Vera - 01.10.2000, Side 44
Jafnara námsval
kynjanna
í lok október var haldinn kynningar-
fundur á verkefninu Konur til forystu,
jafnara námsval kynjanna sem er
átaksverkefni Háskóla íslands og
Jafnréttisstofu í samvinnu við nokkur
fyrirtæki og stofnanir. Vera fékk leyfi
til að birta brot úr nokkrum ræðum
sem fluttar voru á fundinum en hægt
er að nálgast þær allar á slóðinni:
http://www.hi./stjorn/jafnrettisn/ataksverkefni
Sumarnámskeið fyrir stelpur þar sem nám og störf
í upplýsingatækniiðnaði og verkfræði eru kynnt af
kennurum og fagfólki. Námskeiðið verður einnig unnið
í samstarfi við Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur og
Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar á
háskólastigi.
Námskeið í stjórnun lista og menningarstofnana
fyrir kvennemendur sem eru að útskrifast úr hug- og
félagsvísindadeild. Fyrsta námskeiðið verður haldið
næsta vor af NBP Nordic-Baltic Platform of Cultural
Managment Training og ENCATC European Network of
Cultural Administration Training Centres. Síðar verða
námskeið með innlendum kennurum. Þetta verkefni er
styrkt sérstakiega af Sjóvá-Almennum.
/Vlarkmið verkefnisins er annars vegar að undirbúa
stúikur sem Ijúka námi frá Háskóla íslands undir for-
ystustörf á þeirra framtíðarstarfsvettvangi og hins
vegar að fjölga konum í raunvísindum, verk- og töivun-
arfræði. Með þessu vill Háskóii íslands, með stuðningi
samstarfsaðila að verkefninu, leggja sitt af mörkum til
að jafna hlutdeild kynjanna í þekkingar- og upplýs-
ingasamfélagi nýrrar aldar. Víða við háskóla erlendis
hefur verið ráðist í áþekk verkefni til að tryggja þátt-
töku kvenna á þeirri upplýsingatækniöld sem fram-
undan er og auka fjölbreytiieika vísindanna með jafn-
ara námsvali kynjanna. Á kynningarfundinum var kynnt
eftirfarandi framkvæmdaáætiun.
Hvatningarátak í grunn- og framhaldsskólum
sem miðar að því að fjölga kvennemendum í raun-
vísindum og verk- og tæknifræðinámi á háskólastigi.
Átakið verður unnið í nánu samstarfi við verkfræði- og
raunvísindadeild Háskóla íslands, skólastjórnendur og
samtök háskólafólks í þessum fögum og ýmis fyrirtæki.
Átak til að auðvelda aðkomu kvennemenda í verk-
og tölvunarfræði. Haft verður samstarf við deildina
svo og eldri kvennemendur og útskrifaða verk- og
tölvunarfræðinga og þær fengnar til liðveislu kynsystra
sinna sem eru að hefja nám og þess óska.
Námskeið um heimspeki vísinda og vísindasögu
þar sem áhersla verður lögð á að setja vísindi í víðara
menningar og samfélagslegt samhengi.
Málþing um kennslufræði raungreina sem tæki
mið af kynjamismun, þ.e.a.s að stuðlað verði að fjöl-
breyttari kennslufræði raungreina til að ná til fleiri
nemenda. Hér verður Ieitað samstarfs við
Kennaraháskóla íslands og uppeldis- og menntunar-
fræðiskor H.Í., auk Samtaka raungreinakennara.
Hvatningarátak sem miðar að því að fjölga
kvenkennurum í raun-, verk- og tæknifræði á öllum
skólastigum. Leitað verði eftir samstarfi við
Kennararháskóla íslands sem og innlenda og erlendra
sérfræðinga um kennslufræði raungreina og hugsan-
legar aðgerðir til að fjölga þeim kvenkennaranemum
sem velja raunvísindafag / -fög sem kennslugreinar.
Aflað verður styrkja til rannsókna á sviði jafnrétt-
ismála með tilliti til jafnréttis við æðri menntastofnanir.
Samráð verður haft milli verkefnisins og mennta-
málaráðuneytis um sérstaka ráðstefnu um um stöðu
kvenna í vísindum á Islandi.
Stjórnunar-, leiðtoga- og starfsframanámskeið
fyrir kvennemendur á lokanámsári í öllum deildum
skólans í samráði við Gallup-Ráðgarð.
Námskeið um grundvallaratriði við stofnun
fyrirtækja og gerð viðskiptaáætlana fyrir stúlkur á
lokanámsári í samstarfi við Impru.
Átak til að jafna kynjaskiptingu í hjúkrunarfræði.
Hvatningarátak sem miðar að því að kynna drengjum í
sfðustu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum
hjúkrunarfræðiskor Háskóla ísiands. Hér er einnig þörf
á að breyta ímynd fagsins og stöðu þess.
Námskeið fyrir kvennemendur hug- og féiagsvísinda-
deildar um notkun tækninnar og starfsmöguleika
í upplýsinga- og þekkningariðnaði.