Vera


Vera - 01.10.1996, Qupperneq 24

Vera - 01.10.1996, Qupperneq 24
klá\\V Páll Mga SIOI nusson sjonvai rpssðóri SYNAR: Hvað er klám? Ég held ekki að hægt sé að skilgreina klám með altækum hætti, sem sé jafngildur fyrir öll menningarsvæði, né heldur alla einstak- linga innan sama menn- ingarsvæðis. Klám hlýtur að vera einstaklingsbundin upplifun fyrir hvern og einn, - það sem misbýður siðferð- iskennd viðkomandi einstaklings þegar kyn- ferðislegar athafnir eiga í hlut. Þannig held ég að erfitt gæti reynst að finna tvo einstak- linga, sem hefðu nákvæmiega sama skiln- ing á því hvenær t.d. erótík hættir að vera erótík og breytist í klám. Það sem er erótík fyrir einn er klám fyrir annan. Þetta hefur líka með tíðarandann að gera, - það sem t.d. þótti ósiðsamlegtí kvikmyndum fyrirtuttugu árum er nú að finna í barnamyndum og misbýður engum. Getur klám verið skaðlegt (og þá fyrir hverja)? Ég satt að segja veit það ekki. Sumar kenningar gera ráð fyrir að til- tekið efni, sem flestir myndu sjálfsagt flokka sem „klám“ geti haft jákvæð áhrif á tiltekna einstaklinga í þá veru að minnka lík- ur á að þeir fremji kynferðisafbrot. Sjálfsagt mætti líka finna dæmi um hið gagnstæða. En þar sem ekki er hægt að skilgreina hvað klám er þá er heldur ekki hægt að svara því afdráttarlaust hvort það sé skaðlegt. Stendur klám í vegi fyrir jafnrétti kynjanna (og þá hvernig)? Nei, að mínu viti hefur „klám“, hvernig svo sem menn kjósa að skilgreina það, ekkert með jafnrétti kynjanna að gera. Á að banna klám? Nei, þaö sem ekki er hægt að skilgreina er ekki hægt að banna. He,3iiaurjónsdóttir, kennan: Hvað er klám? Al Bþjóðlega heitið yfir klám, pornography, er komið úr grisku, samsett úr oröun- um porné og graphos. Fyrra orð- ið er heiti yfir lægst settu hóruna f borg- rikinu, þá sem allir höfðu aðgang að. Síðara oröið merkir skrif. Pornography merkir þá skrif um hórur. Þessi frummerking hugtaksins er óbreytt enn í dag. Þó að klámi sé komið á framfæri með fleira móti nú en áður, er boðskapurinn sá sami. Hóran/konan er einskis virði. Hún hefur ekki mannlega verðleika. Getur klám verið skaðlegt (og þá fyrir hverja)? Svarið felst að nokkru leyti í ofanrituðu. Marquis de Sade, höfundur hugmyndafræðinnar, sem klámiðnaður nú- tímans byggist á, fór ekki dult með skoðan- ir sínar. Fyrir honum voru konur og litlar stúlkurtil þess gerðar að svala fysnum karl- manna. Hann var rithöfundur, en um leið kynlífssvallari og ofbeldismaður. Hann rændi barnungum konum (stundum keypti hann þær, einkum gleðikonur), hélt þeim föngnum í húsi sínu, pyntaði þær, nauðgaði þeim og misþyrmdi og murkaði lífið úr a.m.k. einni þeirra. Sögur hans eru I sama dúr. Þær fjalla um það, sem hann taldi venjulegt kynlífssvall, meira og minna í sam- ræmi við náttúrulegar tilhneigingar og skap- ferli karlmanna. Hegðun hans og hugsunar- háttur minna hvort tveggja óhugnanlega mikið á Detraux, hinn belgíska de Sade nú- tímans. Verst er þó, að einnig nú, I lok 20 aldar, komst Detraux upp með illvirki sín T skjóli „umburðarlyndis" háttsettra ráða- manna, sem hylmdu yfir með honum. Það gerðu líka valdamiklir menn fyrir 150 árum, þegar de Sade var að misþyrma stúlkubörn- um. Klám er fyrst og fremst hættulegt kon- um og börnum, en að lokum gengur klámið þó af allri siðmenningu dauðri. Þess vegna er það hættulegt samfélagi manna. Það er þjóðhættulegt. Stendur klám í vegi fyrir jafnrétti kynjanna (og þá hvernig)? Undirrót kláms er kvenhatur, þess vegna er kvenfrelsi útilokað, þar sem klám og klám- iðnaður blómstrar. Á að banna klám? Að sjálfsögðu. Vest- ræn siðmenning leyfir ekki morð, klám er of- beldi, klám myrðir sálina. Klám á hiklaust að banna. (Sjá ennfremur bók mína í nafni jafn- réttis. 1988; 106 -129). Arojn P. Karlsjson, rn-------^----- kin leimspeKinemi: Hvað er klám? Klám telst lostug lýsing á kynfærum, kynferðis- legum stellingum, athöfnum eða hugs- unum hvort sem það er í máli eða myndum. Lýsingar teljast lostugar ef sér- stök áhersla er lögð á hið lostavekjandi, eða þærfeli í sér eitthvað afbrigðilegt eða ýkt og þ.a.l. hneykslanlegt samkvæmt almennri siðvitund í kynferðis- málum. Getur klám verið skaðlegt (og þá fyrir hverja)? Klám getur verið skaðlegt fyrir þá sem ekki eru færir um að samþykkja verknað, þ.e. fyrir þá sem eru ólögráða eða eru neyddirtil þátttöku. Þetta á bæði við um framleiðslu og skoðun á þess konar efni. Barnaklám og ofbeldisfullt klám er skaðlegt fyrir þá sem eru þátttakendur í því. Hins veg- ar þegar um er að ræða samþykka og full- veðja einstaklinga getur klám ekki talist skaðlegt. Stendur klám í vegi fyrir jafnrétti kynjanna (og þá hvernig)? Öfgasinn- aðirfemínistartelja aö klám standi í vegi fyr- ir jafnrétti og telja einnig að klám sé niðrandi fyrir konur þar sem það sýni þær sem nokk- urs konar kynlífsþræla karlmanna. Af þess- um ástæðum m.a. telja öfgasinnaðir femínistar að konur séu sýndar sem veikara kynið. Þó telja flestir að klám hafi engin áhrif á kynjajafnrétti. Ef konur þyrftu á sérstakri vernd að halda gegn klámi þá væri verið að dæma þær óhæfar til þess að takast á við skuldbindingar sínar. Ef klám væri bannað í þeim tilgangi að vernda konur væri ekki að- eins verið að stimpla þær sem ósjálfbjarga, heldur einnig verið að taka frá þeim réttinn til þess að ræöa sjálfar um og bjóða birginn málefnum um klám og kynferði. Klám veldur ekki kynjamisrétti, heldur er það menningin sem stöðugt kaffærir konur með afbökuð- um hugmyndum um kyneðli þeirra. Meö því að reyna að „vernda" konurgegn klámi er ver- ið að undirstrika að þær séu veikara kynið.

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.