Vera - 01.08.2000, Qupperneq 21
hans starfsvið er að sjá um kennslu, skipu-
lagningu hennar ásamt því að semja
kennsluefni sem henta þeirra nemendum,
en með því fá börnin persónulegri
kennslu. Undir hverjum leiðtoga eru tveir
leiðbeinendur sem reynt er að hafa af sem
flestum stöðum og stigum samfélagsins til
að skapa fjölbreytni fyrir börnin, en þeirra
starfsvið er að sjá um fimm barna hóp,
hjálpa þeim ef vandamál kemur upp og
hann er stuðningsfulltrúi þeirra og þau
geta alltaf leitað til hans. Hann er einnig
með börnunum í kennslustundum og
hjálpar þeim með námið. Annað starfsfólk
er læknir sem alltaf er hægt að leita til og
einnig hjúkrunarfræðingur. Þeirra hlutverk
er að fylgjast með börnum sem hafa sér-
þarfir og einnig með nærveru þeirra erum
við að reyna að tryggja sem mest öryggi.
Yfirkokkur sér um matseld og hefur hann
undir sér þrjá matreiðslumeistara og tvo
nema eða áhugafólk um matseld.
Til að fá fjármagn inn í fyrirtækið
myndi ég leita í sjóði sem styrkja fyrirtæki
kvenna, taka lán og kynna fyrirtækið fyrir
fjárfestum og athuga vilja þeirra og áhuga
á að leggja fé í fyrirtækið. Þegar reksturinn
væri kominn í gang myndu útgjöld okkar
og laun starfsmanna vera greidd með
skólagjaldinu sem nemendur greiða en það
á að sjá um námsgögn, fæði, gistingu og til
að greiða laun starfsmanna. Reynt væri að
hafa þennan lið í sem mestu lágmarki.
Einnig myndum við annast útgáfu auglýs-
ingablaðs sem fyrirtæki gætu auglýst í og
við fengjum af því tekjur.
Cegn einelti og fordómum
Hugmynd mín er sú að skólinn myndi hafa
á námskrá sinni kennsluefni fyrir börn á
aldrinum 9-16 ára þar sem mannleg sam-
skipti og tölvukunnátta væru höfð að leið-
arljósi. Námstefna skólans væri mynduð út
frá því að berjast gegn einelti og fordóm-
um, að hafa mannleg samskipti sem náms-
grein, forvarnir, tækni, raungreina- og
tölvukennsla ásamt tungumálum, náttúru-
vernd og umhverfisfræðslu. Einnig væri
lagt mikið upp úr Islandssögu og mann-
kynssögu.
Nýsköpun verður gerð að skyldunáms-
ii m 1 i ð a t A U Ð LL
grein. Sköpunargleði barnanna fær að
njóta sín í myndmenntar-, tónlistar- og
hönnunartímum. Eineltisverkefni verður í
gangi þar sem börnunum er gerð grein
fyrir þeim afleiðingum sem einelti getur
haft í för með sér og grundvelli fordóma
eytt á þann hátt að umræður væru skapað-
ar í kringum efnið og um hvaða rétt þau
hafa, að gera sér grein fyrir afleiðingum
gjörða sinna og þeim verður kennt að segja
nei við því sem þau telja ekki henta sér.
Tilgangur með náminu í námstefnu
skólans verður að búa börnin betur undir
samfélagið og það nám og þau störf sem
þau ætla sér að gera í framtíðinni. Einnig
hefðum við upp á að bjóða fjölbreyttara
nám og fræðslu sem skilar börnunum bet-
ur í stakk búin til að takast á við framhalds-
nám hér heima og erlendis. Þetta nám hér
í skólanum gæfi nemendum skólans for-
skot á framtíðina. Við bætum þekkingu
okkar nemenda með því að rniðla, auk al-
mennrar fræðslu, mannúð og skilningi.
Skólaárinu verður skipt í tvær annir.
Kennsla fer fram fimm daga vikunnar og
frí er um helgar en þá er nemendum leyfi-
legt að fara heim en einnig verða í boði
námskeið og myndi þá vera leitað til t.d.
Rauða krossins með þau. I hverjum bekk
eru 10-15 börn. Skipt verður í bekki eftir
aldri en einnig geta þau börn sem skara
fram úr verið hækkuð um bekk til að nám-
ið samhæfist getu þeirra. Kennari sér um
alla kennslu en leiðbeinendur eru með sín-
um hóp í tímum og aðstoðar þau með
námið. Þetta er gert til að hvert barn fái
eins mikla aðstoð og hægt er.
Námsárangur er metinn eftir vand-
virkni, áhuga, skilum á verkefnum og
virkni og áhuga í tímum. Engin próf verða
tekin nema sérstök lokapróf að vori. Próf-
dagar verða eins margir greinunum sem
prófað er í og einn dagur á milli hverra
prófa svo nemandi fái tíma til að læra og
melta námsefnið betur. Eftir skóla og
fræðslu fá nemendur frítíma þar sem boð-
ið verður upp á námskeið, útreiðartúra og
fleira eins og göngutúrar og aðstoð við
nám.
í framtíðinni er hægt að senda fulltrúa
frá okkur erlendis til að kynna námið í
R
skólanum og einnig er möguleiki á því að
setja á fót samskonar skóla í öðrum lönd-
um. Einnig mundum við reyna að senda
sem fyrst fulltrúa í skóla landsins sem
myndi koma af stað eineltis- og fordóma-
verkefnum í skólunum. Einnig væri hægt
að bjóða nokkrum erlendum börnum
hingað í sumarbúðir líkt og eru haldnar
um allan heim. En þetta er það sem
draumafyrirtækið mitt hefur upp á að
bjóða og ég vona að það haft vakið athygli
þína því þetta er mikilvægt mál að mennta
börnin okkar.
Erum að læra fyrir okkur sjálf
Eg vil reka svona fyrirtæki því ég vil stofna
til samkeppni um menntun komandi kyn-
slóða, en samkeppni skapar meiri metnað
meðal stjórnenda og starfsfólks skólanna.
Ég tel að skóli sem þessi væri brautryðj-
andi í menntamálum þjóðarinnar og gefi
foreldrum fleiri valkosti um hvar og hvern-
ig þau vilja mennta börnin sín. Slíkur skóli
myndi einnig gefa börnum fjölbreyttara val
um þá menntun sem þau kjósa sér, eftir
metnaði, áhuga og getu, og er það álit mitt
að þau verði með þessu móti sáttari við
skólaskylduna og skilji frekar að þau eru að
læra fyrir sig sjálf og sína framtíð en ekki
vegna kennaranna. En því miður er það
skoðun margra jafnaldra minna að þau séu
aðeins að mennta sig fyrir kennarana en
ekki þau sjálf og hafa því lítinn sem engan
metnað til að standa sig.
Námstefna skólans og viðhorf hans ger-
ir fyrirtækið mitt betri kost fyrir komandi
kynslóðir, sem munu sækjast eftir mennt-
un sem hæfir áhuga þeirra og þroska.
Ávinningur fyrirtækisins skilar sér í betri
menntun og bjartari framtíð unga fólksins
í landinu.
VER A •
21