Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 56

Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 56
Röbb hjá Rannsóknastofu í kvennafræðum á haustmisseri. 5. októbcr Guðrún Árnadóttir, MA í sálarfræði. Hvers vegna mæta konur ekki í brjóstamyndatöku? 19. október Hólmfríður Garðarsdóttir, bókmenntafræðingur. Tvær greinar af sama meiði: íslenskar og argentískar kvennabókmenntir. 2. nóvember Penelopa Lisi, menntunarfræðingur. Konur og stjórnun: Saga rannsókna á kvenstjórn- endum í bandaríska mennta- kerfinu. Hvaða lærdóma má draga af þessum rannsóknum? 16. nóvember Hanna Björg Sigurðardóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur Þroskaheftar / seinfærar mæður og börn þeirra. 30. nóvember Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræðum. Orðræður um kynferði og völd: Eigindleg athugun á kven- stjórnendum í skólakerfinu. Röbbin verða haldin í Odda, stofu 201, kl. 12.00—13.00. Allir velkomnir. Sú öra þróun serrr hefur átt sér staö í tölvuheiminum undanfarið hefur vart farið franr hjá neinum. Tölvur finnast nú nánast á hverju heinrili og sú atvinnugrein varla til serrr ekki krefst einhverskonar tölvukunnáttu. Allskonar tölvunám er nú á boðstólnum bæði fyrir byrjendur og lengra komna og datt Veru í hug að kanna hvort konur stundi þetta nám jafnt og karlar. Háskólarnir tveir á höfuðborgarsvæðinu bjóða þriggja ára BS nám í tölvunarfræði og er skipting kynjanna sem hér segir: Hjá Háskóla Islands er kynjahlutfallið í tölvun- arfræði um það bil 20% konur og 80% karlar og er verkfræði- og náttúrufræði- deildin eina deildin innan skólans þar sem konur eru í minnihluta. Meðal kennara í tölvunarfræðinni er aðeins ein kona fast- ráðin en það er Edda Þóra Hvannberg dós- ent, meðal stundakennara hefur verið ein og ein kona í gegnum tíðina. Hjá Háskóla Reykjavíkur er hlutfallið aðeins hærra eða 30% konur og 70% karl- ar og vekur það athygli að í hinni deild skólans, viðskiptafræði, er hlutfallið alveg öfugt eða 70% konur og 30% karlar. Fast- ráðnir kennarar skólans í tölvunarfræði eru um 50% konur en séu stundakennarar meðtaldir breytist hlutfallið í 5 konur á móti 20 körlum. Ymiskonar tölvunámskeið eru í boði hjá skólum víðs vegar um bæinn og virðist kynjahlutfallið þar mun jafnara. Við kynnt- um okkur þátttöku kvenna hjá einum slík- um, Nýja viðskipta- og tölvuskólanum, en þar er boðið uppá margvísleg tölvutengd námskeið, t.d. skrifstofu- og tölvunám og þar eru konur í meirihluta, sölu- og tölvu- nám sem er meira sótt af körlum og bók- hald þar sem 99% nemenda eru konur. Einnig er boðið upp á nám fyrir lengra komna, s.s grafiska hönnun og forritun og þar er hlutfallið nokkurn veginn jafnt. Námskeið fyrir eldri borgara eru jafn mik- ið sótt af báðum kynjum. Þegar vinnumarkaðurinn er skoðaður virð- ast atvinnumöguleikar kynjanna nokkuð jafnir, þó ekki sé hægt að segja til um launakjör, og er hlutfallið um það bil 25% konur hjá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í tölvugeiranum. Ekki virðist neinn kynja- munur á notkun einkatölva og internetsins en erfitt að fá nákvæmar upplýsingar um það. Allir sem rætt var við virtust sammála um að veruleg aukning væri í aðsókn kvenna í tölvunám og þá sérstaklega styttri námskeið. Hjá Háskóla Islands er nú í gangi tveggja ára átaksverkefni um aukinn hlut kvenna í forystustörfum og fjölbreytt- ara náms- og starfsval kynjanna. Þetta er samstarfsverkefni hinna ýmsu aðila og stefnir meðal annars að því að auka fjölda kvenna í verkfræðideild og þar með í tölv- unarfræði. I vetur verður boðið upp á sérsniðið tölvu- og upplýsingatækninám fyrir 1 .— 10. bekk grunnskólanna í samvinnu við Tölvu- skóla Reykjavíkur, er nefnist Framtíðar- börn. Þetta námsefni miðar að því að kenna börnum og unglingum hvernig tölvan nýtist við lausn ýmissa verkefna og að undirbúa nemendur sem best undir líf og starf í tæknivæddu samfélagi. Námsefn- ið kemur frá Future kids International sem á rætur sínar að rekja til Los Angeles. Þetta mun væntanlega stuðla að auknum hlut kvenna í tölvugeiranum í framtíðinni og hver veit nema konur verði í meirihluta tölvudeilda háskólanna eftir nokkur ár? T.B.A. 5 6 • V E R A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.