Vera - 01.08.2000, Síða 20
i r a m 1 i ð a r A U Ð U&
Einn
hluti
Ritgerð um
draumafyrirtækið
verkefnisins Auður i krafti kvenna
nefmst FramtíðarAUÐUR og er ætlað stúlkum á aldrinum 13-16 ára. Þeim
var boðið að skrifa ritgerð um draumafyrirtækið sitt og bárust tæplega
30 ritgerðir af öllu landinu. Þátttakendum var siðan boðið i leiðtoga-
búðir að Skógum þar sem blandað var saman fróðleik og skemmtun.
Markmiðið var að auka sjálfstraust stúlknanna og hvetja þær til hóp-
starfs. Fengu þær kynningu á gunnhugtökum viðskipta, leiðsögn i
um áhrif kynferðis á starfsframa og nauðsyn
lá sjálfum sér. Vera ræddi við tvær stelpur sem
jfninu og fékk leyfi til að birta ritgerðirnar um
þeirra.
Árnný Sigurbjörg Cuðjónsdóttir:
Ætlar að reka eigið fyrirtæki
Árnný S. Guðjónsdóttir er 15 ára nemandi
í 10. bekk Öldutúnsskóla í Hafnarfirði.
Hún fór í leiðtogabúðirnar að Skógum í
sumar og fannst það frábært. Þar fengu
stelpurnar innsýn í rekstur og stjórnun
fyrirtækja og áttu saman skemmtilegan
tíma við leik og störf.
Árnný hefur verið í Kór Öldutúnsskóla
frá 8 ára aldri. Hún tekur þátt í leiklistar-
starfsemi í félagsmiðstöðinni og stundar
líkamsrækt á veturna.
„Ég var að vinna á veitingastaðnum í
versluninni Ikea í sumar og fannst það
mjög gaman. Ég lærði heilmikið, t.d. að
sjóða egg, smyrja smurbrauð, vera verk-
stjóri og sýna þjónustulund," segir hún.
„Ég vann mjög mikið í sumar, tók mér
eiginlega ekkert frí. Ég legg peningana
fyrir til ávöxtunar og reyni að eyða sem
minnstu. Kannski get ég keypt mér bíl
þegar ég fæ bílpróf eftir tvö ár."
Árnnýju langar að vinna sjálfstætt í
framtíðinni og reka eigið fyrirtæki. Hún
ætlar á viðskiptabraut í menntaskóla,
annað hvort í Flensborg eða Verslunar-
skóla íslands, og síðan í viðskipta- eða
markaðsfræði í háskóla.
Mannleg samskipti
og tölvukunnátta
að leiðarljósi
í þessari ritgerð langar mig að fjalla um
hvernig draumafyrirtækið mitt er og segja
frá starfsemi þess og fleiri atriðum í sam-
bandi við það. Ég vona að lesandi þessarar
ritgerðar nái heildarmynd fyrirtækisins,
starfsemi þess og helstu atriðum í sam-
bandi við stjórnun þess og rekstur. Vonandi
hefurðu bæði gagn og gaman af þessum
lestri.
Draumafyrirtækið mitt er heimavistar-
skóli sem væri einkarekinn. Einkarekinn
því að þá væri skólinn ekki jafn háður rík-
inu eins og flestir skólar eru og gæti því
miðlað annarri þekkingu til barna. Hann
myndi vera staðsettur út í sveit til að nem-
endur komist í snertingu við hreina nátt-
úru okkar Islendinga. Hugmynd mín er sú
að skólinn myndi hafa á námskrá sinni
kennsluefni fyrir börn á aldrinum 9—16
ára. Markaðshópur okkar er foreldrar 9-16
ára barna sem gera kröfur um að barnið
þeirra hljóti kennslu um fleira en bóklegt
og verklegt nám.
Skólinn mun geta tekið að sér um 200
börn, 120 á heimavist í eina eða báðar
annir og um 80 nemendur í skólabúðir í
1—3 vikur. Sumarið myndi vera notað til
skipulagningar næsta skólaárs og eiga
starfsmenn þá rétt á sjö vikna sumarfríi.
Starfsmenn skólans verða um 100 manns.
Unnið væri eftir árangurstengdu launa-
kerfi, svipað þeim sem sum fyrirtæki eru
að taka upp. Það er til að hver einasti starfs-
maður leggi allan sinn metnað í starfið.
Skipuritið og stjórnunarháttur skólans
væri þannig að skólastjórinn sér um að
stjórna skólanum og sjá um fjóra fulltrúa
sem hafa það hlutverk að sjá um fimm
leiðtoga og skipuleggja vaktir og þeir taka
við vandamálum sem upp koma. Geti þau
ekki ráðið úr því er talað við skólastjórann.
Hver leiðtogi er kennaramenntaður og
2 0 • V E 1? A