Vera - 01.08.2000, Side 45

Vera - 01.08.2000, Side 45
j^ínborg tíndi jurtirnar en Hlín Ja Blómahúsi Hlínar sá um að '“V'a sveiginn fagurlega. kunnarlaus gagnvart margri konunni má ekki gleyma að þessi lög höfðu tvær hliðar. „Þau voru að sumu leyti skref í jafnrétt- isátt: Eitt skyldi yfir alla ganga, ríka sem fá- tæka, konur sem karla. Þessi lög bættu stöðu kvenna að því leyti að betri trygging var fyrir því að eiginmenn hlúðu að börn- um sínum. Konur höfðu enga möguleika til að sjá sjálfar fyrir þeim, þær gátu ekki stokkið í Háskólann og menntað sig eins og konur geta í dag og verið fjárhagslega sjálfstæðar. Því síður gátu þær stjórnað barneignum sínum. Lögin bættu einnig stöðu barna og komu þeim undan því að vera sveitarómagar sem ekki var öfundsvert fyrir nokkurt barn. Þessi strangleiki Stóra- dóms hafði sem sagt göfugt markmið: Að stemma stigu við að fólk eignaðist börn sem það ekki gæti alið önn fyrir. Þetta var ákveðin tegund af mannfjöldastjórnun og uppeldisstjórnun. Það átti að kenna fólki að hegða sér skikkanlega og elskast ekki nema í hjónasæng." !> Og vissulega var full ástæða til að bregðast á einhvern hátt við því ófremdar- ástandi sem ríkti hér á landi lengi vel. Fjöldi lausaleiksbarna var mikill og eins var fjölkvæni og fleira í þeim dúr viðhaft. Karl- ar sem áttu mikið undir sér börnuðu kon- ur hist og her og tóku mis mikla ábyrgð á framfærslu þeirra afkvæma. „Upphaflega var ætlunin að hjónum væri refsað af meiri hörku en ógiftu fólki en þungi laganna færðist frá giftu fólki til fátækra vinnukvenna því þær höfðu ekki efni á að borga sektir og gátu ekki komið óæskilegri þungun yfir á eiginmanninn. Lögin voru í rauninni tímaskekkja því hér á landi var vinnuhjúum og fátækum bann- að að stofna fjölskyldu. Þessu fólki var haldið á svo lágum launum að það gat ekki séð fyrir sér og sínum. Oreigagiftinga- bannið ýtti auðvitað undir brotafjölda því erfitt er að banna fólki að elskast og kannski ekki furða þegar allir bjuggu svo þröngt að fólk varð að deila með sér rúm- um. Staða vinnukvenna varð mjög erfið eftir að lögin tóku gildi. Þær voru sjaldnast í aðstöðu til að segja nei ef húsbóndi leit- aði á þær, þeir gátu hótað að reka þær ef þær létu ekki að vilja þeirra. Eins voru þær reknar úr vist ef þær urðu barnshafandi. Börnin héldu áfram að fæðast, nema nú Arnfríður Guðmundsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir og Elínborg Sturludóttir var það oft á tíðum „ólöglegt". Lögin bitn- uðu því harðast á hinum umkomulaus- ustu.“ Sektir, hýðingar og skriftir Refsingar voru með ýmsum hætti og urðu harðari eftir því sem viðkomandi braut oft- ar af sér. Við fyrsta brot kom til sekta og ef þær voru ekki borgaðar þá gekk sakamað- ur undir opinbera hýðingu sem þótti mik- il niðurlæging. Vinnukonur höfðu sjaldnast efni á að greiða sektir og þess vegna voru miklu fleiri konur hýddar en karlar hér á landi fyrir siðferðisbrot. Einnig voru opin- berar skriftir í kirkjum viðhafðar sem refs- ingar og var það hin skelfilegasta niður- læging. „Dauðadómur var ekki viðlagður í fyrsta og öðru broti hjá giftu fólki, því það var ekki fyrr en við þriðja barn utan hjóna- bands sem refsing Stóradóms hljóðaði svo: Karlmenn höggvist en konur drekkist. Við brot á einhverju afþeim sautján tilbrigðum sifjaspellslaga sem sótt voru í Mósebækur lá aftur á móti alltaf dauðarefsing. Lögin tóku ekki aðeins á því fólki þar sem blóð- tengsl voru með foreldrum, það varðaði einnig við lög ef um innbyrðistengsl var að ræða: Ef maður átti börn með systrum eða kona með feðgum. I nokkrum málum höfðu systkini átt saman börn en það er eins og systkinaástir hafi oft á tíðum mætt samúð og skilningi í þjóðfélaginu, það kemur vel fram í þjóðsögunum." Konur sem urðu barnshafandi með þeim hætti sem stangaðist á við lögin, báru undir belti óumdeilanlegt sönnunargagn fyrir sekt sinni, sjálft barnið. Þær áttu því erfitt með að ljúga sig út úr málunum eða flýja. Karlmenn gátu stundum skotið sér undan á ýmsan hátt, neitað faðerni eða flú- ið í skip. Þó eru til sagnir um konur sem gátu komið sér undan því að vera dæmdar. „Þóra Björnsdóttir sem var biskupsfrú á Hólum um 1750 var kát og fjörug kona. Hún varð barnshafandi meðan Halldór Brynjólfsson biskup, hennar ekta maður, var fjarverandi í Danmörku. Meðgöngu- tíminn þótti grunsamlega langur en Þóra gat skýlt sér á bak við að hún var gift og haldið því fram að maður hennar ætti barnið. Og þó biskup hafi sjálfsagt vitað hvað klukkan sló, hafði hann ekki áhuga á að láta drekkja móður barna sinna svo reki- stefnan varð engin í þessu máli.“ Mannúðlegri stefna um 1750 Það var ekki kirkjan sem stóð fyrir drekk- ingunum, eins og margir halda, heldur hið veraldlega vald. A einveldistímanum voru menn mjög refsiglaðir og mikil harðstjórn í hávegum höfð. Lögin voru vissulega reist á kristnum grunni og kirkjunnar menn áttu að hafa eftirlit með sóknarbörnum sínum. En þegar veraldlegt vald tekur yfir refsikerfið þá verður allt miklu strangara. „Miðaldakirkjan á Islandi úthellti ekki blóði heldur beitti bannfæringu og sekt- um. Kirkjan var ekki að eltast svona mikið við fátækt fólk sem var ekkert nema kostn- aður við að refsa, hún vildi vernda fátæk- lingana og þjarrna frekar að auðmönnum. Trúvilla var að vísu dauðasynd en aðeins er vitað um eina slíka aftöku hér á landi. Nunna í Kirkjubæjarklaustri var tekin af lífi af þessum sökum árið 1343 en margt er á huldu um það mál." Um 1750 bárust hingað nýjar og mann- úðlegri hugmyndir með upplýsingastefn- unni. Þá var farið að byggja fangelsi í Reykjavík og aftökum fækkaði. Fangelsis- dómar tóku við af líflátsdómum. Eftir 1760 var hætt að drekkja konum. Þær fáu sem teknar voru af lífi eftir það voru höggnar að dönskum sið. 1792 var kona tekin af lífi í síðasta sinn fyrir að bera út barnið sitt. Þá var Ingibjörg Jónsdóttir, bláfátæk vinnu- kona um fertugt, höggvin í Helluhólma í Héraðsvötnum. Hún hafða eignast barnið með ungum vinnupilti en áður hafði hún eignast annað barn sem eflaust var tekið af henni. En það lifði margt áfram af félagslegum lausnum þessa tíma. T.d. það að taka börn 4 5 VER A •

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.