Vera - 01.07.1989, Qupperneq 39
ast enginn viö og ekkert slfkt ein-
tak er til á Landsbókasafni. Hún
segir líka að einhverjir fræðimenn
(án þess að vísa til heimilda) hafi
dregið í efa að ísleifur biskup
Gissurarson hafi verið í kvenna-
skóla í Þýskalandi. Hafi þeir efast
kemur það mér óneitanlega und-
arlega fyrir sjónir því í Hung-
urvöku segir: „Honura (þ.e. ís-
leifi) fylgdi Gissurr utan ok
seldi hann til læringar abba-
dísi einni í borg þeirri er Her-
furða heitir” (Biskupasögur I,
fslendingasagnaútgáfan 1953, bls
3). Hvernig er hægt að mistúlka
jietta? Eins eru tölur um kosn-
ingaúrslitin 1908 rangar og j)ar
segir Helga að allar kon-
ur nema þær allra fátækustu hafi
fengið kosningarétt og kjörgengi
til bæjar- og sveitastjórna 1. jan-
úar 1908 (bls. 133), þegar það
voru reyndar aðeins konur í
Reykjavík og Hafnarfirði. Þetta
eru auðvitað smámunir en óþarfi
að láta svona frá sér, ekki skortir
heimildirnar. Eins finnst mér
hæpið að vitna til stéttaskilgrein-
inga Auðar Styrkársdóttur (bls.
138-139) íbókinni „Kvennafram-
boðin 1908-1926” sem að mínum
dómi falla mjög illa að íslenskum
veruleika íbyrjun 20. aldar. Auð-
ur flokkaði konur eftir tengslum
jieirra við karla og það er í raun
í andstöðu við j?að sem Helga
segir annars um stéttgreiningar á
konum.
Allra síðast verð ég að mótmæla
jíví sem stendur í formálanum
um átökin í Rauðsokkahreyfing-
unni á árunum eftir 1975. Helga
segir: „Síðustu 3 til 4 ár hreyfing-
arinnar voru í forsvari fyrir hana
harðlínu marxistar, stúlkur og
piltar sem með starfi sínu þar
gengu erinda pcúitískra samtaka
fyrst og fremst” (bls. 9). Þessi ár
var ég og fleiri konur, sem stóðuni
síðar að stofnun Kvennafram-
boðsins í Reykjavík, virkar í Rauð-
sokkahreyfingunni. Ég tel mig nú
ekki hafa verið mikinn harð-
línu-marxista og ekki var ég tengd
neinum samtökum. Sannleikurinn
um þessi ár var nefnilega sá, að
við sent kölluðum okkur „mun-
aðarleysingja” í pólitík urðum
ofan á og kváðum í kútinn
trotskyistana og marx-leninistana
sem vildu öðru fremur gera Rauð-
sokkahreyfinguna að baráttutæki
alþýðunnar — vel miðstýrðu að
sjálfsögðu. Við vörðum hið
gamla skipulag og tókst það. Við
máttum standa í ströngu í baráttu
við 8.-marshreyfinguna og ýmsa
sjálfskipaða foringja, en allt er
þetta liðin tíð.
Ég endurtek það sem ég áður
sagði. Það er margt gott í jtessari
bók Helgu og mikill fengur að því
að fá rit sem hristir upp í manni
og fær okkur til að hugsa. Ekki
veitir af. Ég er mjög sammála
Helgu í því að við hér uppi á ís-
landi höfum verið heldur slappar
í hugmyndafræðinni og ekki verið
nétgu skeleggar við að skilgreina
og skilja hvað okkur ber að gera
og hvað að varast.
Ég hvet allar konur til að
lesa bók Helgu og ræcla hana og
endurtek: Hvað um málþing?
Kristín Ástgeirsdóttir.
VIÐT ORNINA
■ SFAFOOO • RESM.JRANT ■
Sjá varréttastaður Templarasund 3 Sími 18666
HVERNIG VÆRI
AÐ NIÓTA
/
LATA OKKUR STIANA
VIÐ ÞIG?
A HOTEL BUÐUM ER ALLT TIL STAÐAR
þÆGILEGT ANDRÚMSLOFT
HEIMILISLEG HÚSAKYNNI
RÓMANTÍSKT UMHVERFI
PERSÓNULEG PJÓNUSTA
FRÁBÆR MATUR (... OG HOLLUR ...OG ÓDÝR)
EINSTAKUR STAÐUR TIL ÚTIVISTAR, SUNDLAUG í
NÁGRENNINU, VEIÐILEYFI, BÁTSFERÐIR OG
SKIPULAGÐAR GÖNGUFERÐIR.
ÆVINTYRAHEIMUR
FYRIR BÖRNIN
ENDURNYIAR ÞU
LÍFSORKUNA ...0G FERÐ
TVÍEFLD TIL BAKA...
39