Vera - 01.08.2000, Síða 28
Rúmenar tóku sérlega vel á móti Helgu
þegar hún kom þangað í fyrsta skipti
á vegum EHF og gerðu mikið úr því að
hún væri fyrsta konan í þessu embætti.
situr í nefnd innan EHF, ásamt fjórum öðr-
um konum, sem hefur það að markmiði að
vinna að málefnum kvennahandboltans. En
hver eru framtíðaráform varðandi kvenna-
boltann hér á Islandi?
„Arið 1998 kom ég hugmynd á fram-
færi við HSI um að búa til landsliðshóp
sem hefði það að markmiði að komast á
Olympíuleikana í Aþenu 2004. Þetta þótti
rosalega góð hugmynd og var sest niður
við að búa til umgjörð um þennan hóp
varðandi fjármögnun o.fl. og fór af stað
forvinna með miklum væntingum. Eg hef
hins vegar ekki heyrt meira um þetta og
held að þetta sé dottið uppfyrir. Það verða
að vera einhver markmið, sérstaklega fyrir
stelpurnar, svo þær sjái að þær hafi að ein-
hverju að keppa. Sem tengiliður kvenna-
handboltans á Islandi við Evrópu er það
liður í starfi mínu að kynna kvennahand-
boltann. Við konurnar sem störfum saman
í þessari nefnd innan EHF höfum komið
okkur upp góðu samskiptaneti og til að
leggja okkar af mörkum ætlum við t.d. að
hafa sérstakan kvennahandboltadag í haust
og kynna hann fyrir landsmönnum."
Sjálfboðavinna
Hvað með framtíðina? Sér Helga sig í
mótanefnd til frambúðar?
„Það er kosið í þetta starf til fjögurra ára
í senn og er þetta ólaunað, einungis ferðir
og uppihald greitt, en þetta er fyrst og
fremst hobbý. Eg er búin að vera mikið í
félagsstarfi hér heima og þetta er í beinu
framhaldi af því. Þetta er mikil ábyrgð og
vinna og hingað til hef ég alltaf verið
hinumegin við borðið. Nú er ég hins veg-
ar að lesa lög og reglugerðir því þær þarf
ég að kunna utanbókar og læra mikið nýtt.
Reynslan úr handboltanum og félagsstarf-
inu í kringum hann mun nýtast mér vel,
auk þess sem að í nefndinni með mér eru
menn með mikla reynslu og eru þeir allir
boðnir og búnir til að aðstoða mig.“
Fram til þessa hefur engin kona verið í
áhrifastöðu innan EHF og vakti því kosning
Helgu í þetta embætti mikla athygli alls
staðar nema hér á landi og hefur hún að
eigin sögn hvarvetna erlendis fengið mjög
góðar móttökur og hlakkar því mikið til að
takast á við þetta starf. En er Helga eini Is-
lendingurinn sem starfar innan alþjóðlegu
handknatdeikshreyfmgarinnar EHF / IHF ?
„Nei, við erum þrjú sem gegnum emb-
ættum í dag, en auk mín eru það Kjartan K.
Steinback sem gegnir starfi formanns dóm-
aranefndar IHF og Gunnar K. Gunnarsson
varaformaður dómsstóls Evrópusambands-
ins, EHF.“
Með þessum orðum kveð ég þessa
kjarnakonu og efast ekki um að landsmenn
eiga eftir að verða meira varir við kvenna-
handboltann í framtíðinni, fyrir tilstuðlan
Helgu H. Magnúsdóttur.
2 8 • V E RA