Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 28

Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 28
blanda saman við það góðu rabarbara- mauki. DÖKKAR SANDKÖKUR 225 gr. smjörlíki 1 tsk. lyftiduft 150 gr. sykur 260 gr. hveiti 2 tsk. vanillusykur Sætar möndlur Smjörlikið brúnað varlega á pönnu, má ekki brenna Hellt varlega í skál, botn- fallið skilið eftir. Kælt, þá er báðum syk- urtegundunum hrært saman við, hrært þar til það er létt og ljóst. Hveiti og lyfti- dufti hrært saman við. Deigið látið stífna. Hýðið tekið af möndlunum og þær klofn- ar. Smákúlur mótaðar milli handanna, látnar á ekki of smurða plötu, hálfri möndlu þrýst ofan í hverja köku. Bakað við vægan hita, þar til möndlurnar eru ljósgular. AMERÍSKAR PIPARKÖKUR 150 gr. strásykur 150 gr. púðursykur 1% dl. ljóst síróp 1 dl. sterkt kaffi 300 gr. smjörlíki IV2 msk. engifer 1 tsk. kanell 1 pommeranhýði 1 msk. natron 770 gr. hveiti Sætar möndlur eða hnetur Síróp, kaffi og krydd er soðið saman, hellt heitu yfir smjörlíkið. Hrært, þar til það er kalt. Hveiti og natron sáldrað sam- an við og deigið hnoðað, þar til það er meðfærilegt og gljáandi. Látið bíða til næsta dags. Þá er deigið hnoðað á ný, strásykri og púðursykri bætt í. Mótaðar smáar kúlur, ef vill er möndlu stungið í miðjuna. Bak- aðar við vægan hita. Kökurnar fljóta nokkuð út og verða allar eins og smá- sprungnar að ofan. VANILLUKÖKUR 200 gr. smjörlíki eða 1 tsk. 2 dl. sykur vanilludropar 2 tsk. vanillusykur 6 dl. hveiti Vz tsk. hjartarsalt Smjörlíkið hrært með sykrinum, þar til það er létt og ljóst. Hveiti, hjartarsalti og vanillusykri sáldrað saman við. Hrært saman. Mótaðar smákúlur eða deigið sett með teskeið á smurða plötu. Bakað við jafnan hita (200°). SÚKKULAÐISPÆNIR ca. 30 stk. 150 gr. smjörlíki 150 gr. hveiti 150 gr. sykur 100 gr. súkkul., dökkt 3 egg 15 möndlur Smjörlíkið brætt. Þegar það er kalt, er það hrært ásamt sykrinum, þar til það er létt og ljóst. Eggin hrærð saman við, eitt og eitt í einu. Að síðustu er hveitinu hrært í deigið. Deigið er látið með teskeið á vel smurða plötu. Breitt út í aflanga köku (6x8 cm.). Bakað við góðan hita. Þegar Svona eru spænirnir vafðir upp og fylltir. 28 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.