Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 3

Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 3
1 E I Ð A E L Nýtt útgáfufélag um Veru Undanfarnir mánuðir hafa verið gerjunartímar hvað varðar framtíð tímaritsins Veru. Að mörgu leyti er það táknrænt að þessi gerjun eigi sér stað á aldamótaár- inu — árinu sem skiptar skoðanir eru um hvort teljast eigi til 20. aldarinnar eða þeirrar 21. Allt er að breytast og stundum finnst okkur tíminn líða svo hratt að við vitum varla hvert stefnir. Fjölmiðlar koma inn í líf fólks úr öllum áttum — nú þarf bara að setjast fyrir framan tölvuna til að kíkja í blöðin, rásunum í sjónvarp- inu fjölgar stöðugt og pósturinn ber til okkur margskonar efni sem við höfum ekki einu sinni óskað eftir. I þessum veruleika lifa tímaritin, prentuð á pappír og krefjast tíma og næðis til lesturs. Við hér á Veru erum meðvitaðar um þessar staðreyndir en við trúum enn á til- verurétt tímarits um konur og kvenfrelsi. 24. september sl. var stofnað einka- hlutafélag um reksturVeru og koma að félaginu álrugasamar konur sem vilja vinna saman að því að gefa blaðið út og laga það að breyttum tímum. I stjórn félagsins sitja: Auður EirVilhjálmsdóttir frá Kvennakirkjunni, Olafia B. Rafnsdóttir frá Kvenréttindafélagi Islands, Irma ]. Erlingsdóttir frá Rannsóknastofu í kvenna- fræðum, Tinna B. Arnardóttir frá Bríeti, félagi ungra feminista og Svala Jónsdóttir jafnréttisráðgjafi í Hafnarfirði sem á sæti í framkvæmdaráði Kvennalistans. Næst á dagskrá er að skipa nýja ritnefnd og verður leitast við að fá í hana áhugasamt fólk um jafnréttismál á breiðum grunni. Blaðið sem nú kemur út endurspeglar ekki þær breytingar sem fyrirhugaðar eru áVeru. Næsta blað mun marka upphaf þeirra. Með þessu blaði fylgir lesenda- könnun sem við biðjum ykkur vinsamlega um að taka þátt í til þess að hægt verði að hafa skoðanir lesenda til hliðsjónar þegar nýjar línur verða lagðar. Einnig eru allar ábendingar um efni og efnistök vel þegnar. Þær má senda á net- föngin okkar eða í Pósthólf 1685, 121 Reykjavík. Nýleg skipan dómara í Hæstarétt, flutningur Jafnréttisstofu, mismunur á launum karla og kvenna, einhæf kvenímynd sem haldið er að ungum stúlkum - þetta eru aðeins örfá dæmi um að við getum ekki lagt niður baráttuna fyrir jöfnum rétti karla og kvenna. I hringborðsumræðunum í blaðinu undir yfirskriftinni: Hvert stefnum við? Hvar stöndum við? kemur margt athyglisvert fram sem vinna þarf að á næstu árum — fyrstu árum nýja árþúsundsins — fyrir börnin sem eiga alla öldina framundan. Hver hafa lagt sitt á vogarskálar jafnréttis? Hver hafa unnið jafnréttisbaráttunni gagn og hver cr Sendu Veru ábendingar agn? L Ú S Ingibjörg Sigurðardóttir sem synti nýlega Viðeyjarsund, fyrst kvenna. Ekki nóg með það, heldur sigraði hún karlana sem tóku þátt í sundinu en þeir voru allir lögrelgumenn. Ingibjörg starfaði áður I lögregl- unni en stundar nú nám ( þyrluflugi. Háskóli íslands fyrir að sæma séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur heiðursdoktorsnafnbót við guðfræðideildina. Tilnefningin er mikil viðurkenning á kvenna- guðfræðinni sem séra Auður Eir hefur stundað og skrifað í áratugi og unnið að boðun hennar og kennslu með stofnun og starfsemi Kvenna- kirkjunnar. Reykjavíkurborg fyrir að styrkja Rannsóknastofu i kvennafræð- um við Háskóla (slands með fjárframlagi sem gerir stofunni kleift að ráða framkvæmdastjóra en Háskólinn greiðir kostnaðinn til helminga á móti borginni. Með þessu má vænta þess að kvennarannsóknir verði mikilvægari þáttur í umræðu og ákvarðanatöku I samfélaginu í framtíðinni. í N U S Félagsmálaráðherra fyrir fljótfærnislega og ófaglega ákvörðun um flutning Jafnréttisstofu til Akureyrar. Þó að mik- ilvægt sé að efla starfsemi hins opinbera á landsbyggðinni er óviðunandi að heil stofnun sé lögð niður og þekkingu og reynslu starfs- fólks Skrifstofu jafnréttismála kastað á glæ vegna fálmkenndrar byggðastefnu stjórnvalda. Dómsmálaráðherra fyrir að ráða eina karlinn sem sótti um starf hæstaréttardómara þegar þrjár hæfar konur sóttu um. Samkvæmt jafnréttislögum ber að ráða einstakling af því kyni sem er ( minnihluta ( viðkomandi starfsgrein, sæki jafnhæft fólk af báðum kynjum um. Það hlýtur að eiga við um dómara í Hæstarétti því þar situr aðeins ein kona. CK tískuverslun fyrir að nota heitið MENN yfir verslun sína á Laugavegi þar sem seld eru karlmannsföt. Orð- ið menn á bæði við um karla og konur - eða hvað? Er kannski bara átt við um karla þegar sagt er: „Menn verða að átta sig á því..." o.s.frv.? VERA • 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.