Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 51
band og fjölskyldulíf. Annað foreldrið þarf
að vera heimavinnandi og öflun tekna
lendir því alfarið á hinu. Oft verða systkini
veikra barna afbrýðisöm og erfið viður-
eignar. í starfi sínu eyða þær Fjóla og Guð-
rún miklum tíma í að hlusta á aðstandend-
ur sjúklinga. Þær segjast óhjákvæmilega
lenda í hlutverki félagsráðgjafa. Þegar kom-
ið sé reglulega inn á lreimili kynnist þær
auðvitað aðstandendum. Margir foreldrar
bjóði alltaf upp á kaffisopa og telji spjall
tilheyra heimsóknini.
Þær segja að oftast sinni móðirin sjúka
barninu. Hún búi iðulega við einangrun
og komist lítið út. Sumar kvennanna segja
þær virkilega illa farnar af vöðvabólgu og
þreytu. Augljóslega er afar þrúgandi að vera
bundin í báða skó vegna langveiks barns.
Guðrún og Fjóla finna mikla þörf fyrir
stofnun hjúkrunarheimilis fyrir langveik
börn svo létta megi slíku lagi af fjölskyld-
um. Fjóla og Guðrún sjá fyrir sér hjúkrun-
arheimili þar sem vista mætti langveik
börn í viku eða nokkra daga í senn til að
fjölskyldur þeirra fái hvíld. Þörfina segja
þær brýna en að meðaltali þyrftu 30 börn
á slíkri vistun að halda. Nokkur vistunar-
heimili fyrir fötluð börn eru starfrækt, en
þar starfa engir lijúkrunarfræðingar.
Sjálfstæðar en í samvinnu við aðrar
Hjúkrunarfræðingar við heimahjúkrun eru
í raun á vakt allan sólarhringinn, því alltaf
má hringja í þær. Auðvitað skiptast þær á
að taka frí en alltaf má ná í einhverja þeirra.
Þær stöllur liittast reglulega og skipuleggja
sína vinnu. Allar þekkja stöðu hvers sjúk-
lings og vitja þeirra til skiptis. Guðrún og
Fjóla segjast líka oft þurfa að létta á hjarta
sínu og segja það óskaplega mikils virði að
eiga hvor aðra að. Auðvitað verður fólk í
hjúkrunargeiranum að brynja sig, það er
nauðsynlegt að vera faglegur en sýna þó
samhug.
Ég sé á Fjólu og Guðrúnu að stofnun
hjúkrunarheimilis er þeim mikið hjartans
mál. Þær segja starf sitt gefandi og
skemmtilegt þrátt fyrir álagið sem því
fylgi. Þær hófu störf við heimahjúkrun því
þær fundu þörfina og hefur hún aukist
jafnt og þétt. Þeim fmnst gott að vinna
sjálfstætt í samvinnu við aðra heilbrigðis-
faghópa. Fjóla og Guðrún eru greinilega
hugsjónakonur sem vinna þarft starf. Vera
óskar þeim og félögum þeirra velfarnaðar í
starfi, með von um að hjúkrunarheimili
fyrir langveik börn verði reist sem fyrst.
VSV
i:
Otriviri
Otrivin nefúðinn er fljótvirkur og áhrifamikill.
Það er hægt að halda kvefinu í skefjum, án lyfseðils.
næsta apótek og nærð þér í Otrivin neftiða.
Úðar einu sinni í hvora nös, allt að þrisvar sinnum á dag.
Þá losnar um stíflurnar, þú dregur andann djúpt, vandræðalaust
og lætur þér batna.
Og nú fœst líka Otrivin menttiol - prófaðu það!
getur I
ir sem hafa ofnæmi fyrir xýlómetasólin eóa bensalkonklóriði ættu ekki aó nota Otrivin. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu
VER A •
51