Fréttablaðið - 10.12.2011, Síða 80
6 fjölskyldan
fróðleikur
gott að vita ...
Sex tegundir af ferskum íslenskum barnamat í krukkum finnast í mjólkur-kælum nokkurra stórmark-
aða á Íslandi. Þrjár úr grænmeti og
þrjár úr ávöxtum. Þeim kemur til
með að fjölga á næstunni, að sögn
Hauks Magnússonar í fyrirtækinu
Barnavagninn sem stendur á bak
við þessa nýjung. Haukur segir
móttökurnar hafa verið góðar. „Við
stofnuðum Facebook-síðu eins og
allir aðrir, þar er mikil umferð og
langflest ummælin hafa verið mjög
jákvæð. Krakkarnir sem komast á
bragðið kunna vel að meta þennan
mat.“
Framleiðslan er suður í Garði í
litlu húsi sem reist var undir starf-
semina. „Þar fer ekkert inn nema
ávextir og grænmeti, annaðhvort
til framleiðslu barnamatar eða til
pökkunar fyrir fyrirtæki,“ segir
Haukur sem rekur bæði Barna-
vagninn og Ávaxtabílinn. Hann
segir hugmyndina að barnamatn-
um hafa verið að smá þróast. „Við
erum alltaf í samstarfi við ávaxta-
og grænmetisbirgja og fannst
þessi framleiðsla passa vel fyrir
okkur,“ segir hann.
Kartöflurnar, rófurnar og gul-
ræturnar í barnamatnum eru
ræktaðar í íslenskri mold að lang-
mestu leyti að sögn Hauks en
ávextirnir eru skiljanlega inn-
fluttir. „Við erum með banana og
döðlur saman, sveskjur og epli.
En við ætlum að bæta við úrvalið
af ávaxtamaukinu enda eru engin
takmörk á því hvenær krakkarnir
hætta að borða það. Þau geta
alveg tekið það með sér
í skólann.“
Skyldi Haukur
ekki þurfa að
setja eitthvað
út í matinn
til að hann
geymist?
„ Þ að er
sett smá epla-
sýra út í tvær
tegundir af þessum
sex sem við búum til.
Eplasýran er náttúruleg
afurð og er notuð til að ná niður
sýrustigi. Annars dugar maturinn
í þrjár vikur í kæli.“
Maturinn frá Barnavagninum
fæst í Bónus, Krónunni og Hag-
kaupi. Haukur segir helsta vanda-
málið það að hann geti ekki verið
í hillunum hjá innflutta barna-
matnum sem er með svo miklum
aukaefnum að hann getur verið
utan kælis. „Verslanirnar hafa
tekið okkur vel frá byrjun en þær
átta sig á því að staðsetningin er
þröskuldur. Hún hefur
háð okkur meira en
okkur grunaði
nokkurn tíma.
Kíktu í mjólk-
urkælinn
verður því
okkar kjör-
orð á næst-
unni.“
Íslenskt góðmeti
upp í litla munna
Ferskur íslenskur barnamatur kom nýlega á markað hér á landi. Hann er framleiddur í
fyrirtækinu Barnavagninum suður í Garði og hráefnið er meðal annars íslenskt grænmeti.
Kjörorðið Beint úr Garðinum á því afar vel við.
Sex gerðir
Tegundirnar eru enn
sem komið er sex,
þrjár eru úr grænmeti
og þrjár úr ávöxtum.
Óliver Tumi Auðunsson, 6 ára, býður til útgáfugleði í
Eymundsson í Austurstræti í dag klukkan 14. Tilefnið er
útkoma bókarinnar Óliver Tumi, segðu mér sögu, en þar
segir hinn ungi rithöfundur sögur og ævintýri fyrir börn á
öllum aldri. Óliver Tumi er yngsti rithöfundur Íslands-
sögunnar og hann átti sjálfur frumkvæði að útgáfunni.
Kátt verður á hjalla í útgáfugleði Ólivers Tuma. Jólasveinn-
inn kemur í heimsókn og Geir Ólafs tekur lagið, en hann
sendi á dögunum frá sér barnaplötuna Amma er best. Guðni
Ágústsson fyrrverandi ráðherra og afi Ólivers verður
veislustjóri. Boðið verður upp á veitingar og eru allir
hjartanlega velkomnir.
Hluti af söluandvirði bókar Ólivers Tuma rennur til
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, að frumkvæði hins unga
höfundar.
Útgáfugleði Ólivers Tuma
Nammi namm Krakk-
arnir sem komast á bragðið
kunna vel að meta þennan
mat, segir Haukur Magnús-
son hjá Barnavagninum.
NORDICPHOTOS/GETTTY
GULRÆTUR eru sneisafullar
af næringarefnum og góðar í
litla maga. Þær hafa að geyma
bestu uppsprettu af
beta-karótíni sem völ er á, en
það er meðal annars
mikilvægt fyrir sjónina.
o.fl. o.fl.
sögur
uppskriftir
leikirgjafir