Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 8

Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 8
tl V A ir með sér verkum heima fyrir skiptir meira máli heldur en að fólk taki þátt í op- inberri umræðu, þótt auðvitað sé hún mikilvæg. Það hefur orðið til þessi undar- legi vítahringur: Viðhorfið í samfélaginu er að það sé ennþá konunnar fyrst og fremst að sjá um heimili og börn og karlsins að vera fyrirvinnan. Fyrir vikið þykja konur slakari vinnukraftur, þar af kemur síðan launamunurinn, af því leiðir að ef fólk hef- ur virkilegan áhuga á að skipta jafnt með sér verkum þegar t.d. nýr fjölskyldumeð- limur fæðist, þá er alltaf miklu líklegra að það verði konan sem verði fyrir valinu til að vera heima, vegna þess að launin eru lægri, og þannig heldur hringurinn áfram. Nýju lögin um fæðingarorlofið eru auðvit- að mikilvægt skref til að rjúfa þennan víta- hring og það þarf að stuðla að því með öll- um tiltækum ráðum að fólk nýti sér mögu- leikana sem í þeim felast. Það snýst bæði um það að hvetja karlana til að nota þessi réttindi sín og útskýra fyrir konum að það er ekki sjálfsagt að þær séu meiripartinn af tímanum heima.“ Steinunn: „Lagalega rammann og form- legu réttindin höfum við nú, bæði í orði og á borði. En við megum ekki gleyma að það hefur kostað blóð svita og tár að öðl- ast þau réttindi sem nú eru viðurkennd. Ég sé fyrir mér að á nýrri öld munum við sjá breyttar áherslur. Baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna á Islandi nú í seinni tíð hefur einn stjórnmálaflokkur, Kvennalistinn, nánast borið uppi. Það hafði það í för með sér að aðrir aðilar í samfélaginu og aðrir stjórnmálaflokkar urðu svolítið stikkfrí á meðan. En ég get alls ekki verið sammála Ólafi um að mistök hafi verið gerð í upp- hafi kvennabaráttunnar - að útskýra ekki málið fyrir körlum. Þeir tímar kröfðust þess að konur fengju að vera í friði og að skilgreina sig á eigin forsendum. Þetta var partur af tíðarandanum, partur af þessum tíma. Eg held að við búum að reynslu þess- ara kvenna. Núna fyrst er kominn jarðveg- ur þannig að við getum farið að vinna Yngri karlmenn, hvar sem þeir skipuðu sé í flokka, voru meira samhljóða konum en eldri kynbræðrum sínum. Þetta segir mér að nú sé þörf og lag fyrir raunhæfa jafnréttisbaráttu. 5 I Q N D L!M V I Ð 2 saman, karlar og konur. Ég held hinsvegar að það hafi ekki verið neitt í samfélaginu sem gerði það að verkum að það hefði gengið fyrir tuttugu eða þrjátíu árum. Þeir karlar sem höfðu einhvern áhuga á að skilja, þeir skildu það, sem sést á fylgi Kvennalistans á þeim tíma. Það eru auðvit- að ekki bara konur sem kusu hann. En þetta með þátttöku karla í kvennabaráttu er auð- vitað eilífðarumræða." Hugrún: „Þessi spurning er ennþá 1 gangi, við erum enn að tala um þetta í Bríeti." Þorgerður: „Ég verð að viðurkenna að það truflar mig oft hvað andrúmsloft, viðmót og viðhorf til kvenna virðast á mörgum sviðum ótrúlega lík í dag og þau voru í upphafi aldarinnar. Þetta kemur t.d. vel fram í bókinni um Bríeti Bjarnhéðinsdótt- ur, Strá í hreiðrið. Ég myndi segja að jafn- réttisbaráttan núna einkenndist bæði af stöðnun og grósku. Það er stöðnun í opin- berri stefnumótun og framkvæmd jafnrétt- isstefnu. Jafnréttismál eru orðin lögmætur opinber málaflokkur og það þurfti auðvit- að langa baráttu til. Stefnan er þó ófók- useruð og fálmkennd, skilning eða vilja skortir. Almenn lög og velviljaðar viljayfir- lýsingar duga skammt ef ekki fylgja tæki eða fjármagn til að hrinda þeim í fram- kvæmd. A hinn bóginn er mikil gróska, en hún er annarsstaðar. Hún er út í mörgum stofnunum samfélagsins, til dæmis í Há- skólanum, úti í fyrirtækjum, þar er Eim- skip gott dæmi, sveitarfélögum, til dæmis Reykjavíkurborg. En mig langar að koma aðeins inn á þessi mistök sem Olafur nefndi. Það er rétt að konur hafa háð sína baráttu fyir því sem þeim fmnst mikilvægt, réttinum til að mennta sig, gera sig gild- andi á vinnumarkaðnum, í þjóðlífinu og hinu opinbera lífi. Þróun síðustu áratuga einkennist af aukinni skilnaðartíðni, aukn- um margbreytileika fjölskylduforma, þar sem t.d. einhleypingum og einstæðum for- eldrum fjölgar. Síðustu ár höfum við lækk- andi fæðingartíðni allsstaðar í heiminum. Ég held þetta sé merki um að konurnar hafa farið út af heimilunum en karlarnir hafa ekki endurskilgreint sitt hlutverk og komið þar inn. Og þegar þú segir mistök í jafnréttisbaráttunni þá finnst mér svolítið verið að segja að það sé í raun á ábyrgð kvenna að ala karlmenn upp aftur. Er þetta með fjölskyldu og börn þá ekki eftirsókn- arverðara en það? Olafur: „Ég talaði reyndar ekki um mistök kvenna, heldur mistök í jafnréttisbaráttu yfirleitt. Við erum náttúrulega öll alveg dæmalaust samfélagslega skilyrt. Við höf- um ótal dæmi þess að körlum hafi verið gert erfitt fyrir sem hafa reynt að helga sig fjölskyldu og heimili. Menn hafa verið taldir galnir, vitlausir, einskis nýtir og ónot- hæfir í vinnu. Bæði af konum og körlum. Við sjáum bara hvernig forsjá barna er yf- irleitt fyrirkomið af hálfu hins opinbera við skilnað. Það er í langflestum tilfellum móðirin sem fær forsjá barnanna. Við sjá- um það jafnvel á námskeiðum fyrir verð- andi foreldra þar sem ungir karlar eru að tjá sig í sínum hópi um væntingar sínar til föðurhlutverksins. Þeir eru ekki vissir um hversu langt þeir megi ganga í að helga sig barni og heimili, ekki vissir um að konan verði sátt við það. Það er búið að búa til alls konar stöðluð hlutverk sem karlar telja sig þurfa að virða, ekki síður en konur." Hugrún: „Auðvitað halda þessi skilgreindu hlutverk konunum líka í skefjum. Þetta er eitthvað sem við þurfum að opna umræðu um. Ég held að það sé fullt af konum og körlum sem eiga börn sem bæði eru ósátt við stöðuna. Karlmaðurinn er hræddur við að taka meiri þátt og konan hrædd við að ýta honum út í það. Hugmyndin um móð- urhlutverkið og móðurást er kannski svo- lítið öfgakennd í samfélaginu ennþá. Ég er ekkert viss um að mæður standi undir þeirri ímynd. Við þurfum aðeins að slaka á pressunni. Eins og er þora konur það ekki af því þá eru þær vondar mömmur." 8 • VER A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.