Fréttablaðið - 05.11.2011, Blaðsíða 98
5. nóvember 2011 LAUGARDAGUR70
Norrænn nóvember
Norræna félagið á Íslandi stendur fyrir huggulegri dagskrá í haustmyrkrinu.
Norræna bókasafnavikan fer fram dagana 14.-20. nóvember á
bókasöfnum um allt land og í nágrannalöndunum. Þema árs-
ins er Norrænn húmor. Upplestur verður úr bókunum Rokkað
í Vittula eftir Mikael Niemi, Bjólfskviðu og úr Í búðinni hans
Mústafa eftir Jakob Martin Strid fyrir yngstu kynslóðina.
Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá með útgangspunkt í
norrænum húmor og lofað er góðri viku á bókasöfnunum.
Norrænt uppistand 11.11.11. Grínistarnir Anna Svava Knútsdót-
tir, Ruben Søloft, danskur meistari í uppistandi árið 2010 og
Zinat Pirzadeh, fyndnasti kvengrínisti Svíþjóðar 2010 koma
fram í Norræna húsinu föstudaginn 11. nóvember, kl. 20.00.
Uppistandið er í tengslum við ungmennahátíð Nordklúbbsins
og markar einnig upphaf Norrænu bókasafnavikunnar. Í boði
Nordklúbbsins og í samstarfi við bókasafn Norræna hússins.
Ókeypis aðgangur.
Norskunámskeið fyrir byrjendur verður haldið á miðvikudögum
frá 9. nóvember, kl. 18.00 - 19.30, alls fimm skipti. Lögð er
áhersla á orðaforða og hagnýta þekkingu á norskri tungu.
Námskeiðsgjald er kr. 6.500 Námskeiðið er ætlað félags-
mönnum Norræna félagsins, en auðvelt er að ganga í félagið.
Lýðháskólanám á Norðurlöndum er skemmtilegur kostur. Síðustu forvöð eru til að sækja um
skólavist fyrir vorönn. Norræna félagið veitir styrki til lýðháskóladvalar. Umsóknarfrestur um
styrki rennur út þann 1. desember.
Óðinsgötu 7 • 101 Reykjavík • www.norden.is s. 5510165 . norden@norden.is
Alþjóðatorg er alþjóðleg
ungmennamiðstöð og sam-
tök sem hafa verið starf-
rækt í Reykjavík í rúmt
ár. Samtökunum er ætlað
að aðstoða unga innflytj-
endur á Íslandi við félags-
lega aðlögun og styðja þá og
fræða. Ungt fólk af erlendu
bergi brotnu heldur að öllu
leyti um stjórntaumana.
„Þetta er allt rekið af okkur, ungu
fólki á aldrinum 16-30. Þetta er
samt öllum opið – allir sem vilja
taka þátt eru velkomnir,“ segir
Raúl Sáenz, meðlimur í stjórn
Alþjóðatorgs, en hann flutti til
Íslands frá Mexíkó fyrir fimm
árum.
„Þetta varð til í framhaldi af
ráðstefnu þar sem 200 einstakling-
ar frá 100 löndum komu saman og
létu í sér heyra um hvað við unga
fólkið af erlendum uppruna á
Íslandi sáum fyrir okkur. Það kom
í ljós að langflestir vildu fá vett-
vang þar sem hægt væri að hitta
aðra útlenska krakka til að styrkja
sjálfsmyndina sem útlendingur á
Íslandi, finnast vera hluti af ein-
hverju og virkja hæfileika einstak-
linganna sem töluðu hvorki góða
íslensku né ensku.“
Raúl segir mikla þörf hafa verið
fyrir samtökin því unga fólkið hafi
oft verið óöruggt í félagslegum
aðstæðum þar sem Íslendingar
voru í meirihluta. Í stað þess að
einangrast félagslega er stuðn-
ingur og vinátta í boði á Alþjóða-
torgi. „Það er ekki Íslendingum að
kenna, en okkur finnst óþægilegt
að vera einhvers staðar þar sem
langflestir eru Íslendingar og töluð
er fullkomin íslenska. Við getum
ekki komið okkur á framfæri eða
sagt það sem við viljum segja. Við
erum feimin og hrædd um að tala
ekki nógu góða íslensku. Okkur
vantaði svona vettvang einsog
Alþjóðatorg til að bæta sjálfsmynd
okkar til að vera sterk fyrst sem
útlendingar á Íslandi sem hafa
hæfileika frá heimalandi sínu og
bæta svo við hæfileikum sem við
þróum í nýju landi.“
Hann kannast þó ekki við að
Íslendingar séu fordómafullir.
„Satt að segja hef ég aldrei fund-
ið fyrir fordómum. Við höfum
talað mikið um þetta og það er
ekki okkar tilfinning að Íslend-
ingar séu fordómafullir. Menn-
ingin er bara öðruvísi eins og í
öllum menningar heimum. Þið
eruð aðeins feimin og það er hægt
að mistúlka það sem fordóma. Ég
held það sé bara eðli Íslendinga að
vera ekki beint lokaðir, en kannski
kaldir. En það er sjaldan að maður
heyri að ráðist sé á fólk vegna upp-
runa síns.“
Alþjóðatorg stendur fyrir fjöl-
breyttri dagskrá og nú um helgina
fer rúta frá Reykjavík til Akra-
ness þar sem nepölsk Tihar-hátíð
fer fram. Raúl hvetur alla sem hafa
áhuga til að skoða fésbókarsíðu
samtakanna til að kynna sér starf-
semina og komast í samband við
aðra meðlimi. „Við erum orðin mun
meira en bara stofnun eða samtök.
Okkur finnst gaman að taka þátt í
samfélaginu og vera virk í því. Og
það hefur tekist sem okkur langaði
fyrst og fremst, að fólki gæti liðið
hér vel, haft trú á sjálfu sér, kynnst
fólki og ræktað með sér alvöru vin-
áttu.“ bergthora@frettabladid.is
Aldrei fundið fyr-
ir fordómum hér
VETTVANGUR FYRIR UNGA INNFLYTJENDUR Raúl Sáenz situr í fjölþjóðlegri stjórn
Alþjóðatorgs þar sem sjö þjóðir eiga fulltrúa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Turninum 12 hæð - Smáratorgi 3 - 201 Kópavogi - domusnova@domusnova.is - www.domusnova.is