Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 23

Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 23
JAFNRÉTTISBLAÐ f y r i r u n g t f ó Lk. Samasem er heiti á masem timariti sem kemur út i haust. Blaðió er jafnrétt- isblað fyrir ungt fólk og er gefið út af fjórum ungmennum en þau heita Eíryndis Nielsen, Ragnar isleifur Bragason, Ragnhildur Thorlacius og Sigurlina Valgerður Ingv- arsdóttir. Hópurinn hefur vinnuaöstöðu í Hinu Hús- inu og fær styrk frá iprótta- og tómstunda- ráói Reykjavíkur til þess aö vinna að blaðinu. Samasem verður dreift til allra ungmenna á aldrinum 19-23 ára í Reykjavik og verið er að leita styrkja til að dreifa blaðinu um allt land. Blaðamaður hitti einn meðlim hópsins, Ragnhildi Thorlacius, og fékk hana til að segja sér eitt og annað um væntanlegt blað. Hver er tilgangur með útgáfu Samasem? „Upphafleg hugmynd kom frá Bryndísi Nielsen og hún hafði svo samband við okkur hin en við þekktumst öll fyrir. Við erum samt ekki einsleitur hópur því það er langt í frá að við séum sammála og pólitískt séð þá erum við ekki á sama báti. Við höfum öll áhuga á jafnréttismálum og okkur finnst sorg- legt hvað fáir vilja bendla sig við jafnrétti, sérstaklega miðað við hve miklu það hefur skilað. Hugtakið er orðið svo nei- kvætt. Það er sjaldgæft að stelpur segist vera jafnréttissinnað- ar eða femínistar þó þær séu það í raun og telji að karlar og konur eigi að fá jöfn tækifæri. Það er alltof algengt að stelp- ur vilji ekki láta á sér bera á neinn hátt og séu hræddar við að taka afstöðu, hvað þá ef hún er róttæk. Mörgum strákum finnst jafnrétti líka vera óspennandi og því teljum við ekki síður mikilvægt að ná til þeirra. Einnig er það algengur misskilningur hjá strákum að konur sem eru jafnréttissinnaðar séu andsnúnar karlmönnum. Það er nátt- úrulega algjör vitleysa en veldur því kannski enn frekar að stelpur viðurkenna ekki að þær hafi áhuga á jafnrétti. Það er hins vegar deginum ljósara að við náum aldrei settu marki án samvinnu við karlmenn. Okkur langar til að sýna að jafnrétt- isbaráttan er ennþá þörf og margt óunnið í þeim málum. Markmiðið með Samasem er að taka á málunum með aðeins öðruvísi aðferð en hingað til hefur verið beitt. Markhópurinn er ungt fólk og við höfum aldurshópinn 19—23 ára sérstaklega í huga. Annars vegar vegna þess að við erum á þessum aldri og okkur finnst eðlilegt að við reynum að ná til þeirra sem við samsömum okkur með en það á kannski síður við um fólk sem er mikið eldra eða yngra. Hins vegar vegna þess að fólk á þessum aldri er að stíga sín fyrstu spor í lífmu sem sjálfstæðir einstaklingar og fer að finna fyr- ir ýmsu sem það hafði kannski ekki áttað sig á að viðgengist í þjóðfélaginu." Hvernig verða efnistökin í blaðinu? „í raun og veru erum við ekki að tala um stóru rnálin, s.s. það sem tekið er fyrir á Alþingi. Við viljum taka á þessum málum almennt og sýna að það er margt þarft að gerast í jafnréttis- málum. Við erum ungt fólk að skrifa fyrir ungt fólk þannig að þetta blað er kannski ólíkt því sem áður hefur sést í þess- um málaflokki. Það koma heilmargir að gerð Samasem fyrir utan okkur í ritstjórninni. Við tókum þann pólinn í hæðina að fá sem flesta til að skrifa greinar í blaðið, bæði til að virk- ja fólk og til að ná inn ólíkum sjónarmiðum. Við erum m.a. með umfjöllun urn íþróttamál, ofurkonuna, jafnrétti til náms, auglýsingagerð og viðtöl við ungt fólk sem fer sínar eigin leiðir, svo eitthvað sé nefnt. Inn milli er svo léttmeti sem tengist áhugamálum ungs fólks.Við leggjum talsvert upp úr útlitinu því við viljum að blaðið nái að grípa athygli les- andans. Það er hugsun hjá okkur að fólk átti sig janfvel ekki á því fyrr en það hefur lesið allt blaðið að það hafi verið að lesa um jafnréttismál. RH VERA • 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.