Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 27

Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 27
Á Partille Cup í Svíþjóð í sumar. Helga og annað starfsfólk EHF með ungum dómurum á dómaranámskeiði. Rúmeníu í desember n.k. þar sem úrslita- keppni A-landsliða verður haldin." Að samræma einkalíf og starf Félagsstörfum fylgir mikil fjarvera frá heimili og þetta starf hlýtur að krefjast þess að Helga sé mikið á ferðalögum erlendis. Hvernig skyldi henni ganga að samræma einkalíf og starf? „Fjölskyldan þekkir lítið annað en fjar- veru mína frá heimilinu vegna æfinga, keppnisferða o.fl., auk þess er svona fjar- vera nauðsynleg fyrir hjónabandið og fjöl- skylduna að mínu mati! Þau hafa mikinn skilning á þessu því börnin mín þrjú og eiginmaðurinn hafa öll spilað handbolta og tvö af börnunum spila í dag með FH. Það eru þau Hjörtur 24 ára og Hafdís Inga 19 ára, en Heiðar, sá elsti, spilar ekki leng- ur handbolta. Eg hef alltaf fylgt krökkunum mikið eftir. Það skiptir mjög miklu máli að foreldrar séu virkir í að fylgjast með börn- unum sínum í íþróttum og að þau fái stuðning að heiman. Þegar sá elsti var að æfa og spila þá voru fáir foreldrar að fylgj- ast með og lítið um að mæðurnar mættu á leiki. í dag hefur þetta þó breyst að miklu leyti og fleiri foreldrar fylgja börnunum sínum og taka virkari þátt í unglingastarfi félaganna." Lítill áhugi fjölmiðla Nú hefur það oft komið fram í umræðunni í þjóðfélaginu að fjárhagslegur stuðningur við kvennaíþróttir er ekki eins mikill og við karlaíþróttir. Helga segir að í karlahand- boltanum séu meiri tekjur, það koma fleiri að horfa á leiki og fyrirtæki hafa verið viljugri að styrkja strákana en stelpurnar, þar með er peningastreymi til þeirra meira. „Fyrst og fremst skiptir það máli fyrir konur að hafa konu í stjórnum félaganna til að hugsa um sín mál, annars vilja kvenna- flokkarnir gleymast. Það var t.d. ekki fyrr en árið 1988 sem leikmenn kvennalands- liðsins þurftu ekki að borga undir sig í keppnisferð, fram að þeim tíma sáu þær að mestu leyti sjálfar um kostnaðinn sem fylgdi. Oft hefur verið sagt að stelpurnar verði að sýna árangur til þess að fá pen- inga, en karlarnir fá peninga til að ná ár- angri. Fjölmiðlar verða að sýna kvenna- íþróttum meiri áhuga. I ágúst í fyrra náði 20 ára kvennalandsliðið t.d. þeim árangri að komast í úrslit í heimsmeistarakeppni kvenna sem fram fór í Kína og er þetta í fyrsta skipti sem íslenskt kvennalandslið nær það langt að komast í úrslit í heims- meistarkeppni. Fjölmiðlar og aðrir sýndu stelpunum hins vegar ekki mikinn áhuga og sá enginn fjölmiðill ástæðu til að fara með í ferðina. Almenningur, fjölmiðlar og stjórnvöld verða að gera sér grein fyrir því að íþróttahreyfmgin er besta forvarnarstarf sem hægt er að hugsa sér og ef ungling- arnir, sem leggja mikið á sig, fá litla sem enga umfjöllun um þátttöku sína í íþrótt- um er hætta á að þau gefist upp. Það er til skammar hvað krakkarnir fá litla athygli. Fjölmiðlarnir verða líka að átta sig á því að börn og unglingar eiga foreldra sem vilja lesa um þau í blöðum, sjá myndir af þeim og horfa á þau í sjónvarpi og þessir foreldr- ar eru þeir sem borga áskriftirnar." Hvað telur Helga að hægt sé að gera til að fá fólk til að koma og horfa kvenna- handboltann? „Kvennaboltinn er á uppleið, sérstaklega undanfarin tvö ár, enda er fleira fólk á leikj- um en oft áður. Umfjöllun hefur verið að aukast þó hún sé lítil ennþá og hefur RUV gert átak í að sýna meira frá kvennahand- boltanum en áður. Það er undantekning ef Stöð 2 sýnir yfirhöfuð frá kvennaboltan- um. Eg teldi líka nauðsynlegt að blað eins og Vera væri með fasta íþróttasíðu fyrir konur, og önnur dagblöð einnig. Danir sömdu t.d. við Berlinske tidende um að hafa dálk einu sinni í viku, svokallað Kvennahorn, þar sem konur skrifuðu um kvennaíþróttir. Þetta var liður í eflingu og umfjöllun um kvennaíþróttir í Danmörku og í framhaldinu varð mikil vakning. Það þarf einnig að breyta umgjörð leikja, gera leikina meira fyrir augað og eyrað, t.d. með tónlist eins og þekkist víða erlendis, auglýsa betur upp leiki og síðast en ekki síst að reyna að fá fleiri erlend kvennalið til að koma og spila við stelpurnar. Við kon- urnar verðum líka að leggja okkar af mörk- um til að gera leiki skemmtilega á að horfa, því með betri árangri koma fleiri á leiki." Kvennahandboltadagur Helga hefur spilað og fylgst með kvenna- handbolta í mörg ár, en hvaða handbolta- kona fmnst henni skara framúr í dag? „Þetta er erfið spurning því í dag höfum við fleiri efnilegri leikmenn en nokkurn tímann fyrr — framtíðin er björt. En varð- andi hver skarar framúr þá vil ég nefna nöfn sem mér finnst hafa staðið uppúr í gegnum tíðina, eins og Guðríði Guðjóns- dóttur og Kolbrúnu Jóhannsdóttur. Annars hefur verið fullt af góðum handboltakon- um í gegnum tíðina og ég er nú reyndar frekar hlutdræg í vali mínu. Varðandi yngri stelpurnar, þá get ég ekki gert upp á milli." I upphafi viðtalsins kom fram að Helga VERA • 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.