Vera - 01.07.1989, Blaðsíða 31
konan sem heitir Jytte Loehr kom sér
fyrir með striga sinn, liti og tól í aðal-
salnum og þar færði hún hughrif sín
á þrjú léreft. í lok ráðstefnunnar
kynnti hún okkur túlkun myndanna
þriggja, sem viö höfðurn fylgst með
þegar þær urðu til (en að sjálfsögðu
voru ekki fullfrágengnar): intuisjon
(innsæi), fleksibilitet (sveigjanleiki) og
aksjon (framtak, hreyfing).
Að loknum löngum og ströngum
vinnudögum nutum við listar kvenna.
Annie Marie Helger skemmti okkur
fyrra kvöldið með hárfínu gríni eftir
nær tveggja tíma törn. Hún brá sér í
gerfi hinna ýmsu kvenímynda og náði
vel til þessa marglita hóps.
Síðasta hönd lögö á
undirbúninginn.
Undirbúnings-
hópurinn á fundi á
Scanticon föstudags-
morguninn 19. maí.
Laugardagskvöldið 20. maí var fullt
tungl. Þá var dansað úti í eftirmið-
dagssólinni, og eftir að hópvinnu
lauk og rökkrið hafði lagst yfir land-
ið, var kveikt á kyndlum við anddyri
gamla herragarðsins. í birtunni frá
þeim las Kirsten Hofstatter okkur
sögu nornanna á Helsingjaeyri, torg-
sölukvennanna sem voru brenndar á
báli fyrr á öldum, fyrir nornaskapinn.
En andinn brennur ekki og torg-
sölukonurnar á Heisingjaeyri ganga
aftur og aftur og alltaf ógna þær karl-
veldinu með að því er virðist saklausu
hátterni sínu. Þær standa á eigin fót-
um, standa fyrir sínu og það virðist
vera nóg ógnun.
Chris Poole, flautuleikari túlkaði
síðan baráttu, tilfinningar og þjáningu
nornanna á bálinu með óviðjafnan-
legum flautuleik sínu, í nætursval-
anum, undir fulla tunglinu, milli
logandi kyndlanna. Kvöldið áður
höfðu tár mín runnið af einlægri
kátínu vegna spaugsemi Anne Marie
Helgeer, þetta kvöld kölluðu
listakonurnar fram tár sem streymdu
af dýpri hughrifum.
Þegar unnið er frá morgni til
kvölds, á mörgum ólíkum tungumál-
um með fólki sem þú þekkir ekki, þá
er orkuforðinn fljótur að eyöast upp.
Orkuverkstæði — energi-workshop
—er nýjasta ráðstefnutrikkið, og
megi það fljótt ná íslands ströndum.
í herbergi einu var farið í huglæg-
ar ferðir meö hjálp tónlistar og leið-
sagnar Birgit Lynge, musikolog. Þar
var hægt að panta tíma og fara í
hleðslu þegar einstaklingurinn eða
hópurinn var kominn á síðasta snún-
ing. Birgit er ímynd kvenleikans og
stafaði frá henni þvflíkri orku, að
hálftími á orkuverkstæðinu hennar
þar sem hún veitti leiðsögn urn und-
irstöðuaðriði orkustrauma og orku-
forða og fór með okkur urn geiminn
og höfin, var á við margra tíma svefn.
Hún lagði rnikla áherslu á þá sérstöku
orku sem býr í móðurlífi kvenna, en
sem viö allt of oft bælum og afneit-
um. Sú orka er þó án efa að leysast
úr læðingi nú á öld vatnsberans.
Nú kann einhver að spyrja hvað
hafi svo verið rætt á þessari merkis-
ráðstefnu. Skipti það kannski engu
máli, var þetta bara skemmtun og
lúxus? Jú það skipti miklu máli, en
kannski hefði það ekki gert það ef við
hefðum ekki gefið okkur tíma til að
njóta líka. Stundum getur eitt lítið lag
unt torgsölukonu á bálinu haft meiri
áhrif en hálftíma fyrirlestur. Að ég
tali nú ekki urn ef fyrirlestrarnir sent
þú hlustar á og umræðurnar í hópun-
um er í raun það sama og boðskapur
listagyðjunnar, sem hún miðlar með
tónum, tali og niyndum.
Hvað var þá umræðuefnið, hvert
var markmiðið?
Það var virkjun kvenna. Virkjun
kvenna er eitt af þeim úrræðum sem
oftast er gripið til þegar þarf að
breyta eða hafa áhrif á vinnumark-
aðinn og skipulag þjóðfélagsins.
Virkjun vinnuafls kvenna er þekkt
fyrirbæri þegar vel árar og/eða
vinnukraft vantar, eins og t.d. í
stríði eða í sfld. Virkjun móðurlífs
kvenna er notað þegar þarf að fjölga
þjóðunum, eins og t.d. eftir stríð og
þegar þarf að fækka tímabundið á
vinnumarkaðnum. Virkjun fram-
kvæmdaorku kvenna hefur verið
notuð þegar þarf að byggja upp og
framkvæma, virkjun þekkingar
kvenna er nýtt til að ekki þurfi að
kosta miklu til fræðslu og menntunar
nýs starfsfólks eða ungviðis og virkj-
un hugmyndaafls kvenna er notuð
þegar annað hugmyndaafl dugar
ekki til að halda skútunum á floti. Til-
tölulega nýtt fyrirbæri (á okkar
tímatali) er skipulögð og meðvituð
virkjun kvenna á eigin ágætum, þekk-
ingu, vinnuafli, orku, hugmyndum og
móðurlífi og ekki síst samhengið þar
á milli. Nýja kvennahreyfingin sem er
þrátt fyrir allt komin hvað lengst hér
á Norðurlöndum, og sem er reyndar
ekki nein ein hreyfing heldur margir
ólíkir angar með ólík markmið, á
þetta sameiginlegt, þessa virkjun á
sjálfri sér.
Fyrsta norræna ráðstefnan um
konur og rekstur fyrirtækja sann-
aði þetta rækilega. Þarna voru saman
kornnar konur með ólíkan bakgrunn,
af ólíkum þjóðernum, með ólíkar
stjórnmálaskoðanir og vildu velja
ólíkar leiðir að virkjuninni en allar
vildu þær virkja konur. Tengja sarnan
alla þessa flóknu þætti sem oft virð-
ast svo mótsagnakenndir: sjálfstæðar
framkvæmdir og barneignir, hug-
myndaflug og vinna. Okkur hefur
31