Húsfreyjan - 01.07.1965, Blaðsíða 25
Sjónabók Húsfreyjunnar
Skrautblóm
amtmannsskrifarans
Uppdrættir af blómakrukkum með alla
vega kynjablómum hafa átt miklum vin-
sældum að fagna meðal íslenzkra hann-
yrðakvenna á síðustu öldum. Kemur þetta
greinilega fram ekki aðeins á varðveitt-
um munum heldur einnig í gömlum sjóna-
bókum. En hvaðan fengu konurnar fyrir-
myndir að þessum útlendu skrautblóm-
um, sem þær glituðu og flosuðu í áklæði
og sessur?
Við lauslega athugun á erlendum
munsturbókum frá 16. og 17. öld kemur
í ljós, að í þeim má finna sum þau blóma-
ker, sem hér voru hvað mest í tízku á
19. öldinni. Dæmi um þetta er meðfylgj-
andi mynd úr þýzkri sjónabók, Neues
Modelbuch eftir Rosina Fúrst, en sú bólc
kom út í Nurnberg á árunum 1666—76.
Blómaker nákvæmlega eins og þetta er í
Sauma Siöna Book, sem Gunnar Filippus-
son teiknaði fyrir Sigríði Þorsteinsdóttur
árið 1776, eftir því sem segir á titilblaði
bókarinnar (Þjms. 6950). Áþekkt munst-
ur er einnig til dæmis á mjög vandaðri
flossessu frá 1843, sem geymd er í Þjóð-
23