Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 96
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR68
Padma Lakshmi sagði í nýlegu
viðtali að þótt hún væri einstæð
móðir væri hún alls ekki ein um
að ala upp dóttur sína, Krishnu
Theu. Sjónvarpsstjarnan sagðist
njóta liðsinnis fjölskyldumeðlima
sinna og að dóttir sín nyti góðs af
því.
„Ég er einstæð móðir en ég er
alls ekki ein í uppeldinu. Krishna
á stóra fjölskyldu sem elskar hana
og við erum öll samtaka í upp-
eldinu. Því fleiri sem eru í kring-
um hana, þeim mun betra, því þá
fær hún að kynnast fjölbreyti-
leika lífsins,“ sagði sjónvarps-
kokkurinn, sem eignaðist Krishnu
með Adam Dell, bróður stofnanda
Dell-tölvufyrirtækisins.
Einstæð
en ekki ein
Á GÓÐA FJÖLSKYLDU Padma Lakshmi á
stóra fjölskyldu sem aðstoðar hana við
uppeldið á dóttur hennar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Poppsöngkonan Lady Gaga undir-
býr nú stofnun samtaka sem
ætlað er að berjast á móti einelti.
Samtökin munu bera sama heiti
og plata hennar, Born This Way,
sem kom út fyrr á þessu ári og
hefur selst í rúmlega átta millj-
ónum eintaka.
Lady Gaga hefur verið áber-
andi í baráttunni gegn einelti,
en hún hefur talað opinskátt um
reynslu sína af einelti sem barn.
Hún segist vona að samtökin
muni hjálpa ungu fólki að öðlast
sjálfstraust og að takmarkið sé
að hugrekki og góðvild verði ráð-
andi í samskiptum fólks.
Lady Gaga á
móti einelti
Í BARÁTTUHUG Lady Gaga mun stýra
samtökunum ásamt móður sinni.
NORDICPHOTOS/GETTY
Það á ekki af Lohan-fjölskyldunni að ganga.
Dóttirin Lindsay Lohan veit varla í hvorn fót-
inn hún á að stíga, móðirin ætlar að gefa út
ævisögu þar sem hún kjaftar frá öllu og nú
hefur pabbinn, Michael Lohan, verið settur
í einangrun.
Michael, sem hefur margoft komist í kast
við lögin, var lokaður inni eftir að hafa rofið
nálgunarbann sem fyrrverandi kærasta
hans, Kate Major, fékk á hann. Hann hafði
þá einnig ráðist á hana og er gert ráð fyrir
að Michael sitji inni þar til réttarhöldin fara
fram á miðvikudag. Michael hefur hins vegar
nýtt tímann vel og verið í stöðugu sambandi
við gamla kærustu, raunveruleikastjörnuna
Kim Granatell. „Kim hefur talað við Micha-
el og honum líður ákaflega illa,“ er haft eftir
vini Kim, Tom Murro. Michael er sakaður
um að beitt Kate líkamlegu og kynferðis-
legu ofbeldi.
Bandarískir fjölmiðlar fylgjast grannt
með Lohan-fjölskyldunni sem
hefur verið dugleg að koma
sér í fréttirnar. Í gær bár-
ust síðan fréttir af því að
Playboy hefði boðað Lindsay
Lohan aftur í töku þar sem
fyrri myndatakan hefði ekki
heppnast nógu vel. Lohan,
sem hefur ekki sést á hvíta
tjaldinu lengi, vonast til að
myndirnar verði til þess að
ferill hennar komist á flug
á nýjan leik.
Lohan settur í einangrun
Þótt persóna hans, James Bond,
sé ekki við eina fjölina felld
ætlar Daniel Craig að passa upp
á að það verði nóg pláss fyrir
eigin konuna, Rachel Weisz, á
tökustað Skyfall, næstu mynd-
ar um James Bond. Hann hefur
nefnilega beðið um hjónarúm í
hjólhýsið sitt.
Hjónarúmið er ekki það eina
sem leikarinn vill því hann
hefur einnig krafist þess að hafa
kaffivél með suður-amerískum
baunum, að tveir lífverðir séu á
staðnum og nuddari sé til taks og
að hann hafi óheftan aðgang að
æfingasal.
Vill tvöfalt rúm
ALLA LEIÐ Daniel Craig ætlar að
gefa allt í Bond-hlutverkið og vill að
eiginkona sín, Rachel Weisz, komi í
heimsókn til sín á tökustað.
OFBELDISMAÐUR Michael Lohan
er sakaður um að hafa beitt fyrr-
verandi kærustu sína líkamlegu
og kynferðislegu ofbeldi.