Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 8
r
Svafa Þórleifsdóttir:
Okkar á
Nú að nýafstöðnu landsþingi K. I.
er auðvitað margt, sem ræða þarf nán-
ar, enda mun það verða gert smátt og
smátt í þessum þætti, þar sem fátt eitt
verður minnzt á að þessu sinni.
Orlof húsmæðra er aðkallandi mál,
en ekki auðleyst, svo að haldi komi.
Sennilega hafa margar konur vænzt
þess, að milliþinganefndin, sem kosin
var á landsþingi 1955 til þess að vinna
að þessu máli, gæti nú lagt fram til-
lögur um lausn málsins, en ályktanir
nefndarinnar, sem landsþingið sam-
þykkti samhljóða, sýna, að enn þarf
mikið starf við undirbúning málsins
áður en svo langt er komið, að frum-
varp að lögum, sem framkvæmanleg
eru, verður fullbúið. Með ályktunum
sínum lagði nefndin fram ýtarlega
greinargerð. Mun hún verða birt í
næsta tölublaði ,,Húsfreyjunnar“. Væri
mjög æskilegt, að lesendur blaðsins
kynntu sér greinargerð þessa sem ræki-
legast, til þess að fylgjast sem bezt með
störfum nefndarinnar og gangi máls-
ins, enda nauðsynlegt til þess að gera
sér engar tyllivonir um skjóta uppfyll-
ingu þeirra vona, sem tengdar eru
þessu máli.
Eitt af því, sem þetta landsþing f jall-
aði um og samþykkti í einu hljóði, var
samræming á lögum héraðssambanda
samkvæmt tillögum félagsmálanefnd-
tntlli sagt
ar. Tillögur þær, sem nú náðu fullnað-
arsamþykki, eru á þessa leið:
1. að á eftir nafni sambandsins
komi bæði í fyrirsögn fyrir lögunum
og í lagagrein um heiti þess: „1 Kven-
félagasambandi Islands (K. I.) og þá
jafnframt Húsmæðrasambandi Norðrn--
landa (N. H. F.).“
2. að í lagagrein um tilgang sam-
bandsins sé tekið fram, að aðaltilgang-
ur sambandsins sé að sameina krafta
kvenfélaganna á sambandssvæðinu til
þess að vinna að stefnuskrármálum
Kvenfélagasambands íslands, sem í
stuttu máli eru þau, að efla velferð
heimilanna, með því að stuðla að sí-
auknum hollustuháttum, hagsýni, fé-
lagslegum þroska og alhliða menningu
hvers einstaks heimilis.
3. að viðvíkjandi stjóm sambands-
ins komi þessi atriði:
a) að varaforseti skuli jafnan vera
ein af þeim konum, er skipa að-
alstjórn.
b) að öll varastjórnin sé kosin ár-
lega án allrar verkaskiptingar
þeirra í milli, en að varastjórnar-
konur komi inn í aðalstjórn til
starfa í þeirri röð, er atkvæða-
fjöldi skipar þeim (eða hlut-
kesti), þá er með þarf.
4. að lögboðið sé, að stjórn sam-
8 HÚSFREYJAN