Fréttablaðið - 10.12.2011, Page 36

Fréttablaðið - 10.12.2011, Page 36
10. desember 2011 LAUGARDAGUR36 Þegar fiskurinn er tekinn upp úr vatninu gerir hann sér fyrst grein fyrir tilveru sinni Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, frumkvöðull á sviði jafnréttiskennslu H vað kemur fyrst upp í huga ykkar þegar þið hugs- ið um hvað þið lærðuð í þessum áfanga? Ísak: „Það hvernig konur eru sýndar í bíómyndum og hvað þær leika raunverulega lítið hlutverk í þeim. Yfirleitt fjalla myndir um einhverja tvo karla, svo er kannski ein kona í aukahlutverki, sem segir og gerir lítið. Í How I Met Your Mother þykir það mjög fynd- ið þegar einhver maður kemur fram við konuna sína eins og skít. Það er alltaf verið að djóka með vændi, kynferðislega misnotkun og ofbeldi gagnvart konum, bæði í bíómyndum og af fólki í sam- félaginu. Eins og þetta sé eitthvað sniðugt, þegar þetta er í rauninni bara hræðilegt.“ Birta: „Það sem stendur upp úr hjá mér er að nú veit ég svo miklu meira og get tjáð mig um jafnréttis mál. Þegar maður hefur skoðanir á hlutunum er auðveld- ara að gagnrýna þá. Ég fór að taka eftir því hvernig ég lít á sjálfa mig og aðrar stelpur. Við stelpur þurf- um að vera sterkari og ánægðari með okkur. Við fórum í mjög heitar samræður um klám og klámvæð- inguna í tímunum. Núna, þegar ég sé konu í klámi, hugsa ég „greyið konan, í hverju lenti hún sem lítil stelpa sem gerir það að verkum að hún vill taka þátt í þessu“, en ekki „vá hvað hún er flott“. Ingibjörg: „Ég upplifi mig miklu sterkari en áður. Maður uppgötvaði að maður á sinn stað í sam félaginu og er alveg jafn mikils virði og allir aðrir. Maður þarf ekki að vera í öðru sæti allt sitt líf.“ Grétar: „Mér fannst merki- legast að skoða tölfræðina. Við skoðuðum tölur frá Hagstofunni, þar sem við sáum svart á hvítu hversu mikill munur er í raun og veru á launum kynjanna. Og eins og Ísak fannst mér þetta með bíó- myndirnar merkilegt. Við gerðum svona Bechdel-próf á bíómyndum, en það er próf sem þú getur sjálf- ur gert á bíómynd. Við sáum að ef það eru tvær konur í bíómynd að tala saman þá eru þær nær alltaf að tala um karlmenn.“ Endalausar tilvísanir í klám Grétar: „Konur eru líka hlut- gerðar í auglýsingum. Tilfinning- arnar eru teknar úr þeim. Kven- líkaminn er kannski látinn líta út eins og flaska, því þær eru bara hlutur. Konur halda líka oft fyrir munninn á sér, sem er merki um að verið sé að þagga niður í þeim. Eins og þær eigi ekki að tjá sig. Og síðan er það klámið. Í því er ótrú- lega oft skírskotun í börn, þar sem konurnar eru til dæmis ekki með nein hár að neðan eins og litlar stelpur.“ Birta: „Það er tilvísun í klám í nánast hverri einustu auglýsingu með konu í, alveg óháð því hvað hún er að auglýsa.“ Ingibjörg: „Og þær eru líka gerðar að börnum þar. Í einni aug- lýsingu sem við skoðuðum var kona klædd í hálfgerð barnaföt og með tíkó í hárinu. Í spegli fyrir aftan hana sást að það var fullorð- inn karlmaður að taka myndina af henni. Þetta er bein vísun í barna- klám. Þetta þykir bara eðlileg aug- lýsing fyrir stóra tískukeðju. Fólk hugsar bara „já, flott auglýsing, ég ætla að kaupa mér svona buxur“. Ísak: „Ég fór einmitt að taka eftir þessu eftir að ég fór í þenn- an áfanga. Eins og í einni Subway- auglýsingu, þá er bátur eins og typpi á myndinni á leiðinni upp í opinn munn á konu. Auglýsing- arnar fyrir Hlunka eru svipaðar, nærmynd af konumunni og tung- an úti.“ Grétar: „Þetta er svo stórt mál- efni. Maður er búinn að lifa í þessu samfélagi svo lengi án þess að taka eftir þessu. En eftir að maður opn- aði augun þá fór maður að sjá að samfélagið er í bara í ruglinu. Manni fannst þetta allt svo eðli- legt áður en maður fór í þennan áfanga.“ Sumir strákar fíla að nauðga Haldið þið að þetta hafi mikil áhrif á hvernig strákar líta á stelpur? Hvaða hugmyndir haldið þið að þetta skapi í hugum stráka um stelpur? Grétar: „Að þær séu bara fylgi- hlutir okkar.“ Ísak: „Og þú ræður yfir fylgi- hlutnum þínum.“ Ingibjörg: „Þetta skapar óvirð- ingu. En meiri virðing fyrir konum lækkar glæpatíðni gagn- vart þeim. Það er meira ofbeldi gegn konum heldur en körlum því það er borin minni virðing fyrir þeim.“ Grétar: „Strákar þurfa að vita hvað þeir eru í raun og veru að gera stelpunum þegar þeir hegða sér á vissan hátt. Ég hélt til dæmis áður að stelpu sem er nauðgað liði kannski illa í 2-3 mánuði eftir það, svo yrði allt í lagi. Ég vissi ekki að líf hennar gæti farið í rúst. Ef fleiri strákar færu í svona áfanga myndi hugur þeirra kannski opnast og nauðg- unum fækka.“ Ísak: „Það eru líka margar stelpur sem hafa skrýtnar hug- myndir um þetta. Þegar Gillzen- egger-málið var sem mest í umræðunni hérna um daginn sagði ein stelpa: „Sumir gaurar fíla bara að nauðga!“ Eins og það væri einhver réttlæting.“ Eru svertingjabrandarar þá í lagi? Sumir sjá ekkert athugavert við það að skella fram einum karl- rembubrandara við gott tækifæri, en líta samt á sig sem jafnréttis- sinna. Hvað finnst ykkur um það? Ísak: „Er þá líka í lagi að hlæja að svertingjabröndurum?“ Ingibjörg: „Það stuðlar að for- dómum að segja kvenfyrirlitn- ingarbrandara. Þetta mál verður aldrei tekið alvarlega ef fólk held- ur áfram að segja svona brandara eins og ekkert sé.“ Birta: „Það er svolítið merki- legt að það að vera „kerling“ felur í sér niðurlægingu fyrir karlmenn. Svona menning á meðal stráka gerir stöðu okkar stelpnanna verri og lætur strákana líka líta illa út. En svo má ekki gleyma að strákar eiga líka erfitt í þessu samfélagi. Margir strákar halda að þessi áfangi sé bara fyrir stelpur og það sé bara einblínt á konur. En það er ekki þannig.“ Jafnréttissinni = femínisti Mynduð þið skilgreina ykkur í dag sem femínista? Birta: „Ég hef ekkert á móti því að vera kölluð femínisti. Ég er það! Ingibjörg: „Ég á náinn vinkonu- hóp og þær skilja eiginlega ekki hvað orðið femínisti þýðir. Svo þegar ég útskýri fyrir þeim hvað það þýðir þá eru þær alveg „jááá“. Með samfélagsmótuninni virðist orðið „femínisti“ vera orðið nei- kvætt.“ Birta: „Nákvæmlega, þú getur verið jafnréttissinni, en alls ekki femínisti. Samt er alveg samasem- merki þarna á milli.“ Ísak: „Ég myndi ekki hafa neitt á móti því að kalla mig femín- ista, en ég er samt ekki viss um að ég leggi mikið af mörkum með því. Mér finnst líka að það þurfi að vera eitthvað á bak við orðið. Erpur, til dæmis, kallar sig femín- ista, en semur lög eins og „Við elsk- um þessar mellur“ og „Viltu dick“. Það er ekkert á bak við þetta hjá honum.“ Grétar: „Skilgreiningin á femín- ista er einhver sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og er reiðubúinn að leggja eitthvað af mörkum til þess að laga það. Það er að vera femínisti.“ Birta: „Það er eins og það fylgi þessu orði einhver skömm. Stelpur vilja kannski kalla sig femínista en gera það ekki, af því þú ert ekki í vinningsliðinu ef þú kallar þig það. Þá ertu bara farin í einhvern allt annan hóp.“ Ingibjörg: „En maður finn- ur alveg fyrir breytingu hérna í Borgó. Það eru 30 nemendur á önn sem klára þennan áfanga. Hjá þeim breytist viðhorfið og það smitar út frá sér.“ Samfélagið er bara í ruglinu Árið 2007 varð Borgarholtsskóli fyrsti framhaldsskólinn til að bjóða áfanga í jafnréttisfræðslu. Hann hefur notið vinsælda og það kemur fyrir að vísa þurfi nemendum frá vegna mikillar aðsóknar. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir spjallaði við Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur kennara og fjóra nemendur hennar. Allir segjast þeir sjá heiminn í nýju ljósi eftir að hafa setið áfangann. Markmiðin með jafnréttisfræðslunni er fyrst og fremst viðhorfanám og vitundar vakning. Ég er búin að kenna þenn- an áfanga svo oft og svo mörgum ólíkum nemendahópum að ég veit að hann virkar,“ segir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari við Borgarholtsskóla. Hún kennir KYN 103 sem komst í umræðuna í síðustu viku, þegar einlæg grein birtist eftir nemanda hennar í Fréttablaðinu. Þar sagðist hann meðal annars hafa verið karlremba, áður en hann sat áfang- ann, en sé nú breyttur maður. Borgarholtsskóli var fyrsti framhalds- skólinn til að bjóða upp á áfanga í kynjafræði, sem er merkilegt í ljósi þess að í jafnréttis- lögum frá árinu 1975 er kveðið á um að jafn- réttisfræðsla skuli fara fram á öllum skóla- stigum. Í dag bjóða nokkrir skólar kynjafræði sem valáfanga. Hanna kenndi áfangann fyrst árið 2007 og hefur stundum þurft að vísa nemendum frá vegna ásóknar. Sjálf er hún með bakgrunn í félagsfræði og sögu, og meistaragráðu í kennslufræði. „Ég kenni þetta ekki fræði- lega, heldur út frá praktík og lífshamingju nemenda minna. Ég reyni að höfða til tilfinn- inga þeirra. Það má líkja minni kennslufræði við það að taka fiskinn upp úr vatninu, því aðeins með því gerir hann sér grein fyrir til- veru sinni.“ Eitt af því sem Hanna tekur fyrir í kennsl- unni er þöggun kvenna. „Við erum aldar upp í því að þurfa að vera svo sætar, grannar og sérstakar. Okkur er kennt að ef við erum þetta ekki, þá höfum við ekki rödd. Þegar við eldumst þurfum við sterk bein til að standa upp og segja skoðun okkar vegna þess að við höfum ekki lengur útlitið – ef við höfum þá einhvern tímann haft það. Stelpur þurfa að vita að það er kerfisbundið verið að þagga niður í þeim.“ Í starfi sínu sem kennari hefur Hanna séð ýmislegt misjafnt. „Stundum er eins og ég reki útibú frá Stígamótum hérna. Á hverju einasta ári koma til mín stelpur sem hafa lent í alveg ótrúlegum hlutum. Þær hafa lent í nauðgunum, jafnvel hópnauðgunum og eiga sumar kærasta sem beita þær ofbeldi. Þær eru úrræðalausar – upplifa sig fastar og valdalausar.“ Hanna segir mikilvægt og oft gleymast í umræðunni að karlmenn njóta sín ekki heldur í núverandi ástandi. „Þetta snýst ekki um að strákar sitji í reykmettuðum herbergjum og ákveði þar að dissa konur. Þetta er valdaelíta karla sem er að verki. Hvað þarftu til að gera hugmynd ráðandi? Þú þarft vald. Og hver hefur valdið? Það eru þeir. Það er mikil- vægt að átta sig á þessari tengingu, til að sjá samhengið. En karlmennskan, hún er ókeypis. Það eru fleiri sjálfsvígstilraunir meðal karla, þeir fara síður í meðferð og stunda frekar áhættuhegðun. Karlmennskan gerir líka ýmsar kröfur til stráka. Þeir eiga að vanvirða konur og hlæja að kvenfyrirlitn- ingarbröndurum, annars eru þeir ekki með í hópnum.“ ■ SKAÐI FYRIR ALLA, KONUR OG KALLA Næst þegar þú, lesandi góður, ætlar að setjast niður og horfa á Hollywood- bíómynd skaltu prófa að spyrja þig eftirfarandi spurninga á meðan þú horfir: 1. Eru tvær eða fleiri kvenpersónur í kvikmyndinni, sem bera nafn? 2. Er atriði í myndinni þar sem þessar tvær kvenpersónur tala saman? 3. Tala þær um eitthvað annað en karlmenn? Forvitnilegt er að sjá að stór hluti af vinsælustu Hollywood- bíómyndunum stenst ekki Bechdel-prófið. Það er að segja að í meirihluta þeirra eru engar kvenpersónur. Hægt er að kynna sér prófið í þaula á vefsíðunni http://bechdeltest.com/ Bechdel-prófið BREYTT HEIMSMYND Nemendur við Borgarholtsskóla, sem hafa setið áfanga í jafnréttisfræðslu, segja að samfélagið skapi stráka sem haldi að stelpur gegni helst því hlut- verki að vera fylgihlutir þeirra. Á myndinni situr Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kennari á milli þeirra Ísaks Hrafns Stefánssonar og Birtu Baldursdóttur. Þá kemur Ingibjörg Ragna Frostadóttir og loks Grétar Birgisson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.