Vera - 01.05.1989, Page 4
FREKAR
FIS-LÉTT en
NfÐ-ÞUNG
„Konunum sem koma til okkar finnst
húmor í nafninu Fis-létt,“ segja þær
Vera Siemsen og Ólöf Tómasdóttir,
sem hanna, sauma og selja föt á þung-
aðar konur, föt sem eru ekki eins og
hefðbundnu „tækifærisskokkarnir"
með rykkingu undir berustykkinu og
allir eins. Vera fékk hugmyndina og
velti henni yfir til Ólafar sem er kjóla-
meistari og hafði kennt Veru að
sauma á saumanámskeiði. Vera er
hjúkrunarfræðingur að mennt svo
það liggur beinast við að spyrja:
Hvernig í ósköpunum datt henni í
hug að fara að sauma föt á ófrískar
konur?
„Það er stutt síðan ég var sjálf
ófrísk og þá fann ég fyrir því hve lítið
úrval var til af fötum fyrir ófrískar
konur. Ég hef alltaf haft gaman af að
sauma og því kviknaði þessi hug-
mynd síðastliðið sumar og ég setti
mig í samband við Ólöfu sem tók vel
í hana. Hún saumaði áður heima. Auk
þess eru launakjör og vinnutími
hjúkrunarfræðinga ekki neitt til að
hrópa húrra fyrir og vissulega spilaði
það inn í, maðurinn minn er nefni-
lega líka hjúkrunarfræðingur og alveg
nóg að hafa einn í fjölskyldunni."
Fyrirtækið byrjaði í stofunni heima
hjá Ólöfu, við Hjaltabakkann, en síð-
an fengu þær leigt herbergi undir
reksturinn í sama húsi og þar hafa
þær verið síðan. Fastur opnunartími
er á virkum dögum milli klukkan níu
og tvö eftir hádegi, en auk þess mæta
þær þörfum þeirra sem ekki komast á
þeim tíma og fara aukaferðir á kvöld-
in og um helgar að skoða efni og velja
snið. Konur utan að landi geta pantað
föt í póstkröfu og fá senda efnisbúta
og ljósmyndir af fatnaði til að velja
eftir. Efnin eru fyrst og fremst úr nátt-
úrulegum efnum, bómull, ull og
vískós.
Þær Vera og Ólöf búa til sín eigin
snið en hver flík er aðeins til í þremur
eintökum hið mesta úr sama efni.
„Við viljum ekki að þær sitji saman á
biðstofunni allar í eins fötum,“ segir
Vera til skýringar. Sniðin eru hugsuð
þannig að flíkin sé ekki bara nothæf á
meðgöngutímanum, heldur gangi
allt eins áfram. Þær elta tískustraum-
ana að því marki sem viðskiptavinirn-
ir vilja, en flestar konurnar vilja frem-
ur sígild föt og vera sérstakar og ekki
of áberandi.
Er þetta skemmtileg vinna? , Já, ég
fæ alla vega mikla útrás við að sníða
og sauma alltaf nýjar og nýjar flíkur,“
segir Vera.
Reksturinn hefur gengið ágætlega,
en annatíminn kemur í bylgjum, og
frá áramótum hefur verið nokkuð
stöðugt að gera. Aðalauglýsingin sem
þær Ólöf og Vera hafa fengið er að
spurst hefur frá konu til konu hvað
þær eru að gera. En til að upplýsa
hvernig hægt er að ná í þessar Fis-
léttu konur er rétt að geta þess að þær
eru til húsa við Hjaltabakka 22 og
svara í síma 91-75038.
4