Vera - 01.05.1989, Síða 34
BLINDUR NIÐURSKURÐUR Á BORGARSPÍTALA
Eins og flestum mun kunnugt hefur „félagshyggjuríkisstjórnin" fyrir-
skipað 4% niðurskurð á launakostnaði allra stofnana sem fá fjárveit-
ingar á fjárlögum, án tillits til mikilvœgis þeirra fyrir velferöarkerfið.
Þessi blindi niðurskurður mun koma áþreifanlega niður á rekstri sjúkra-
stofnana í landinu og draga úr gœðum þeirrar þjónustu sem þar er
veitt. Konur munu ekki síst verða fyrir barðinu á þessum niðurskurði.
Starfsmannamegin vegna verri starfsskilyrða og lœgri tekna, þjón-
ustumegin vegna þess að umönnun sjúkra og aldraðra í heimahúsum
lendir fyrst og fremst á mœörum, eiginkonum og dœtrum.
Samkvæmt forsendum fjárlaga þarf Borgar-
spítalinn að skera niður launakostnað sinn um
60 milljónir á þessu ári. Þessi niðurskurður
hefur verið til umræðu á nokkrum fundum í
stjórn spítalans og fulltrúarnir þar, sem eru frá
Sjálfstæðisflokki, Alþýðubandalagi, læknaráði
og starfsmönnum, komust að samhljóða niður-
stöðu. Þeir samþykktu bæði að loka deildum á
spítalanum og draga úr launakostnaði með
öðrum aðgerðum. Lítum fyrst á lokanirnar.
Aldraðir úti í kuldanum
Samkvæmt samþykktum stjórnarinnar
munu 9 deildir á spítalanum loka til skiptis í 5-6
vikur hver. Samtals tapast á spítalanum um
1460 legudagar vegna sumarlokana og er þá
Iegudagatap á Fæðingarheimilinu ekki með-
talið. Þessar lokanir munu koma mjög illa nið-
ur á öldruðum þar sem 27 rúm af 54 á öldrun-
arlækningadeild spítalans verða ekki nýtt í
samfellt 13 vikur. Ef við gefum okkur það, að
gamla fólkið sem lagt er inn til endurhæfingar,
endurmats og hvíldar sé þar að meðaltali í 4
vikur, þá þýðir þetta að spítalinn lokar á 88
aldraða einstaklinga í sumar. Þetta er þeim mun
alvarlegra þar sem öldrunarlækningadeild
Landspítalans mun jafnframt fækka sínum
plássum í sumar úr 66 í 46. í þessu sambandi
Ballskák getur
verið dýrkeypt
Helmingur nemenda í 8. bekk Austur-
bœjarskóla eru úti 3—6 kvöld í viku og
rúmlega helmingur drengjanna sœkir
leiktœkja- og knattborösstofur þrisvar til
sex sinnum í viku. Þó sœkja um 27%
drengja í 6. bekk, þ.e. 12—13 ára drengja,
reglulega leiktœkja og knattborösstofur
þrátt fyrir aö þar sé 14 ára aldurstakmark
samkvœmt lögreglusamþykkt. Þá viröist
skipulögö félagsleg virkni hjá nemend-
um skólans mun minni en hjá unglingum
almennt.
34
má geta þess að á biðlista Félagsmálastofnunar
eru nú um 140 sjúklingar sem taldir eru í mjög
brýnni þörf fyrir dvöl og umönnun á hjúkrun-
arheimili. Fjögurra vikna hvíldarinnlögn getur
skipt sköpum fyrir þetta fólk og þá ekki síður
ættingja þess sem nú sjá sumarfríið sitt hverfa
veg allrar veraldar.
Þessar lokanir hafa vakið hörð viðbrögð hjá
félagsmálaráði Reykjavíkurborgar sem fer með
stjórn öldrunarþjónustu hjá borginni. í álykt-
un sem allir fulltrúar í félagsmálaráði sam-
þykktu — líka Sjálfstæðis- og Alþýðubanda-
lagsmenn — er lýst áhyggjum yfir því neyðar-
ástandi sem við þetta skapast í öldrunarþjón-
ustu. í ályktuninni segir: „Þessi vannýting
hjúkrunarrýma fyrir aldraða kemur til með að
bitna mjög á öidruðum og aðstandendum
þeirra og skapa ófyrirséð álag fyrir þá sem
sinna heimaþjónustu fyrir aldraða t.d. heima-
hjúkrun og heimilishjálp. Félagsmálaráð beinir
þeim tilmælum til heilbrigðisyfirvalda að þeg-
ar verði endurskoðaðar áætlanir um lokun
öldrunarlækningadeilda í sumar, jafnframt því
sem heimilað verði að taka í notkun deildir
fyrir aldraða á umönnunar- og hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli og Borgarspítala fyrr en ætlað er.“
Þessi síðasta setning kemur ekki til af góðu,
því nú standa 2 deildir fyrir 57 aldraða nær full-
Þessar upplýsingar koma fram í bréfi frá
starfsmönnum unglingadeildar Félagsmála-
stofnunar og fþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkurborgar sem lagt var fram í félagsmálaráði
í byrjun apríl. Upplýsingarnar eru aftur byggð-
ar á könnun sem gerð var innan Austurbæjar-
skóla á félagslegri virkni nemenda.
Þó upplýsingarnar í bréfi starfsmannanna
séu sláandi og vissulega áhyggjuefni þá þurfa
þær í sjálfu sér ekki að koma á óvart. í könnun
á leiktækjasölum sem útideild unglinga gerði í
mars 1985 kom fram að krakkar úr Austurbæj-
arskóla voru mjög fjölmennur hópur í leik-
tækjasölunum. Leiktækja- og knattborðsstofur
eru flestar staðsettar í miðbænum sem er næsta
nágrenni þeirra krakka sem ganga í Austurbæj-
arskóla. Þessir staðir verða samkomustaðir
krakkanna enda ekki í mörg hús að venda þar
sem borgaryfirvöld hafa ekki séð þeim fyrir
búnar á Borgarspítalanum og á umönnunar- og
hjúkrunarheimilinu Skjóli en þær fást ekki
opnaðar vegna sparnaðar í heilbrigðiskerfinu.
í samtali við Önnu Birnu Jensdóttur hjúkrunar-
framkvæmdastjóra öldrunardeilda Borgar-
spítalans kom fram, að til stóð að opna deildina
þar í haust og var búið að samþykkja þau stöðu-
gildi sem til þarf. Nú sagði hún að allt benti til
þess, og heilbrigðisráðherra hefði m.a. mælt
með því, að þeir fjármunir sem fengjust í deild-
ina yrðu nýttir í almennan rekstur spítalans.
Það væru þar af leiðandi allar líkur á að deildin
stæði auð út þetta ár. Þá sagði Anna Birna að
núna væri í fyrsta skipti frá því B-álma Borgar-
spítalans — en þar eru öldrunardeildirnar til
húsa — opnaði árið 1983 hægt að fullmanna
hana með hæfum starfsmönnum. Og þá er lok-
að. „Við erum alltaf að byggja upp og rífa niður
aftur. Það má heldur ekki gleymast að við lok-
um ekkert án undirbúnings. Við stöndum ein-
faldlega andspænis því núna að verða að velja
af biðlista það fólk sem við sjáum fram á að geta
sent heim þegar til lokunar kemur.“
En eins og fyrr sagði verður launakostnaður-
inn skorinn niður með fleiru en lokunum
deilda. Eitt af því sem stjórnin samþykkti var
að fara að greiða það sem kallað er, ,reglubund-
in yfirvinna" hjá hlutavinnufólki með dag-
neinni aðstöðu til félagsstarfs utan skólans. Fyr-
ir 4—5 árum sóttu þau aðallega leiktækjasalina
nú hafa knattborðsstofurnar bæst við.
Starfsfólk Austurbæjarskóla hefur verulegar
áhyggjur af sókn nemenda í spilasalina og í
bréfi sem Nemendaverndarráð skólans hefur
sent félagsmálaráði segir m.a. að ráðið vilji
„vekja athygli á þvf ástandi sem er að skapast á
billiardstofum í borginni, en þær eru nokkrar í
skólahverfi Austurbæjarskóla. Þar má nefna
„Pool“ Hverfisgötu 46 (í daglegu tali kallað
„Billinn"), Ingólfsbilliard Hverfisgötu 105 og
Billiardstofan Klapparstíg 26 (kölluð „Snók-
er“). Algengt virðist að „spilað sé upp á borð-
ið“ þannig að sá sem tapar leiknum borgi borð-
ið einn. Einnig er spilað upp á hærri fjárhæðir,
og höfum við staðfestar fregnir um að ungling-
ar á grunnskólaaldri spili jafnvel upp á tugi þús-
unda.“