Vera - 01.07.1989, Blaðsíða 16
HEÐAN OG ÞAÐAN
Valgeröur Kristjáns-
dóttir og Björg Einars-
dóttir á skrifstofu
Bókrúnar. Ljósmynd:
Anna Fjóla Gísladóttir.
Bókrún h.f. er útgáfufélag fimm
kvenna og á um þessar mundir
fimm ára afmæli. í tilefni af því
hélt Bókrún upp á sérstaka af-
mælisdaga í Nýhöfn við Hafnar-
strætidagana 19.-21. júní. „Okkur
þótti rétt að haida upp á afmælið
og minna á okkur í leiðinni,” segir
Björg Einarsdóttir sem átti hug-
myndina að stofnun útgáfunnar.
„Hugmyndin kviknaði er ég
flutti þætti í útvarpi í tvo vetur,
um ævi og störf íslenskra kvenna.
Þegar líða tók á fyrri veturinn fór
fólk að hafa samband við mig og
biðja um að fá erindin hjá mér. Ég
varð að svara því til að þessi er-
indi væru samin til flutnings,
ekki aflestar. Næst gerðist það að
ég fékk áskorun frá Kvenfélaga-
sambandi íslands um að gefa er-
indin út á bók. Ef það átti að verða
varð ég að endurrita erindin til út-
gáfu. Mér var ekki sama hvernig
að útgáfunni yrði staðið, ég vildi
fá að ráða hvernig bækurnar yrðu
úr garði gerðar. Ég var þá í sam-
starfi við Valgerði Kristjónsdóttur
að vinna að stéttartali ljósmæðra
á íslandi í 220 ár, sem út kom
1984, og eftir það vorum við
hvorug bundnar við fast verkefni.
Ég orðaði því við hana hvort við
ættum að stofna bókaútgáfu. Hún
tók vel í það og auk hennar komu
til liös við okkur tvær tengda-
dætur mínar, Arnfríður Jónasdótt-
ir og Bjarnfríður Guðmundsdóttir
16
og dóttir mín, María Haralds-
dóttir.
Við stofnuðum útgáfufélagið
Bókrúnu á Lækjarbrekku þann
21.júní 1984 og gerðum það að
hlutafélagi í október sama ár. Við
byrjuðum á að gefa út þættina Úr
œvi og starfi íslenskra kvenna og
Kvenfélagasambandið bauðst til
að senda út áskriftarlista til aðild-
arfélaga sinna. Þannig skapaðist
grundvöllur fyrir útgáfu fyrstu
bókarinnar og þeirra tveggja
binda sem eftir fylgdu.”
Ljóðabækur hafa fram til þessa
ekki verið ofarlega á blaði út-
gefenda, en Bókrún hefur sinnt
útgáfu ljóða eftir íslenskar konur
af miklum myndarskap. Það er því
engin tilviljun að þær ákváðu að
halda upp á afmælið með því að
gefa út þrjár ljóðabækur eftir ís-
lenskar konur: Barég orö satnan,
eftir Oddnýju Kristjánsdóttur í
Ferjunesi; Stjörnurnar í hendi
Maríu, eftir Ragnhildi Ófeigs-
dóttur og Bókina utan vegar eftir
Steinunni Eyjólfsdóttur, sem gefin
verður út í enskri þýðingu og ís-
lenska útgáfan endurútgefin.
Hvernig hefur sá hluti útgáfunnar
gengið? „Við höfum heyrt að
yfirleitt væru ljóðabækur gefnar út
í mjög litlu upplagi, en okkar
reynsla er sú að ljóðabækurnar
hafa selst mun betur en spáð
hafði verið,” segir Björg. „Ef til
vill hefur okkur tekist að skapa
okkur nafn í ljóðabókaútgáfu.
Hins vegar hef ég tekið eftir því að
ljóðabækur kvenna fá minni at-
hygli og umfjöllun en aðrar
ljóðabækur, hverju sem það sætir.
En það þarf greinilega ekki að
koma niður á sölunni. Bækurnar
sem við gefum út eru hver með
sínu sniði. Fyrri bókin sem Ragn-
hildur Ófeigsdóttir gaf út hjá okk-
ur, Andlit í bláum vötnum
(1987), fékk góðar viðtökur sem
bók ungs höfundar, okkur þykir
mikill fengur að bók Oddnýjar
Kristjánsdóttur, sem yrkir um
daglegt líf og störf bóndakonu á
bökkum Þjórsár í 55 ár. Stór
hópur íslenskra kvenna hefur ort
um daglegt líf sitt og störf, en
þessi ljóð hafa allt of sjaldan
komist á bók. Endurútgáfa
ljóðabókar Steinunnar Eyjólfs-
dóttur var löngu orðin tímabær,
en sú hugmynd vaknaði jafnframt
að þýða ljóð hennar, ekki síst fyrir
rithöfundaþing sem hún mun
sækja í Bandaríkjunum í júlí. Efni
bókarinnar, harmur foreldris
vegna látins barns er sammann-
legur. Við vorum sérlega heppnar
með þýðendur, þau Karl Guð-
mundsson og Ragnhildi Ófeigs-
dóttur.”
Hvernig hefur það veriö að
standa í bókaútgáfu í þessi fimm
fyrstu ár? „Við höfum haft fyrir
salti í grautinn, en þetta er ekki
uppskera daglauna að kveldi,”
segir Björg. „Það er okkar
munaður að hafa getað leyft okk-
ur að hafa það svo. Mér finnst
mest gaman að við höfum getað
selt ljóðabækur, þrátt fyrir allar
hrakspár. Og í þessari útgáfu fær
maður vissum metnaði fullnægt,
bæði hvað varðar útlit bóka og
efni. Frágangur bóka skiptir
verulegu máli og allt of oft er
kastað höndunum til hans. Það
sem hefur einkunt komið mér á
óvart er hversu skapandi og
spennandi þetta starf er en einnig
hvað bókaútgáfa er skattlögð ó-
skaplega þungt. 55 af hundraði
smásöluverðs bókar koma aldrei
í hendur framleiðanda. Sölukerfi
bóka er í rúst og þarf endurnýju-
nar við."
Að lokum sagði Björg: „Við
verðum að fara að líta á bækur
sem eðlilega neysluvöru en ekki
skrautmuni uppi í hillu. Útgáfa á
ekki að byggjast á einhverri ó-
skapar spennu f jtrjár til fjórar
vikur að vetri. Margar góðar
bækur hafa goldið þessa. Mér
þykir líka miður að tæknibyltingin
í bókagerð liefur ekki enn skilað
sér í lægra bókaverði. Það þarf að
gerast ef bókin á að fá að lifa
áfram.”