Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 42
Appelsínurnar eru flysjaðar, skornar í
bita, sykrinum stráð yfir. Látið bíða í
Y2 klst. Appelsinunum og safanum, sem
hefur nmnið úr þeim, blandað saman við
hrísgrjónin. Ef vill má bæta meiri sykri
saman við. Rétt áður en borðað er, er
hinum stífþeytta rjóma hrært saman við.
f þennan rétt má nota afgang af hrís-
grjónagraut.
APPELSÍNUTRIFLÉ
2V2 dl. mjólk 4
3 eggjarauður 2
60 gr. sykur
V2 tsk. vanilludropar
2 blöð matarlím %
1-2 epli
appelsínur
msk. sykur
Möndlukökur eða
aðrar smákökur
dl. sherry
(má sleppa)
Eplin og appelsínurnar eru þvegnar og
flysjaðar, skomar í þunna bita. Lagt í lög-
um í skál, sykri stráð á milli. Látið bíða
1 klst. undir loki.
Eggjarauðurnar þeyttar með sykrinum,
sjóðandi mjólkinni hellt saman við, hellt
í pottinn aftur. Hitað aftur, þar til það
hefur þykknað. Hrært stöðugt í á meðan,
má ekki sjóða. Tekið af eldinum. Matar-
límið, sem legið hefur í köldu vatni, sett
út í. Kremið kælt, vanilludroparnir settir
í. Sé notuð vanillustöng, er hún soðin í
mjólkinni.
Kökurnar (beztar eru möndlumakka-
rónur) eru settar í skál, sherry hellt yfir.
Eplunum og appelsínunum raðað ofan á,
kreminu hellt yfir, þegar það er orðið
kalt. Skreytt með þeyttum rjóma og app-.
elsínubitum, þegar það er orðið stíft.
APPELSÍNUBtJÐINGUR
2 egg 2V2 dl. appelsínusafi
1)4 dl. sykur 5-6 blöð matarlím
Rifinn börkur af 3 dl. rjómi
1V2 appelsínu
Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn.
Eggjarauðurnar þeyttar með sykrinum,
þar til það er létt og ljóst. Matarlímið
tekið upp úr vatninu og brætt við gufu,
kælt.
Eggjahvíturnar stífþeyttar, einnig
rjóminn. Börkurinn og appelsínusafinn
settur út í eggjarauðurnar. Matarlíminu
hrært þar saman við, síðan ér rjómanum
og eggjahvítunum hrært varlega saman
við. Hellt í skál eða mót. Skreytt með
þeyttum rjóma, appelsínubitum og vín-
berjum.
SÍTRÓNUBÚÐINGUR
dýrari
2 egg Safi úr 1 sítrónu
IV4. dl. sykur 4 blöð matarlím
Rifinn börkur af 2% dl. þeyttur rjómi
V2 sitrónu
Sama aðferð og við appelsínubúðing.
Sf TRÓNUBÚÐIN GUR
ódýrari
3 egg
1 dl. sykur
Rifinn börkur af
V2 sítrónu
Safi úr 1 sítrónu
3 blöð matarlim
1 dl. þeyttur rjómi
Vinber
Rifið súkkulaði
Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn.
Eggjarauðurnar hrærðar með sykrinum,
þar til það er létt og ljóst. Eggjahvíturnar
stífþeyttar. Berkinum og sítrónusafanum
hrært út í eggjarauðurnar, einnig matar-
líminu, sem hefur verið brætt yfir gufu og
kælt. Hrært þar til það byrjar að þykkna,
þá er eggjahvítunum blandað varlega
saman við. Sett í skál. Skreytt t. d. með
þeyttum rjóma, vínberjum og rifnu
súkkulaði.
APPELSÍNUSAFT ÚR BERKI
Börkur af nál. 50 gr. vínsýra
10 appelsínum eða sítrónusýra
1% 1. sjóðandi vatn 2 kg. sykur
Hreinsið allt það hvíta úr berkinum,
hann er síðan þveginn vel og skorinn í
örmjóar ræmur. Látið börkinn í krukku,
hellið á hann sjóðandi vatni og vínsýru.
Hrært vel í. Látið standa 2 sólarhringa
vel lokað. Hrært í við og við. Börkurinn
síaður frá, safinn látinn í krukkuna á ný,
sykurinn látinn út í, hrært við og við þar
til sykurinn er bráðnaður, getur tekið
1—2 daga.
Sett á hreinar, þurrar, helzt dökkar
flöskur.
42 HÚSFREYJAN