arnaldur verið að þroskast jafnt og þétt og þótt hann nái ekki hér þeim hæðum sem hann kleif í Furðu- ströndum í fyrra er varla hnökra að finna í textanum. Þar á ofan er hann orðinn meist- ari í því að skilja lesandann eftir með spurningu í lok bókar og því æstan í að lesa næstu bók. Lok Einvígisins gætu bent til þess að hann hygðist nú skrifa forsögu Erlendar Sveinssonar sem lög- reglumanns, en þegar Arnaldur er annars vegar er ekki á vísan á að róa með slíkt og spennan eftir næstu bók er því nánast eins mögnuð og eftir þessari. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Spennandi og heilsteypt saga með nokkuð langsóttu plotti sem er snilldarlega leyst. Köld stríð fyrirrennarans Janne Rättyä Sif Tulinius Ungsveit Sinfóníunnar Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Miðasala í anddyri Hörpu » Sími: 528 5050 » Opið 10–18 virka daga og 12–18 um helgar Louisa Matthíasdóttir „Hin tæra sýn“ 1963-1990 Sölusýning í Studio Stafni Ingólfstræti 6. Opnar í dag kl. 15.00 Ný heimasíða studiostafn.is Sýningin stendur til 20. nóvember Skraut- og listmunaviðgerðir Geri hluti eins og nýja (úr hvaða efni sem er) Jón Vilhjálmsson Sími 690-8969 Geymið auglýsinguna Geri hluti eins og nýja (úr hvaða efni sem er) Geri líka við málverk Jón Vilhjálmsson Sí i 6 - 69 Geymið l singuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.