Vera - 01.08.2000, Side 7

Vera - 01.08.2000, Side 7
mmmm Fyrir skömmu kallaði Vera saman sex manna hóp karla og kvenna sem öll hafa komið að jafnréttisbaráttu með einum eða öðrum hætti, til þess að ræða stöðuna. Útgangspunkturinn var: Hvar stöndum við — hvert stefnum við? Hvers konar kvenna-, kynja- eða jafnréttisbaráttu viljum við, þurfum við að stunda á nýrri öld? Tilefnið er sumpartinn að Vera stendur sjálf á tímamótum. Kvennalistinn hefur formlega sagt skilið við okkur, þetta er því fyrsta tölublaðið sem glænýtt útgáfufélag, Verurnar, gefa út. Fyrir okkur markar þetta nýtt svigrúm fyrir grasrótina, nýtt upphaf, nýtt vor. Eg byrjaði hinsvegar á því Asdís: „Ég er bjartsýn á að sú kynjabarátta sem háð var á öldinni sem er að kveðja sé að skila sér. Trúlega höfum við mæður af minni kynslóð alið börn okkar þó nokkuð öðruvísi upp en mæður okkar. Þið takið ugglaust eftir að ég tala eingöngu um mæður sem uppalendur, en þannig var það meira og minna fyrstu átta tugi síðustu aldar.Við breyttum ekki kynjahlutverkum á heimilum, jafnvel þó við ynnum flestar úti og sumar okkar færu í langskólanám. Þetta sýna rannsóknir um skiptingu verka inn á heimilum og um kynjahlutfall í námi eftir skyldunám. EN þetta er allt að breytast — konur fara jafnt í nám og karlar, þó að oft- ar en ekki fari þær í greinar sem eru ekki jafn hátt metnar til fjár og þær sem karl- arnir velja sér og ungir foreldrar skipta mun jafnar með sér umönnun barna sinna. I rannsóknarverkefninu Gæði og jafnræði í ákvarðanatöku, sem Skref fyrir skref vann að 1998-1999 um hverjir komast að ákvarðanatöku, ræddi ég við stjórnmála- menn sem tóku þátt í prófkjörum fyrir sveitarstjórnarkosningar 1997. Þar kom greinilega fram að það var meiri munur á viðhorfum kynslóða en á viðhorfum kynja til þátttöku kvenna í stjórnmálum og stjórnunarstörfum. Yngri karlmenn, hvar sem þeir skipuðu sé í flokka, voru meira samhljóða konum en eldri kynbræðrum sínum. Þetta segir mér að nú sé þörf og lag fyrir raunhæfa jafnréttisbaráttu þar sem kynin leiði saman krafta sína, hvort um sig á eigin forsendum. Sem betur fer eru kyn- in um margt ólík og þau verða að læra að að spyrja hvar jafnréttisbaráttan virða og meta sérstöðu hins kynsins. Við- horf og nálganir beggja kynja við úrlausn verkefna skilar þegar upp er staðið bestu lausn fyrir alla þegna. Það er sýnileg þörf fyrir nýjar áherslur í jafnréttisbaráttu og er nánast unun að upplifa þá tíma þar sem karlar hafa sýnt og sannað að þeir vilji í raun berjast fyrir réttindum sínum til að taka meiri þátt í hlutverki foreldris, jafn- réttisnefnd karla, fæðingarorlof karla, um- ræða um fjölskylduvænt starfsumhverfi o.s.frv. Það er sýnilega þörf fyrir kynin að vinna saman að þessum réttindamálum og í raun grátlegt ef við þurfum áfram að vera með sérstakar kven- og karlanefndir í þess- um málum.“ Roald: „Ég er sammála Asdísi að stórum áföngum hefur verið náð. Hinsvegar fmnst mér femínistar og annað baráttufólk hafa sofnað á verðinum. Fólk er ekkert mikið að pæla lengur, fmnst þetta svolítið hallæris- legt. Mér finnst því vera ákveðið „back- lash“ í gangi. Það er töff að gefa skít í femínista núna. Ég fylgist mikið með menningarmálum og á tónlistarstöðvum eins og PoppTV og MTV eru konur rosa- lega hlutgerðar í tónlistarmyndböndum. Ég hef sjaldan tekið eins mikið eftir því og akkúrart núna og auðvitað endurspeglar þetta þær hræringar sem eiga sér stað í samfélaginu. Því er ofboðsleg þörf fyrir einhverskonar baráttu. Mér finnst þær í Bríet t.d. hafa gert góða hluti, þær hafa hleypt nýju blóði í umræðuna og breytt ákveðinni staðalímynd af femínistum á Is- stæði núna við aldahvörf? landi. En kannski þarf stór átak, flokkaafl eða hreyfingu sem lætur sig öll jafnréttis- mál varða." Hugrún: „Draumur okkar Bríeta væri að finna stráka sem tækju kynjabaráttu alvar- lega, á sínum eigin forsendum. Hvernig getum við annars orðið jafningjar?Við vilj- um að strákar taki virkan þátt í jafnréttis- baráttu en við viljum ekki búa til baráttu- grundvöll fyrir þá, þeir verða að finna hann sjálfir. Til dæmis karlmennskuímynd- in með alla vöðvana og kyngetuna. Það er verið að markaðssetja líkama karlmanna á nýjan hátt. Er það eitthvað sem þeim er sama um?“ Ólafur: „Það er búið að afnema síðasta formlega misréttið í jafnréttismálum með því að setja lög um jafnan rétt karla og kvenna til fæðingarorlofs. Núna snýst framhaldið um aðgerðir á vettvangi og þá er heimilið og kjarnafjölskyldan aðal vett- vangurinn. Feikna mikið hefur áunnist í jafnréttisbaráttu kvenna á öldinni en konur reka sig þó alltaf á þak. Kynjahlutfallið í stjórnunarstöðum virðist bara ekki geta orðið jafnt, nema þá í svokölluðum kvennagreinum. Astæðan hygg ég — stærstu mistökin í jafnréttisbaráttunni - er að það mistókst að útskýra fyrir helmingn- um af þjóðinni, það er að segja körlum, hvað þeir græddu á henni. Sókn kvennanna út á vinnumarkaðinn og inn í pólitíkina er löngu hafin en sókn karlanna inn á heimil- ið er rétt að hefjast. Það hvernig fólk skipt- VER A • 7

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.