Vera - 01.08.2000, Page 42
inu í júní fólst í að taka
þátt í vinnu við gerð loka-
skýrslunnar. Þó þetta væri
mér nýr vettvangur þá
þekki ég vel starf alþjóða-
stofnunar eins og Evrópu-
ráðsins en í stjórnarnefnd þess
um jafnrétti kynja sitja fulltrúar um
40 ríkja, auk áheyrnarfulltrúa frá ríkjasam-
böndum og félagasamtökum. Einnig þar
eru áherslur ríkja æði misjafnar. Oft vakna
efasemdir um hvað við eigum sameigin-
legt með t.d. ýmsum fátækum ríkjum aust-
ur Evrópu. Starfið í Evrópuráðinu byggir á
samráði, samræðum og gagnkvæmri virð-
ingu ríkja, jafnt sem virðingu fyrir ólíkri
menningu okkar. Starfsramminn og leiðar-
ljósið birtist í þeim alþjóðasáttmálum sem
ríki okkar hafa staðfest og sem við megum
aldrei hvika frá. A fundum Sameinuðu
þjóðanna koma saman fulltrúar ekki 40
ríkja heldur 188 ríkja. Þá virðist oft
sterkara það sem skilur okkur að og póli-
tískum ágreiningi ríkja meira haldið á lofti
en þeirri hugsjón sem tengir okkur saman.
Það var sérstök tilfmning að sitja í fundar-
salnum og horfa á allar konurnar sem
mættar voru í NewYork, en flestir fulltrú-
arnir voru konur. Líf okkar kvenna er svo
ólíkt. Við eigum það hins vegar sameigin-
legt að allar búum við í ríkjum sem, þrátt
fyrir skuldbindingar, tryggja okkur ekki
þau réttindi sem kvennasáttmáli Samein-
uðu þjóðanna kveður á um. Og minnumst
þess að kvennasáttmáli Sameinuðu þjóð-
anna fjallar um grundvallarmannréttindi
kvenna. Kynbundið launamisrétti er stað-
reynd í öllum ríkjum. Hið sama á við um
ofbeldi gagnvart konum. Brúðarbrennur
eru staðreynd í samfélagi sessunautar míns
frá Indlandi. Við hlið hennar sitja karlar,
fulltrúar Irans og Iraks. í ýmsum ríkjum
þess heimshluta eru svokallaðir sæmdar-
glæpir eða smánarglæpir, eins og Kofi Ann-
an kallaði þessa glæpi í opnunarávarpi sínu
á aukaallsherjarþinginu, staðreynd. í saln-
um er mikill fjöldi kvenna, dökkar á húð
og hár, stórar konur í skrautlegum kjólum
með skrautlegan höfuðbúnað. Margar
þeirra búa yfir svo mikilli reisn að manni
verður starsýnt á. Sumar þessara kvenna
koma frá vesturhluta Afríku. Þar er um-
skurður á konum bannaður með lögum en
þekkt að allt að 80% kvenna sæta þeirri
misþyrmingu, væntanlega einnig þær sem
funduðu með mér.
Þrátt fyrir fjölbreytileika salargesta, þrátt
fyrir að enn séu það karlar sem stýri heimi
okkar og þar með lífi okkar kvenna og þrátt
fyrir að við séum þarna sem fulltrúar
þeirra, þá náum við saman um lokaskjal
með beinum tillögum um aðgerðir sem
geta tryggt jafnt íslenskum konum sem og
konum í Senegal og Búrma aukin jafnrétt-
indi. A vissan hátt fyllist maður lotningu
yfir þessu starfi, yfir Sameinuðu þjóðunum
og þeim hugsjónum sem þessi alþjóðasam-
tök hvíla á. Eftir langa og stranga fundi, í
reynd mjög þreytandi starf, þá höfum við
stigið enn eitt skrefið í rétta átt. Þess vegna
var þetta aukaallsherjarþing um málefni
kvenna ekki enn ein kjaftasamkoman með
kvöldverðar- og hanastélsboðum, eins og
svo oft er haldið fram, heldur mikilvægt
framlag fyrir starfið á næstu öld. Við ís-
lendingar höfðum margt fram að færa og
það er mín vissa að þetta starf muni nýtast
hér á landi við að tryggja íslenskum kon-
um þá jafnstöðu sem þær liafa svo lengi
beðið eftir og svo lengi átt lagalegan rétt
til. Ef við aðeins höldum rétt á spilunum.
Hafðu samband og
pantaðu bækting um
námskeiðin okkar.
Skyndihjálparnámskeið
Rauða kross íslands
• Almenn skyndihjálp
• Sérsniðin skyndihjálp
fyrir fyrirtæki
• Sálræn skyndihjálp
• Skyndihjálp á sundstöðum
• Barnfóstrunámskeió
• Slys á börnum
• Leiðbeinendanámskeið
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Rauða krossi íslands og deildum um allt Land.
Þú getur ekki alltaf treyst því að aórir þekki réttu
viðbrögðin vió slysum og öórum áföllum. Þú gætir
einmitt lent í þeirri aóstöðu að líf og andleg velferð
annarrar manneskju séu háð því að þú bregóist rétt
við á réttu andartaki. Ertu búinn undir það?
Það getur borgað sig aó kunna aó bregóast
við þvi óvænta í lífinu.
+
Rauði kross íslands
www.redcross.is
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík. Sími 570 4000, fax 570 4010. Netfang: central@redcross.is
42 • VERA