Vera - 01.05.1989, Qupperneq 39
þessari sveit gangi auðvitað á
vatni eins og Kristur gerði og þarf
að hrista af sér þá fáránlegu
ímyndun strax og skotinu lýkur.
Með örfáum undantekningum
var ég sátt við val á leikurum og
framgöngu þeirra. Jón Prímus
verður í myndinni partur af heild-
aranda ,,kristnihaldsins“ í sveit
skáldskaparins. Hann er sjálfsagð-
ur hlutur, ósköp normal undir
þessum jökli, elskulegur og hand-
laginn. Úa er á þennan sama hátt
ósköp venjuleg, dásamlega jarð-
nesk í sinni dragt að bjóða góða
kvöldið. En áhorfandinn hefur
verið settur í spor Umba sem leitar
og grunar. Á klókan hátt fannst
mér sem sagt veröld undir jökli
vera gerð sjálfsögð og rétt og sönn
og Umbi, við og fulltrúar geir-
neglskunnar hvar sem er, gerð að
flónurn! Umbi Sigurðar Sigurjóns-
sonar er sífellt hissa og skelkaður
en þó voðalega uppveðraður enda
gengur hann í gildruna undir lok-
in, fíflaður upp úr skónum. Ég
hafði það á tilfinningunni að
sveitin lægi hlæjandi á bak við
næsta hól þegar Umbi skrönglast
upp á þjóðveginn í lok myndar-
innar. Undantekningarnar voru
Helgi Skúlason í hlutverki Síng-
manns, sem bar rulluna utan á sér
í tískublaðalegum safaríbúning en
náði ekki að verða sá maður að
fulltrúar erlendra ríkja fylgdu
honum til grafar. Ég kann ekki að
útskýra hvers vegna. Lángvetn-
ingurinn var of skopskældur og
skrípislegur til þess að hægt væri
að taka hann alvarlega. Fína var
aftur á móti smellin án þess að
vera farsakennd —Jódínus alveg á
mörkunum en þó hérna megin
mestan part. Hnallþóra góð, Tumi
jónsen líka og konan hans alveg
mátulega heimóttaleg. Gísli Hall-
dórsson yndislegur biskup. Sú
leið þótti mér alls ekki fráleit að
gera Umba að sendimanni ekki
aðeins biskups heldur fleiri
kirkjukerfa. Einkum varþað mjög
myndrænt en ég er heldur ekki frá
því að það víkki skírskotun sög-
unnar.
Ýmislegt má auðvitað til telja í
neikvæðum tón. Til dæmis að
taka var mér farið að leiðast hesta-
stússið á Langvetningnum —
brandarinn gekk af sjálfum sér
dauðum held ég. Blóði drifinn
plastpokinn var of groddalegur
og féll ekki inn í annars fíngerðan
húmorinn. Stærra mál er þó að
mér fannst kvikmyndin detta dá-
lítið í sundur eftir að Úa kemur til
sögunnar, eins og ný mynd væri
að byrja. Þetta er auðvitað ekki
smávægileg athugasemd en ég læt
hana flakka án frekari skýringa
vegna þess að þetta varð þó ekki
til að eyðileggja fyrir mér þá
miklu ánægju sem ég hafði af
myndinni.
Ms
SZnDIBíLBSTOÐin H£
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
krisdAn siggeirsson
SERSAUMAÐAR DRAGTIR
OG STAKUR FATNAÐUR
Viö leysum öll mál.
Ath: Saumum líka úr þínum efnum.
Opnum á nýjum staö
2. maí nk. á
Nýbýlavegi 14,
Kópavogi, Sími 4 • 58 • 68
39